Víkurfréttir - 17.04.1997, Síða 15
Hvernig er
þetta hægt?
Hugleiðingar um
„körfukjör“ '97
Margur Keflvíkingurinn þ.á.m.
sá sem þetla ritar átti von á því
að hið sigursæla lið Kellavíkur
myndi raka að sér verðlaunum á
lokahófi KKI sem haldið var á
Hótel Islandi sl. föstudagskvöld.
Það var samdóma álit flestra á
Suðuniesjum a.m.k. að þjálfari
ársins yrði Sigurður
Ingimundarson og enginn annar
enda var maðurinn að stjórna
liði í fyrsta skipti í úrvalsdeildin-
ni sem vann alla þá titla sem í
boði voru. Er hægt að gera
betur? Raddir um að liðið væri
svo gott að það væri formsatriði
að stýra því til sigurs em aðhlá-
tursefni. Um hæfhi Sigurðar sem
þjálfara þarf enginn að efast.
Hann var að þjálfa stráka sem
hann haföi spilað með frá því að
þeir vom guttar og verið þeirra
besti vinur. Þetta breytti þó engu
ef frammistaða þeirra var ekki
viðundandi að hans mati heldur
var þeim kippt út af samstundis
og jteim lesinn pistillinn svo
harkalega að ágætir heiðusrgestir
sem stundum sátu nálægt
bekknum roðnuðu. Það að slíkt
santsæri geti átt sér stað eins og
það sem viðhaft var á fös-
tudaginn er algjör skandall. Það
þarf greinilega að endurskoða
skipulagið á viðurkenningum
lokahófsins. Hvemig það ætti að
vera er best að láta stjóm KKI
og aðra hluteigandi um en það
væri t.d. hægt að skipa nefnd
sem sæi um þetta val og færði
rök fyrir valinu. Þessi nefhd gæti
unnið í samráði við leikmenn og
þjálfara sem gætu haft atkvæðis-
rétt.
Annað val sem gagnrýnt hefur
verið er valið á besta leikman-
ninunt en það hlaut Hermann
Hauksson. Margir vildu að fyrir
þessu vali yrði Albert Óskars-
son. Hann fékk iðulega það
hlutverk hjá Keflavík að gæta
sterkasta mannsins í liði and-
stæðinganna sem oftar en ekki
var erlendi leikmaðurinn. Þessu
hlutverki skilaði hann með sóma
og gerði þess að auki 10-15 stig í
leik.
Það skal á það bent að hér er
ekki verið að sakast við þá sem
fyrir valinu urðu og ekki á neinn
hátt verið að gera lítið úr þeirra
frammistöðu. Ermolinskij náði
hámarksnýtingu úr liðinu en það
gerði Sigurður einnig með því
að sigra í öllum mótum
vetursins. Samkvæmt áreiðan-
legum upplýsingum sem blaðinu
bárust þá gat Jón Kr. Gíslason
þjálfari Keflavíkur '93 (og fleiri
ár) ekki hlolið útnefninguna
þjálfari ársins það árið þegar
Keflavík vann tvöfallt vegna
þess að hann var útispilandi þjál-
fari, það var hinsvegar hægt nú.
Hermann Hauksson er mjög
traustur leikmaður sem alltaf er
hægt að treysta á og gerir mikið
fyrir lið sitt. Þó eru flestir sam-
mála um að hann haft ekki gert
neinar stórar rósir í vetur.
Á lokahófið mætti enginn full-
trúi Njarðvíkinga og vakti það
nokkra furðu, vegna þess hafði
blaðið samband við Ástþór
Ingason þjálfara Njarðvíkinga:
„Þetta er óafsakanlegt og lélegt
hjá svona stórum klúbbi að
senda ekki einn fulltrúa þó ekki
væri meira. Það hefur hins vegar
í gegnum tíðina verið lítill áhugi
fyrir þessu hófi hjá okkur. Menn
em famir að gera annað eins og
að vinna. ég komst ekki vegna
þess að ég er í vaktavinnu og var
á vakt þessa helgi. Fjárhagslegar
ástæður koma þarna lt'ka við
sögu, félagið haföi ekki efni á að
bjóða mönnum. KKI gæti alveg
séð sóma sinn og boðið hverju
félagi eins og tíu miða, þeir em
að taka allan veturinn og geta
alveg gefið aðeins í lokin.“
Hvað fannst þér um valið?
„Ég skil vel reiði Keflvíkinga en
ég valdi Sigurð og Ermolinskij
sem bestu þjálfarana og Albert
sem besta leikmann. Það völdu
allir Njarðvíkingamir Sigga og
flestir eða allir Alla. Það sem ég
held að hafi komið niður á Sigga
í þessu vali var að alll liðið var
svo gott að hann féll bara inn í
liðið og menn sáu því ekki alveg
það sem hann gerði. Þar að auki
er hann með marga leikmenn
sem getað klárað leiki upp á
eigin spýtur eiris og Damon og
skytturnar þrjár. Siggi ætti
kannski að breyta um stfi, klæða
sig upp og mæta vatnsgreiddur á
leki, það myndi kannski vekja
áhuga ntanna!?“.
Hvað með Njarðvík. Hvernig
standa málin í ykkar herbúðum?
„Það er allt óljóst ennþá. Því
hefur verið skotið að mér að
þjálfa á næsta tímabili og það
getur vel hugsast en ekkert hefur
verið ákveðið ennþá. Það gæti
vel hugsast að það kæmi
ákveðinn leikmaður frá
Grikklandi til okkar að nýju og
ég held að Friðrik nokkur
Rúnarsson myndi lalla vel inn í
þjálfarastöðuna hjá sínum gömlu
félögum", sagði Ástþór.
Elsku Didda
okkar. Við
fjölskyldan
ásamt vin-
konu þinni
óskum þér
innilega til
hamingju
með 30 ára
afmælið 20. aprfl. Það eru mistök
að horfa of langt fram á veginn.
Það er aðeins hægt að ráða við
einn hlekk í keðju forlaganm einu.
Þetta litla
krípi átti af-
mæli þann
15. apríl sl.
og varð hún
lóára. Hún
tekur á móti
rennblautum
kossum með
meiru á föstudagskvöldið 18. apr-
fi á röltinu. Innilegar hamingju-
óskir, Bauni, Slúbbi, Klósettkaf-
arinn og Sillý.
Elsku
Didda
okkar, til
hamingju
með 30
ára af-
mælið
þann 20.
apríl.
Elvar og
Davíð.
Ferðaklúbburinn 4x4
Suðurnesjadeild
Jeppaferð Ferðaklúbbsins 4x4
Suðurnesjadeildar á Lyngdalsheiði
verðurfarin laugardaginn
19. apríl kl. 08:00.
Skráning í ferðina verður í Stakkshúsinu
við Iðavelli föstudaginn 18. apríl kl. 20:00.
Allir velkomnir sem eiga jeppa á
33 tommu dekkjum eða stærri.
IÞRÓTTA OG
UNGMENNAFÉLAG
K-númeramerki
fásl í K-video og á
bensínsöliinni Torginu.
Styrkjum knattspymuna
í Keflavlk!
KYNNIN G ARFUNDUR
Atak til
Atvinnusköpunar
Iðnlánasjóður, Iðnþróunarsjóður og
lðnaðarráðuneytið hafa nti hleypt af stað
Átaki til Atvinnusköpunar.
Innan átaksins eru mörg verkefni, t.d.
Vöruþróun '97, Snjallræði '97, Frumkvæði í
framkvæmd, Sókn á erlendan markað og
Frumkvöðlasluðningur.
Eru þetla ýmis verkefni sem flest stuðla
að nýsköpun í atvinnulífinu.
Til að kymia þessi verkefni nánar inun
starfsmaður Ataksins verða til viðtals
föstudaginn 18. a])rfl milli kl. 12 og 14
í húsakynmun Markaðs- og
Atvimmmálaskrifstofu
Reykjanesbæjar (MOA),
Hafnargötu 57 (Kjarna). Allar nánari
upplýsingar veittar í síma 421-6700.
Markaðs- og atvirmumálaskrifstofa
Reykjanesbœjar
Gæsluvellir -
SUMAROPNUN
Gœslu vellir Reykjanesbœjar verða opnir frá
kl. 13 til 17 frá og með 2. maí til 30. sept.
Nánari upplýsingar eru gefnar á
bæjarskrifslofunum, Tjarnargötu 12,
Keflavík og ísúna 421-6700.
DaggœslufuUtrúi.
TIL SOLU
Iðnadarhúsnæði á tveimur hæðum.
7. hæð 240 ferm. 2. hæd 200 ferm.
Húsnædið hentar til margskonar starf-
semi. Söluverd 5,9 millj. kr. Hagstæð
lán fylgja. Upplýsingar í símum
562-4510 símsvari efenginn er við,
eða 552-9600 eftir kl. 20:00.
I sídasta tölubladi birtust röng símanúmer og
bidjum vid viðkomandi velvirdingar á mis-
tökunum.
Víkurfréttir
15