Víkurfréttir - 07.05.1997, Page 2
FRÉTTAVAKT 898 ZZZZ
\ Sjálfstæðisfélagið
/k/ Njarðvíkingur
% AðaHundur
Aðalfundur
Ráðning skólastjóra vinnuskólans rædd í bæjarstjórn:
PÓUTÍSK?
apríl segir m.a. ,Að lokum vil ég
lýsa undrun minni á hegðan
bæjarfulltrúa Framsóknarflokks-
ins sem hafa séð það vænlegra að
beygja sig undir vilja sjálfstæðis-
manna frekar en að standa við
hlið á fulltrúa sínum í nefndinni
og ákvörðun hans. Þetta er sér í
lagi einkennilegt í ljósi þess að
fyrmefndur nefndarmaður er for-
maður tómstundaráðs".
Bókaði minnihluti um málið á
fundi bæjarstjómar þar sem segir
m.a. „Við samþykktum hins vegar
á síðasta fundi bæjarstjómar að
vísa málinu til bæjarráðs og
reiknuðum að sjálfsögðu með því
að þar yrði máíið tekið til nánari
skoðunar og faglegrar afgreiðslu.
A daginn kom hins vegar að
málið var ekki tekið til skoðunar í
bæjarráði. Meirihlutinn lagði ein-
faldlega til að Ragnar Örn
Pétursson yrði ráðinn. Þrátt fyrir
óskir fulltrúa minnihlutans um að
fá umsóknir umsækjenda fengust
þær ekki. Það er því augljóst að
ekki stóð til að taka málið til
nánari skoðunar, heldur var ein-
ungis verið að búa til leið til að
geta beitt pólitísku meirihlutavaldi
í bæjarráði".
Meirihluti vísaði því alfarið á bug
að um pólitíska ráðningu væri að
ræða og sagði Ragnar Öm ein-
faldlega hafa verið hæfari til starf-
ans. Benti Ellert Eiríksson
bæjarstjóri jafnframt á þá stað-
reynd að nefndir væm ráðgefandi
og það á valdi bæjarstjómar að
taka ákvarðanir. I máli Jónínu
Sanders formanns bæjarráðs kom
það fram að rætt hafi verið við
íþrótta- og tómstundafulltrúa sem
er yfmnaður skólastjóra vinnu-
skólans fyrir fund bæjarráðs þann
23. apríl og hafi hann mælt með
því að Ragnar Öm fengi starfið.
Drífa Sigfúsdóttir forseti bæj-
arstjómar sagði að fólk ætti ekki
að gjalda fyrir það að taka þátt í
pólitísku starfi.
Fulltrúar minnihlutans sögðu
meirihluta fara út um víðan völl í
leit að rökum í málinu og sagði
Kristján Gunnarsson (A) það vera
einsdæmi að bæjarfulltrúar fái
ekki gögn sem þeir óski eftir og
velti því fyrir sér hvort það stæðist
sveitarstjórnarlög. Ráðning
Ragnars Amar var samþykkt með
6 atkvæðum meirihluta á móti
fimm atkvæðum minnihluta.
Heiðarvegur 23, Ketliivík
3ja herb. íbúð á efri hæð með
sérinngangi. Nýtt járn á þaki.
Góðir greiðsluskilmálar.
Nánari upplýsingar gefnar á
skrifstofunni.
Tilboð.
Heiðarvegur 24, Kellavík
3ja-4ra herb. neðri hæð. Nýjar
vatnslagnir og nýir gluggar.
Góður staður. Nánari upp-
lýsingar gefnar á skrifstof-
unni. Eækkað verð.
Tilboð.
Suðurgata 26, Keflavík
122 ferm. 4ra herb. efri hæð
með sérinngangi. Vönduð
íbúð á góðum stað. Allar
nánari upplýsingar um sölu-
verð og greiðsluskilmála
gefnar á skrifstofunni.
Birkiteigur 4, Keflavík
2ja herb. íbúð á 2. hæð í góðu
ástandi. Nánari upplýsingar á
skrifstofunni um söluverð og
greiðsluskilmála. Laus strax.
Tilboð.
Fífumói 1A, N jarðvík
2ja herb. íbúð á 1. hæð í góðu
ástandi. fsskápur og þvotta-
vél fvlgir. Laus strax.
4.300.000.-
Samþykkt bæjarráðs Revk-
janesbæjar um að ráða Ragnar
Örn Pétursson í stöðu skóla-
stjóra vinnuskólans í sumar var
til umræðu á fundi bæjar-
stjórnar sl. þriðjudag og deildu
fulltrúar minnihluta hart á þá
ákvörðun.
Töldu þeir ákvörðunina ekki
byggða á faglegum grunni og
óeðlilegt að meirihluti bæjarráðs
ákveði að ráða þann umsækjanda
sem færri atkvæði fékk þegar
málið var til afgreiðslu tómstund-
aráðs sem mælti með Ragnari
Marinóssyni í stöðuna.
Meirihluti tómstundaráðs klofnaði
í málinu þegar að Guðríður
Halldórsdóttir fulltrúi Fram-
sóknarflokks lýsti yfir stuðningi
við Ragnar Marinósson í starfið
og í bókun Gests Páls Reynis-
sonar í tómstundaráði þann 25.
Fastei pnasalan
HAFNARGÖTU 27 - KEFLAVÍK SÍMAR421 1420 OG 4214288
Túngata 3, Sandgerði
4ra herb. neðri hæð 90 ferm.
Skipti á stærra húsnæði mögu-
leg.
4.200.000.-
Skagabraut 46, Garði
2ja-3ja herb. neðri hæð með
sérinngangi. Húsið er klætt að
utan með stálklæðningu.
3.500.000,-
Tjarnargata 28, Keflavík
171 ferm. parhús ásamt 23
ferm. bílskúr. Hagstæð Ián
áhvílandi.
10.100.000.-
Sjálfstæðisfélagsins
Njarðvíkings verður haldinn
fimmtudaginn 15. maí nk.
kl. 20:30 ísjálfstæðishúsinu
Hólagötu 15, Njarðvík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Kristján
Pálsson alþingismaður.
Stjórnin.
Brekkustígur 33b, Njarðvík
Rúmgóð 3ja herb. íbúð á 2. hæð
með sérgeymslu og mikilli sam-
eign í kjallara. íbúðin er í mjóg
góðu ástandi, Laus strax. Ein-
staklega góðir greiðsluskilmálar
Nánari uppljsingar á skrif-
stofunni.
Skoðið myndaglugga okkar, þar eru að finna
sýnishornaffasteignum,
sem eru á söluskrá hjá okkur.
Beðið eftir stjórnandanum!
Söngsveitin Víkingar hefur staðið í stórræðum síðustu daga.
Tónleikar hafa verið haldnir í Samkomuhúsinu í Garði og einnig
hafa þeir sungið við önnur tækifæri. Meðal annars kom
söngsveitin frant á hátíðarhöldum I. maí í Sæborgu í Garði.
Meðfylgjandi mynd var tekin af nokkrum Víkingum úti undir
gafli en þar biðu strákamir söngelsku eftir stjómandanum sem
var ekki mættur á svæðið. Þeir höfðu svo sem ekert á móti því
að bíða aðeins því veðrið var gott og nær óbærilegt að sitja inni í
slíku veðri. VF-mvnd: Hilmar Bragi Bárðarson
Mikill ahugi fynip
stöðu launafulltrúa
Alls 15 aðilar sóttu um stöðu launafulltrúa Reykjanesbæjar
sem auglýst var til eins árs. Þeir sem sóttu um voru Agústa
Guðmundsdóttir, Birgitta Róbertsdóttir, Nína Hildur
Magnúsdóttir, Sigríður Jóna Jóhannesdóttir, Gréta
Þórðardóttir, Guðlaug Björnsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir,
Jósep Valgeirsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Linda
Grétarsdóttir, Sesselja G. Halldórsdóttir, Sigurborg
Hafsteinsdóttir, Sigurlaug Hauksdóttir og Svala K.
Pálsdóttir. Akveðið var að ráða Agústu Guðmundsdóttur í
stöðuna.
2
Víkuifréttir