Víkurfréttir - 15.05.1997, Qupperneq 2
Vandamál?
Hvítasummkirkjan er lausnin.
Vegurinn
Of hátt Mutfail
Fasteivnasalan
HAFNARGÖTU 27 - KEFLAVÍK Cj SÍMAR421 1420 OG 4214288
Hringbraut 44, Keflavík
2ja lierb. íbúð á 2. hæð. íbúðin
hel'ur verið vel tekin í gegn og
hin glæsilegasta. Hægt að
taka bíl uppí útborgun.
Lækkað verð.
4.000.000,-
Heiðarholt Se, Keflavík
3ja herb fbúð á 2. hæð í góðu
ástandi. Góðir greiðslu-
skilmálar. Losnar fljótlega.
5.700.000,-
Fífumói la, Njarðvík
2ja herb. íbúð á I. hæð. Ibúðin
er í góðu ástandi. Laus strax.
4.300.000,-
Baldursgarður 7, Kellavík
142 ferm. einbýli ásamt 48
ferm. bílskúr. Vandað hús á
góðum stað. Skipli á minni
fasteign. koma til greina.
Nánari upplýsingar um sölu-
verð og greiðsluskilmála
gefnar á skrifstofunni.
Smáratún 41, Keflavík
132 ferm. 4ra herb. efri hæð
ásamt 34 ferm. bílskúr. Sér-
inngangur. Ibúðin er ný tekin í
gegn og því í mjög góðu ást-
andi. Allar nánari upplýsingar
gefnar á skrifstofunni um
söluverð og greiðsluskilmála.
Brekkustígur 33b, Njarðvik
Rúmgóð 3ja herb. íbúð á 2.
hæð með sérgeymslu og mik-
illi sameign í kjallara. Ibúðin
er í mjög góðu ástandi. Einst-
aklega góðir greiðsluskilmálar
m.a. útborgun aðeins 100-200
þús. Laus strax. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofunni.
Tilboð.
Skodið myndaglugga okkar, þar eru að finna sýnishorn affasteignum,
sem eru á söluskrá hjá okkur.
Sólveig Þórðardóttir bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar:
Sólveig Þórðardóttir bæjar-
fulltrúi G-listans óskaði eftir
því við bæjarráð á síðasta
fundi í bæjarstjórn Revkja-
nesbæjar í umræðum uin
Nikkil-svæðið að tekin verði
sýni fyrir utan giröingu til
þess að kanna hugsanlega
mengun fyrir utan girðingu.
I skýrslu landlæknis kemur
að ákveöinn fæðingargalli
barna greindist á ákveðnu
tímabili sem er vfir heims-
meðaltali hér á Suðurnesj-
um.
Að sögn Sólveigar lagði síð-
asta bæjarstjórn Njarðvíkur
áherslu á það að ná samning-
um um að fá Nikkelsvæðið til
nýtingar fyrir sveitarfélagið.
„Þá var strax lögð áhersla á
það í bæjarstjórn að við
myndum fá landið afhent
hreint þegar til þess kæmi. Því
að við vitum það og þá sér-
staklega eldri Suðurnesja-
menn að þama voru t.d. olíu-
tankar og þó að ég alhæfi ekk-
ert þar sem ég hef ekkert í
höndunum þá getur maður
dregið líkur af því að þama
geti verið mengaður jarðveg-
uf‘.
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar
hefur sóst eftir því að fá svæð-
ið afhent en afgreiðsla máls-
ins hefur gengið hægt og virð-
ist helst stranda á hreinsun á
svæðinu.
„Við megum ekki gleyma því
að vamarsamningurinn er til
99 ára og því hafa bandarísk
yfirvöld þetta yfirráðasvæði.
Við sækjumst einungis eftir
samkomulagi um að fá það
afhent. Eins og komið hefur
tiram í umræðum í bæjarstjóm
þurfum við að losa þungaum-
ferð af íbúðabyggðunum
þarna sem er orðið mjög
brýnt. Nú hefur tekist samn-
ingur um að við megum legg-
ja þama veg“.
Að sögn Sólveigar vekja
hindranir vamarliðsins vegna
hreinsunar og afhendingar
svæðisins upp ýmsar spum-
ingar þótt hún segist aðeins
hafa fyrir sér almenna skyn-
semi.
„Eðlisfræðin segir okkur það
að efni dreifast. Bæði efni
sem em fljótandi og efni sem
ekki eru fljótandi. Meira að
segja reykurinn dreifist. Við
vitum ekki hvaða mengun er
fyrir hendi innan svæðisins en
við getum þó kannað það
svæði sem við höfum til yfir-
ráða. Þetta þarf að kanna til að
komast að raun um það hvort
gera þurfi einhverjar varúðar-
ráðstafanir þar sent þetta er
örstutt frá byggð. Eigum við
að bíða í 50 ár eftir því að fá
þetta land á meðan að meng-
unin er kannski að dreifast?
Þetta er eitthvað sem við þurf-
um að vita betur".
Það sem vekur ugg í þessu
máli er skýrsla landlæknis
sem tekin var fyrir á Alþingi
fyrir nokkmn ámm af núver-
andi þingmanni Reykjanes-
kjördæmis Sigríði Jóhannes-
dóttur og liggur nú fyrir
þingsályktunartillaga frá Sig-
ríði í svipuðum anda. Sigríður
taldi nauðsynlegt á grundvelli
skýrslunnar að kanna þau
svæði á Suðurnesjum sem
hugsanlega væru menguð og
er Sigríður nú að láta vinna
fyrir sig heilsufarskönnun á
Suðurnesjum í samanburði
við aðra landshluta. Er búist
við niðurstöðum hennar næsta
haust. I skýrslunni kemur
fram að á ákveðnu tímabili er
vanskapnaður nýbura er nefn-
ist Potter's syndrome algeng-
ari á Suðumesjum en annars
staðar í heiminum. Böm með
þennan fæðingagalla geta
ekki lifað og lifa stundum
ekki alla meðgönguna. I
skýrslu landlæknis kemur
fram að um er að ræða vem-
lega aukningu tilfella á þessu
svæði.
„Auðvitaö fer ekki hjá því að
bæjarfulltrúinn og Ijósmóður-
in hlýtur að hafa ögn meiri
áhyggjur af þessu heldur en
þeir sem aldrei hafa séð þetta.
Eg get ekki sagt að þau böm
sem fæðast svona séu afleið-
ing mengunar en þetta vekur
vissulega athygli. Eg sef ekki
rótt fyrr en ég get einhvers
staðar, hugsanlega, fundið
einhverja tengingu þar á milli.
En ég alhæfi ekkert og kanns-
ki er þetta tilviljun en það
kemur ekki í ljós fyrr en
kannað er hvort þama sé ein-
hver mengun. Það er okkar
ábyrgð sem bæjarfulltrúa að
tryggja það að íbúar búi við
sem bestu skilyrði og hægt
er“.
Hlið Nikkelsvæðisins við
Flugvallarveg á gömlu bæjarmörkum
Keflavikur og Njarðvíkur.
VF-mynd: Hilmar Bragi
2
Víkurfréttir