Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.1997, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 15.05.1997, Blaðsíða 15
Sjóvá-Almennra deildin í knaltspyrnu ao hefjast. Keflvfkingar leika gegn Fram í sinum fyrsta leik og Grindavík heimsa^kir Valsmenn: Leikmannahópur Keflvíkinga með þjálfurunum Sigurði Björgvinssyni og Gunnari Oddssyni. VF-mynd/pket. Markmiðið að gera betur en í fyrra -segja þeir Gunnar Oddsson og Sigurður Björgvinsson, þjálfarar liðsins „Markmiðið hjá okkur er að gera betur en í fyrra. Strák- arnir eru reynslunni ríkari eftir erfitt tímabil í fyrra“, sögðu þeir Gunnar Oddsson og Sigurður Björgvinsson, þjálfarar Keflavíkurliðsins í knattspyrnu. Sjóvá-Almennra deildin er að hefjast og Keflavík leikur sinn fyrsta leik á mánudag gegn Fram og fer hann fram á gras- vellinum í Keflavík. „Undirbúningurinn hefur geng- ið vel. Hópurinn hefur æft meira og minna síðan í nóvem- ber og á 26 dögum frá lok mars og fram í apríl æfðum við 23 sinnum. Það var m.a. gert með tilliti til stífrar byrjunar á mót- inu en við leikum fimm leiki á tólf dögum en svo kemur mán- aðarkafli þar sem við leikum aðeins einn leik“, sögðu þeir Sigurður og Gunnar og bættu því við að veruleg óánægja væri með uppröðun leikja sumarsins en þar spilar inn í Evrópukeppni félagsliða og landsliða undir 18 ára. Leikmannahópurinn er lítið breyttur frá síðasta tímabili en í honum eru 25 manns, þar af Gunnar Oddsson sem mun jafn- framt leika með liðinu. Nokkrir af eldri Ieikmönnunum eru hættir, m.a. Ragnar Margeirsson og Jóhann Magnússon. Róbert Sigurðsson er og farinn til Reynis í Sandgerði. Meiðsli hafa ekki verið að hrjá mannskapinn og því er hópur- inn tilbúinn í slaginn. Sigurður segir aðspurður að hann hefði ekki tekið við liðinu nema með Gunnari. ,íg var ekki á leiðinni í meiriháttar þjálfun. Hafði kannski hugsað mér það síðar en úr því Gunni kom inn í dæmið þá var ég til“, segir Sig- urður sem þjálfaði lið Víðis hluta af keppnistímabilinu í fyrra og lék sitt síðasta tímabil árið á undan með Reynismönn- um. Sigurður er leikjahæsti maður 1. deildar frá upphafi en hann og Gunnar léku saman með KR í 3 ár fyrir nokkrum árum ásamt Ragnari Margeirs- syni og þar á undan léku þeir með Keflavík í mörg ár. Gunnar lék síðustu tvö ár með Leiftri, tvö þar á undan með Keflavík eftir árin þrjú hjá KR. Hann segist feginn að vera kominn heim á nýjan leik eftir land- flutninga á sumrin norður til Olafsfjarðar. „Það er þreytandi að vera á flakki milli landshluta. Nú er ég alkominn heim og er mjög ánægður að vera hjá mínu gamla félagi“, sagði Gunnar sem starfar hjá Sjóvá umboðinu í Keflavík. Sigurður rekur sem kunnugt er verslunina K-sport og segir þess vegna að hann hefði ekki treyst sér til að vera einn með liðið. En eruð þið ekki mjög ólíkir, eins og kannski hundur og köttur? „Við fengum að heyra það en það er fjarri lagi. Þetta hefur gengið mjög vel og við eru bjartsýnir á sam- vinnuna. Gunnar sér um liðið á vellinum en ég verð á hliðarlín- unni“, sagði Sigurður. Aðspurðir sögðust þeir halda að mótið yrði jafnara í ár en í fyrra. Fjögur lið myndu verða í topp- baráttunni og síðan yrði hitt „pakki" fyrir neðan. ,,Það verða fleiri óvænt úrslit í sumar en í fyrra“, sögðu þeir að lokum. Suðurnesjamennirnir sterkir í fyrsta Bláa lóns mótinu Meistaraflokksmenn úr GS röðuðu sér í þrjú efstu sætin í fyrsta Bláa lóns mótinu í golfi sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru sl. sunnudag. Davíð Jónsson „hélt haus" á meðan jaxlar á borð við Björgvin Sigurbergsson, fyrrverandi Islandsmeistari og Helgi Þórisson úr GS ýmist misstu dampinn á síðustu holunum eða fengu 11 högg á Bergvíkin, 3. holu sem er par þnr. Það gerði Helgi og sendi þrjá bolta út á haf. Hinar 17 holumar lék hann hins vegar á 2 undir pari og endaði á 78. Úrslit án forgj. 1. Davíð Jónsson GS 2. Öm Æ. Hjartarson GS 3. Guðm. R. Hallgr. GS 4. ívar Hauksson GKG 5. Bjöigvin Sigurb. GK Með forgjöf 1. Þórhallur Óskars GSG 2. Guðni V. Sveins GS 3. Jón H. Bergsson GKG 73 73 74 74 75. Matjuitir í heim- ilisgarðinum Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum Ölvusi, verður með námskeið um matjur- tir í heimilisgarðinum og lífræna ræktun fást næg þátttaka í Fjölbrautaskóla Suðumesja (stofu 222) lau- gardaginn 24. maí nk. kl. 13-18. Leiðbeinandi verður Gunnþór Guðfinnsson, kennari við Garðyrkju- skólann. Sjá nánari í auglýsingu í blaðinu. -SPORTMOLAR - SPORTMOLAR - Ný andlit í Keflavíkurbúninga Það má búast við því að ungir peyjar sem stuðningsmenn Kefla- víkurliðsins þekkja varla með nafni muni hlaupa inn á völlinn í Keflavíkurtreyjunni í sumar. 2. flokkur félagsins hefur yfir mörgunt ungunt og efnilegum strákum á að skipa sem æfa í meistaraflokknum. Sællar minningar þá var það ungur strákur sem bjargaði 1. deildarsætinu í fyrra en þá skoraði Þórarinn Kristjánsson leikmaður með 3. flokki sigurmarkið í sinni fyrstu snertingu í síðasta leik liðsins gegn ÍBV. Stuðningur mikilvægur Sigurður og Gunnar, þjálfarar Keflvikinga sögðu að stuðningur við liðið í leikjunt væri tólfti leikntaðurinn í hverjum leik og skipti þar af leiðandi ákaflega miklu máli. Liðið fékk góðan stuðning á erftðum tímum í lok síðasta tímabils og liðið þakkaði fyrir sig með því að sigra og halda sæti sínu í deildinni. „Undan- farin ár hefur verið beðið um það að ungu strákamir fengju að spreyta sig. Það hefur verið gert og vonandi fá þeir þann stuðn- ing sem þeir eiga skilið í sumad', sögðu þeir Sigurður og Gunn- ar. Þakka Garðmönnum Keflvíkingar hafa að undanfömu æft mikið út á Garðskaga á gamla velli Víðisntanna. Aðstöðuleysi í Keflavík er ntikið og í vikunni æfði liðið á Iðavallasvæðinu þar sem ekki er auðvelt að æfa knattspymu auk þess sem alla búnings- og salemisaðstöðu vantar. „Við erum ákaflega þakklátir Víðis- og Garðmönnum fyrir þeirra hjálp í þessu", sagði Sigurður sem kom Garðmönn- um til hjálpar á miðju síðasta tímabili þegar hann tók við þjálfun liðsins. Keflavík í 7. en Grindavík í 8.-9 sæti Suðumesjaliðin verða fyrir neðan miðju í árlegri spá fyrirliða liðanna. Keflvíkingunt var spáð 7. sæti en Grindvíkingum 8.-9. sæti. KR er spáð titlinum fimmta árið í röð en nýliðunum frá Borgamesi neðsta sætinu. Við segjum nánar frá gangi mála hjá Grindvíkingum í næsta tölublaði fyrir fyrsta heimaleikinn sem verður gegn KR. Stapafell - Atvinna Starfskraftur óskast í varahlutaverslunina. Stapafell Keflavík. m Iþrótta- og leikjaskóli KEFLAVÍKUR Óskum eftir starfsfólki frá 2. júní til 16. júlí. Ýmist allan daginn eða eftir hádegi. Leitað er að hressu fólki, í góðu formi sem á auðvelt með að umgangast börn, helst eldri en 20 ára. Nánari upplýsingar veitir Jóhann í síma 421-3044 eftir kl. 16, 15.-20. maí (einnig um helgina). V íkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.