Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.1997, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 15.05.1997, Blaðsíða 8
/ Grindavík er starfandi félag bifhjólamanna er nefnist Fafner mc Island. Jón Þór Dagbjartsson er stofnandi og formaður félagsins og er hugmynd- in fengin ad láni frá Svíþjód þar sem hann bjó um fjögurra ára skeið. Þeir félagar hafa tekið á leigu húsið Stafholt í Grindavík þar sem þeir hafa útboðið aðstöðu fyrir félagsmenn sem er sú eina sinnar tegundar hér á landi. Jón Þdr Dagbjartsson er stofnandi Fafner mc Island í Giindavík sem er félag bifhjólaeigenda: „Við erum að reyna að bæta ímynd bifhjólamanna, bæði út á við og inn á við og sýna að í þessu eru fleiri en aumingjar og ræflar“, segir Jón Þór en Fáfnismenn fengu húsnæðið afhent í byrjun janúar og hafa verið að vinna í því síðan. Húsið gegnir hlutverki félagsheimilis fáfnismanna og að sögn þeirra reka margir upp stór augu þegar þeir koma inn og skoða herleg- heitin „Fólk heldur að jDetta sé hreysi en þegar það kemur inn og skoðar það sem við erum að gera héma þá dettur af því andlitið". I kjallaranum er verstæði fyrir mótorhjól sem verið er að vinna að og þegar að VF ræddu við Jón Þór voru þar átta hjól inni til viðgerðar. Sérstaða klúbbsins er heima- smíðuð hjól og eru fjórir félagar með slíkar „græjur". Að sögn Jón Þórs er það alltaf að aukast að menn smíði sín hjól sjálfir. Á efri hæðinni er fundaraðstaða og eldhús þar sem menn geta fengið sér kaffi. Tveir menn búa á svefnloftinu eins og stendur og eru þeir meðlimir í félag- inu en herbergin eru jafnframt fyrir aðra bifhjólamenn sem koma m.a. úr Keflavík og Reykjavík til þess að vinna að hjólunum sínum. Fáfnismenn em nú að snyrta garðinn í kringum liúsið. „Svo þetta líti allt snyrtilega út“, segir Jón Þór. „Hér er alltaf heitt kaffi á könnunni og ætlum við að reyna að efla straum bifhjóla- manna hingað suðureftir. Þeir gætu til dæmis bmgðið sér í Bláa lónið og í kaffi til okkar á eftir“. Félag bifhjólamanna sem kallar sig Væringjar heimsóttu fáfnismenn um daginn og skoðuðu hjá þeim aðstöðuna og að sögn Jón Þórs vom þeir mjög hrifnir. Um 10-12 klúbbar bifhjólamanna em um allt landið en að sögn Jón Þórs hefurenginn slíkt hús- næði. „Óskaböm Óðins em með iðnaðarhúsnæði en þeir hafa enga svefnaðstöðu og geta ekki boðið upp á sömu aðstöðu og við“. Hvernig félag er þetta? „Félagið var stofnað í fyrra og er það alveg sjálfstætt. Við gefum ekki upp félagatölu en við höfum gefið okkur ákveðna höfuðtölu sem við ætlum að halda okkur við. Það er gert til þess að menn nái að kynnast hvorir öðmm en við fáum t.d. lægri trygg- ingar vegna hjólanna út á þennan félagsskap. Við höld- um hópinn og pressum okkur saman“. Hafa einhverjir sótt um inngöngu? „Ég vil ekki og má ekki fara út í það. Þetta er allt mjög leyndardómsfullt og það er það sem gerir þetta svo spennandi. Við emm t.d. með , jiangerans", eða utanáhangandi eins og við köllum þá eii það em strákar sem dreyma um að vera Fáfnismenn en em ekki búnir að kynnast nógu mörgum til þess að komast inn í grúbb- una. Við erum að reyna að fegra fmynd bifhjólamanna og setjum við þeim það skilyrði að þeir sýni virðingu í innan- bæjarakstri vegna bama og annarra". fáfnismenn buðu Lögreglunni í Grindavík í heimsókn um daginn í spjall og hafa þeir myndað með sér samstarf. „Við báðurn þá að hafa samband við okkur ef það em einhver vandamál með bifhjól okkar innanbæjar og tökum við hart á því f félaginu". Að sögn Jón Þórs fá nýliðar að bera merkið mc Island á bakinu en vildi hann taka það fram að þótt merkið sé í líkingu við það sem m.a. vitisenglar nota þá megi alls ekki bendla fáfnismenn að nokkm leyti við þá. „Við emm að reyna að skapa bifhjólamönnum nýja ímynd og viljum við alls ekki láta tengja okkur við stríð bifhjólamanna úti. Við höfum fengið einhver skot á okkur sem við eigum alls ekki skilið enda emm við að mestu leyti fjölskyldufólk. Ég er til dæmis fjögurra bama faðir og er konan mín Thodóra Bragadóttir á kafi í þessu líka. Annars gengi þetta ekki upp. Við emm hjólandi út og suður en þar sem ég er á frystitogara verður hún lQdega að hjóla meira í sumar en ég“, segir Jón Þór með nokkuiri eftirsjá í rómnum. Nú eru ferðalög stór þáttur í slíkum félagsskap eru ein- hver á teikniborðinu í suniar? „Þriðju helgina í ágúst munum við halda útisam- komu er nefnist „Dagur drekans" með tilvísun í merki félagsins. Þá verður haldin afmælishátíð í Stafholti og munu einhverjir bifhjólamenn koma hingað. Við fömm líka á landsmót Sniglanna og stefnum sjálfir á að fara á Sprengisand á hjólunum í fjölskylduferð. I mínu tilviki fömm við á hjóli og bfl og skiptumst við hjónin á því að keyra. Þegar við komum á áfangastað fá krakkamir kannski að sitja á en þau tryll- ast alveg þegar ntaður kveikir á hjólunum, svo mikill er spenningurinn". En hvað er svona skemmti- Iegt við það að vera á mótorhjóli? ,frelsið“, segir Jón Þór með áherslu. „það er frelsið númer eitt, tvö og þrjú. Þú er úti að hjóla og getur kúplað þig út frá umheiminum og bara verið þú, jámið kalt og vind- urinrí'. Viðtal: Dagný Gísladóttir Myndir: Hilmar Bragi 8 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.