Víkurfréttir - 15.05.1997, Qupperneq 8
/ Grindavík er starfandi
félag bifhjólamanna er
nefnist Fafner mc Island.
Jón Þór Dagbjartsson er
stofnandi og formaður
félagsins og er hugmynd-
in fengin ad láni frá
Svíþjód þar sem hann bjó
um fjögurra ára skeið.
Þeir félagar hafa tekið á
leigu húsið Stafholt í
Grindavík þar sem þeir
hafa útboðið aðstöðu
fyrir félagsmenn sem er
sú eina sinnar tegundar
hér á landi.
Jón Þdr Dagbjartsson er
stofnandi Fafner mc
Island í Giindavík sem er
félag bifhjólaeigenda:
„Við erum að reyna að bæta
ímynd bifhjólamanna, bæði út
á við og inn á við og sýna að í
þessu eru fleiri en aumingjar
og ræflar“, segir Jón Þór en
Fáfnismenn fengu húsnæðið
afhent í byrjun janúar og hafa
verið að vinna í því síðan.
Húsið gegnir hlutverki
félagsheimilis fáfnismanna og
að sögn þeirra reka margir
upp stór augu þegar þeir
koma inn og skoða herleg-
heitin „Fólk heldur að jDetta sé
hreysi en þegar það kemur inn
og skoðar það sem við erum
að gera héma þá dettur af því
andlitið".
I kjallaranum er verstæði fyrir
mótorhjól sem verið er að
vinna að og þegar að VF
ræddu við Jón Þór voru þar
átta hjól inni til viðgerðar.
Sérstaða klúbbsins er heima-
smíðuð hjól og eru fjórir
félagar með slíkar „græjur".
Að sögn Jón Þórs er það alltaf
að aukast að menn smíði sín
hjól sjálfir. Á efri hæðinni er
fundaraðstaða og eldhús þar
sem menn geta fengið sér
kaffi. Tveir menn búa á
svefnloftinu eins og stendur
og eru þeir meðlimir í félag-
inu en herbergin eru jafnframt
fyrir aðra bifhjólamenn sem
koma m.a. úr Keflavík og
Reykjavík til þess að vinna að
hjólunum sínum. Fáfnismenn
em nú að snyrta garðinn í
kringum liúsið. „Svo þetta líti
allt snyrtilega út“, segir Jón
Þór. „Hér er alltaf heitt kaffi á
könnunni og ætlum við að
reyna að efla straum bifhjóla-
manna hingað suðureftir. Þeir
gætu til dæmis bmgðið sér í
Bláa lónið og í kaffi til okkar
á eftir“.
Félag bifhjólamanna sem
kallar sig Væringjar heimsóttu
fáfnismenn um daginn og
skoðuðu hjá þeim aðstöðuna
og að sögn Jón Þórs vom þeir
mjög hrifnir. Um 10-12
klúbbar bifhjólamanna em um
allt landið en að sögn Jón
Þórs hefurenginn slíkt hús-
næði. „Óskaböm Óðins em
með iðnaðarhúsnæði en þeir
hafa enga svefnaðstöðu og
geta ekki boðið upp á sömu
aðstöðu og við“.
Hvernig félag er þetta?
„Félagið var stofnað í fyrra og
er það alveg sjálfstætt. Við
gefum ekki upp félagatölu en
við höfum gefið okkur
ákveðna höfuðtölu sem við
ætlum að halda okkur við.
Það er gert til þess að menn
nái að kynnast hvorir öðmm
en við fáum t.d. lægri trygg-
ingar vegna hjólanna út á
þennan félagsskap. Við höld-
um hópinn og pressum okkur
saman“.
Hafa einhverjir sótt um
inngöngu?
„Ég vil ekki og má ekki fara
út í það. Þetta er allt mjög
leyndardómsfullt og það er
það sem gerir þetta svo
spennandi. Við emm t.d. með
, jiangerans", eða
utanáhangandi eins og við
köllum þá eii það em strákar
sem dreyma um að vera
Fáfnismenn en em ekki búnir
að kynnast nógu mörgum til
þess að komast inn í grúbb-
una. Við erum að reyna að
fegra fmynd bifhjólamanna og
setjum við þeim það skilyrði
að þeir sýni virðingu í innan-
bæjarakstri vegna bama og
annarra". fáfnismenn buðu
Lögreglunni í Grindavík í
heimsókn um daginn í spjall
og hafa þeir myndað með sér
samstarf. „Við báðurn þá að
hafa samband við okkur ef
það em einhver vandamál
með bifhjól okkar innanbæjar
og tökum við hart á því f
félaginu".
Að sögn Jón Þórs fá nýliðar
að bera merkið mc Island á
bakinu en vildi hann taka það
fram að þótt merkið sé í
líkingu við það sem m.a.
vitisenglar nota þá megi alls
ekki bendla fáfnismenn að
nokkm leyti við þá. „Við
emm að reyna að skapa
bifhjólamönnum nýja ímynd
og viljum við alls ekki láta
tengja okkur við stríð
bifhjólamanna úti. Við höfum
fengið einhver skot á okkur
sem við eigum alls ekki skilið
enda emm við að mestu leyti
fjölskyldufólk. Ég er til
dæmis fjögurra bama faðir og
er konan mín Thodóra
Bragadóttir á kafi í þessu líka.
Annars gengi þetta ekki upp.
Við emm hjólandi út og suður
en þar sem ég er á frystitogara
verður hún lQdega að hjóla
meira í sumar en ég“, segir
Jón Þór með nokkuiri eftirsjá
í rómnum.
Nú eru ferðalög stór þáttur í
slíkum félagsskap eru ein-
hver á teikniborðinu í
suniar?
„Þriðju helgina í ágúst
munum við halda útisam-
komu er nefnist „Dagur
drekans" með tilvísun í merki
félagsins. Þá verður haldin
afmælishátíð í Stafholti og
munu einhverjir bifhjólamenn
koma hingað. Við fömm líka
á landsmót Sniglanna og
stefnum sjálfir á að fara á
Sprengisand á hjólunum í
fjölskylduferð. I mínu tilviki
fömm við á hjóli og bfl og
skiptumst við hjónin á því að
keyra. Þegar við komum á
áfangastað fá krakkamir
kannski að sitja á en þau tryll-
ast alveg þegar ntaður kveikir
á hjólunum, svo mikill er
spenningurinn".
En hvað er svona skemmti-
Iegt við það að vera á
mótorhjóli?
,frelsið“, segir Jón Þór með
áherslu. „það er frelsið númer
eitt, tvö og þrjú. Þú er úti að
hjóla og getur kúplað þig út
frá umheiminum og bara
verið þú, jámið kalt og vind-
urinrí'.
Viðtal: Dagný Gísladóttir
Myndir: Hilmar Bragi
8
Víkurfréttir