Víkurfréttir - 03.07.1997, Page 1
FRETTIR
27. TÖLUBLAD 18. ARGANGUR
FIMMTUDAGURINN 3. JULÍ 1997
°! % - &t ? C /
Tvær Concorde í Keílavík
Tvær Concorde farþegaþotur höfðu viðkomu í
Keflavík í síðustu viku. Þoturnar voru hér samtímis
með ferðalanga í ævintýraferð til íslands. Far-
þegarnir fóru í jeppasafarí um Reykjanesskagann.
Þoturnar tvær biðu hér í um 10 klukkustundir meðan
fólkið skemmti sér. VF-mynd: Páll Ketilsson
Haberg GK
strandaði
Háberg GK strandaði í innsigl-
ingunni til Þórshafnar í fyrrinótt.
Nótaskipið Jón Sigurðsson GK
kom Hábergi GK til hjálpar og
dró skipið af strandstað. Háberg
var á útleið eftir að hafa landað
fullfermi af loðnu á Þórshöfn.
Bæði skipin eru úr Grindavík.
Það er Sigluberg sem á skipin en
Jón Sigurðsson GK hefur verið
seldur til Færeyja, en afhending
hefur ekki farið fram ennþá.
Q
Q
-4
03
CD
—i
CD
Q
CD
O
r
Meistaraflokksliði Keflavíkur hefur gengið vel í knattspyrnunni á þessu sumri.
Nú síðast lögðu Keflavíkurstrákarnir Fram af velli í Coca Cola bikarnum og eru
komnir í átta liða úrslit. Leikurinn var spennandi og m.a. varði Ólafur
Gottskálksson markvörður Keflvíkinga vítapsyrnu í leiknum. Fyrir leikinn
slepptu stuðningsmenn 700 gasblöðrum á loft í tilefni af umræðu í fjölmiðlum
að nú færiKeflavikur„blaðran" að springa. VF-myndir: Páll Ketilsson
h-
m
cc
u_
K
co
cc
*
</3
Árás á nýársdagsmorgun:
Tveggja og hálfs árs fangelsi
Átján ára Keflvíkingur sem stakk 19
ára mann með dúkahnífi í heimahúsi
á nýársdagsmorgun var dæmdur í
2ja og hálfs árs fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjaness.
Piltamir vom í samkvæmi í húsi við
Faxabraut í Keflavík þegar at-
burðurinn átti sér stað. Deilur
upphófust milli þeirra tveggja sem
enduðu með því að annar þeirra
réðast að hinum með dúkahnífi og
skrúfjámi. Fékk sá sem ráðist var á
allmikla áverka á hendi og á fæti.
Gleðskapur hafði staðið yfir í íbúð-
inni alla nóttina og ölvun mikil.
Ákæruvaldið höfðaði mál gegn
þeim báðum. Annars vegar piltinum
sem ráðist var á en honum var gefið
að sök að hafa ráðist á hinn dæmda,
slegið hann og veitt honum áverka.
Var hann dæmdur til að greiða allan
kostnað af sínum þætti sakarinnar en
refsing að öðru leyti felld niður.
Árásarmanninum var hins vegar
gefið að sök að hafa lagt til hins
piltsins með dúkahnífi og skrúfjámi
þannig að af hlaust stórt sár á hægra
læri og hægri framhandlegg.
Héraðsdómur tók tillit til þess að
atlagan var gerð í mikilli reiði og
geðshræringu og því þótti skilyrði til
að færa refsinguna verulega niður.
„Eftir að við fengum bolina náðum við hámarks vinnuhraða", sögðu vinnu-
skólakrakkar í Keflavíl. þegar Ijósmyndara Víkurfrétta bar að. Sparisjóðurinn í
Keflavík gaf öllum vinnuskólakrökkum á Suðurnesjum boli og voru þau Jón H.
JúUusson, Elisabet Lára, Torfi Már Hreinsson og Tryggvi Ingason hress í bragði.
fqrir voxandi fölh
HSÞIRfilSJpftURINN
I KEFLAVIK