Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.1997, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 03.07.1997, Blaðsíða 14
Beinafundur við Kirkjuból Mannabein t'undust í fjörunni neðan við golfvöll þeirra Sandgerðinga í vikunni. Þetta eru bein úr gömlum kirkjugarði að Kirkjubóli. Að Kirkjubóli er forn kirkjugarður. Kirkja var komin þar um árið 1200 og vitað er um kirkju sem stóð þar árið 1570 og bænahús árið 1706. Kirkjugarðurinn frá miðöldum hefur mátt þola stórbrim og nú er svo komið að bein standa út úr fjöru- kambinum og hefur birmið tekið eitt- hvað af beinum. Petta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem bein fmnast á þessum slóðum því árið 1970 fundust mannabein á sama stað. Þjóðminjavörður segir tæplega ger- legt að stunda rannsóknir á þessum stað en sóknarpresturinn, Önundur Björnsson, vill að barðið verði varið fyrir ágangi sjávar. Beinin sem fundust verða afhent þjóðminjasafninu í dag. Leggur stendur út úr barðinu. Reynismenn neðstir Reynismenn hafa ekki enn unnið leik í 1. deildinni í knattspyrnu. A inánudags- kvöldið töpuðu þeir á heimavelli fyrir FH 1:2. Þeir eru ineð eitt stig og eru neðstir í deildinni. Víðir vann Víðismenn sigruðu Völs- unga í 2. deildinni í Garðin- um um sl. helgi 2:1. Þeir eru í 4. sæti deildarinnar með 10 stig. í 2. og 3. sæti eru liö KVA og HK með 13 stig. Selfoss er efst með 16 stig. hljarðvik í 2. sæti Njarðvíkingar hafa verið á góðri siglingu í 3. deildinni. Þeir sigruðu lið Afturelding- ar á föstudag ineð einu marki gegn engu og eru í 2. sæti B-riðils með 15 stig en Afturelding er með sama stigafjölda en lakari marka- tölu. Dúndur útsala hefst í dag. Opið laugardag til kl, 14 BARNAFATAVERSLUNIN LVIMGHOLT HAFNARGÖTU 37 - SÍMI 421 3131 Kirkja Njarðvíkurprestakall Ytri-Njarðvíkurkirkja Sunnudagur 6. júlí: Guðsþjónusta kl. 17:00. Bam borið til skímar. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjóm Steinars Guðmundssonar. Baldur Rafn Sigurðsson. Jesús Kristur er svarið Samkoma öll fimmtudagskvöld kl: 20:30. Allir velkomnir. A.T.H. breyttan samkomutíma yfir sumarmánuðina. Hvítasunnukirkjan Vegurinn Hafnargötu 84 Keflavík Suðurnesjamaraþon: 300 þátttakendur Um 300 manns tóku þátt í Suðurnesjamaraþoni sem luddiö var í fjóröa sinn sl. laugardag og er það aukn- ing frá árinu áður. Að hlaupinu stóðu IFA-K f.h. íþrótta- og ungmennafé- lagsins Keflavík. Aðal- styrktaraðili hlaupsins í ár var Sparisjóðurinn í Kefla- vík. Hlaupnar voru þrjár vega- lengdir eins og fyrr þ.e. 25 km Sandgerðishringur, I0 krn hlaup unt Keflavík og Njarðvík og 3,5 km skemmtiskokk um Kefla- vík. Þátttakendur voru 220 í skemmtiskokkinu, 61 í I0 knt hlaupinu og I2 í 25 km hlaupinu. Aðstæður til Itlaups voru góðar og að sögn aðstandenda hlaupsins tókst það mjög vel. ÍFA-K vill þakka öllum þeim sem störfuðu við hlaupið fyrir þeirra framlag en starfsfólk á hlaupadag voru u.þ.b 60 og þakka skipuleggjendur þeim hverju vel tókst til. Úrslit í Suðurnesja- maraþoni 1997 25 km Heildarúrslit karla Daníel Smári Guðmundsson . 1.29.25 Kristján Þór Guðfinnsson ... .1.43.50 Sigþór Kristinn Ágústsson ... 1.51.23 AÍdursfiokkur 17 til 39 ára Daníel Smári Guðmundsson . 1.29.25 Karlar 40 til 49 ára Sigþór Kristinn Ágústsson ... 1.52.23 Karlar 50 til 59 ára Gunnar Öm Guðmundsson . .2.26.04 10 km Hvildarúrslit karla Jón Jóhannesson............1.36.29 Daði Garðarsson............2.37.25 Dagur Bjöm Egonsson........3.38.12 Karlar Í7 til 39 ára Jón Jóhannesson............1.36.29 Karlar 40 til 49 ára Daði Garðarsson............1.37.25 Karlar 50 til 59 ára Sigurjón Marinósson .......1.47.16 Karlar 60 ára og eldri Jömndur Jónsson ...........1.57.26 Heildarúrslit kvenna Guðrún Snorradóttir........1.47.11 Helga Björk Ólafsdóttir....2.49.11 Valgerður Ester Jónsdóttir .. .3.49.45 Stúlkur 16 ára og vngri Jóhanna Marsibil Pálsdóttir .. 1.60.54 Konur 17 til 39ára Guðnin Snorradóttir........1.47.11 Konur 40 til 49 ára Valgerður Ester Jónsdóttir ... 1.49.45 Konur 50 til 59 ára Edda Björk Bogadóttir......1.58.38 Konur 60 ára og eldri Erla Sigurjónsdóttir ......1.91.03 14 V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.