Víkurfréttir - 03.07.1997, Blaðsíða 6
'mm
Fasteigiiaþjónusta
Suóurnesja hf.
Fasteigna-
og skipasala
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - sími 4213722 - fax 4213900
Lágmói 13, Njarðvík
FullbúiÖ 136 ferm. enda-
raðhús ásaml bílskúr. Góður
staður. 12.000.000.-
Birkiteigur 37, Kellavík
142 ferm. endaraðhús ásamt
39 ferm. bílskúr.
10.100.000.-
Heiðarvegur 12, Keílavík
Um 200 ferm. íbúð á tveimur
hæðum í tvíb. ásamt bílskúr.
Nýtt þak. 8.000.000.-
Miðtún 2, Sandgerði
Um 185 ferm. nýlegt einbýli
ásamt 30 ferm. bílskúr. Sól-
stol'a, gott útsýni. Nánari
upplýsingar á skrifstofu.
Suðurgata 45, Keflavík
4ra herb. einbýli á tveimur
hæðum. Klætt með stáli og
nýju þakjámi. 5.700.000,-
Háseyla 9, Njarðvík
Glæsilegt 152 ferm. einbýli
ásamt 46 ferm. bílskúr. Arinn
í stofu og 4 rúmgóðum
svefnherb. 13.000.000.-
Kirkjubraut 10. Njarðvík
120 ferm. einbýli ásamt 50
ferm. bílskúr. 4 stór svefnher-
bergi. 8.500.000.-
Vallargata 37, Sandgerði
141 ferm. einbýli ásamt full-
búnum 38 ferm. bílskúr. Mj-
ög góður staður. 9.500.000,-
Kirkjuvegur 15, Kellavík
Mjög góð 4ra Iterb. íbúð á
efri hæð í tvíb. ásamt bílskúr.
Sérsmíðaðar innréttingar.
9.200.000.-
Mávabraut 9, Keflavík
111 ferm. íbúð á jarðhæð
0101, 4 svefnherb. Hagst.
áhvíl. Skipti mögul. á minni
eign. Lítil útb. ' 5.700.000,-
STURLAUGS OLAFSSONAR
Úða gegn roðamaur og
óþrifum á plöntum.
Eyði illgresi úr
grasflötum. Eyði gróðri
úr stéttum og innlteyrslum.
Leiðandi þjónusta.
Upplýsingar í símum
421-2794 og 893-7145
SAMDÆGURS
k )N-a rj-z>£F ÓSKAÐ ER...
Tvöföldun Reykjanes-
brautar tímabær
Fyrsta hraðbrautin á íslandi segir Morgunblaðið.
Suðurnesjamenn þurfa að velta fyrir sér möguleikanum
á vegatolli segir Kristján Pálsson alþingismaður.
Tvöföldun Revkjanesbraut-
arinnar hefur lengi verið
baráttumál Suðurnesja-
inanna og í Reykjavíkur-
bréfi Morgunblaðsins um
þar síðustu helgi segir tn.a.
að slík framkvæmd sé orðin
nauðsynleg og yrði
Reykjanesbrautin þar með
orðin fvrsta hraðbrautin á
Islandi þar sem hægt væri
að auka hámarksltraða í
110 kin á klst.
„Líklega hefur lagning
Reykjanesbrautar verið ein-
hver ódýrasta vegagerð, sem
íslendingar hafa lagt í og
hefur það fjánnagn sem til
vegarins fór margskilað sér
bæði í meira öryggi sem og
minna sliti á bflum og þá ekki
sízt vegna lítils sem einskins
viðhalds", segir að auki í
Reykjavíkurbréfi. Þar er einn-
ig fjallað um lágan viðhalds-
kostnað á brautinni en ekki
þurfti að leggja á hana slitlag í
30 ár.
Þingmenn Reykjaneskjör-
dæmis lögðu fram fyrir
Alþingi þingsályktunartillögu
um tvöföldun Reykjanes-
brautarinnar í sjöunda sinn en
hlaut hún ekki afgreiðslu.
Verður hún því lögð fram að
nýju á næsta þingi.
Kristján Pálsson alþingis-
maður sagði það mikilvægt að
SSS hafi lýst því yftr á síðsta
aðalfundi að tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar hefði
forgang.
Nauðsynlegt að gera
KOSTNAÐARÁÆTLUN UM
ERAMKVÆMDINA
„Eg tel nauðsynlegt að kostn-
aðaráætlun verði gerð um
þessa framkvæmd en það
hefur aldrei verið gert þar sem
forsendur hefur skort. Við
afgreiðslu síðustu fjárlaga á
Alþingi lagði ég til að slík
áætlun yrði gerð enda verður
að byrja á að hanna brautina
til þess að við vitum um hvað
við emm að biðja. Við þurfum
að velta fyrir okkur legu
brautarinnar. A hún að liggja
meðfram núverandi braut eða
allt aðra leið fyrir ofan
Hafnafjörð. Nú em t.d. tölu-
verðar deilur um það í
Hafnafirði hvar Reykjanes-
brautin eigi að liggja í gegn-
um bæinn. Mér líst mjög illa á
það hvernig sú umræða er að
þróast en verið er að ræða unr
ofanbyggðaveg sem liggur
austan fyrir Hafnafjörð í
tengslum við Suðurstrandar-
veg sem liggur frá Grindavík
til Þorlákshafnar. Mér finnst
það slæmt mál ef það á að
draga jrennan veg langt austur
og torvelda í raun leiðina
suður eftir. Bæði lengja hana
og gera hana eifiðari. Mér
finnst ekki koma til greina
annað en að Reykjanesbrautin
liggi eins og hún hefur gert. í
gegnum Hafnafjörð og áfram
í gegnum Garðabæ og
Kópavog“.
Tvöföldun Reykjanes-
BRAUTARINNAR EKKIINNI
Á VEGAÁÆTLUN
Tvöföldun Reykjanesbraut-
arinnar er ekki inni á vega-
áætlun sem gerð hefur verið
til tveggja ára og að sögn
Jónasar Snæbjömssonar
umdæmisstjóra Vegagerð-
arinnar í Reykjanesi er megin-
niðurstaða kannana sú að ekki
er talin ástæða til þess að tvö-
falda brautina fyrr en fjöldi
bfla er kominn yfir 12 til 15
þúsund. I dag fara um 5 til 6
þúsund bflar um Reykjanes-
braut og hefur sú umferð ekki
aukist að marki undanfarin ár
en þó sagði Jónas það raska
aðeins jressum tölum að
unrferð væri mikil á álags-
tímum.
Djúp hjólför eru nú á braut-
inni á köflum og mun
Vegagerðin malbika þar í
sumar en jafnframt er beðið
eftir niðurstöðum tilraunar
sem gerð var á mismunandi
slitlögum á brautina fyrir
þremur ámm síðan.
Kristján Pálsson sagði það rétt
að umferðin væri ekki
nægjanlega mikil miðað við
erlenda staðla.
„Eg held að við búum við allt
aðrar aðstæður hér veðurfars-
lega heldur en erlendis og
staðlar sem koma þaðan eiga
ekki við hjá okkur. Við sem
förum þessa braut sjáum hvað
|retta er oft erfiður akstur.
Vegagerðamenn vildu aldrei
samþykkja lýsingu brautar-
innar og töldu hana skapa
slysahættu. Nú benda fyrstu
tölur til þess að slysum hafi
fækkað um helming við til-
komu lýsingarinnar og höfum
við aukið öryggi brautarinnar
gríðarlega mikið“.
Lágt vegagjald nauðsyn-
LEGT TIL ÞESS AD SKRIÐUR
KOMIST Á MÁLIÐ
Kristján sagði eifiðlega hafa
gengið að finna tjármagn til
framkvæmdarinnar sem hann
telur ntjög hagvæma. Því telur
hann mögulegt að verktakar
fari út í framkvæmdina á eigin
reikning eins og rætt hefur
verið um vegna tvöföldunar
Reykjanesbrautarinnar frá
Breiðholti og í gegnum
Hafnatjörð sem sfðán verði
greitt til baka með framlögum
af vegaáætlun.
Það er mat Kristjáns að lágt
vegagjald sé nauðsynlegt til
þess að skriður komist á
málið.
„Eg tel mikilvægt að
Suðumesjamenn velti því
fyrir sér og loki ekki á þessa
tvöföldun bara vegna þess að
menn yilji ekki ræða eitthvað
gjald. Ég held að fólk sé
meðvitaðra en áður um að slík
vegagjöld tíðkast víða
erlendis auk þess sem slíkt
gjald yrði aldrei liátt því
umferðin um veginn er
mikil“.
Að mati Kristjáns er margt
senr mælir með því að þessi
framkvæmd komist á eitthvert
skrið og nefnir hann hugsan-
legan spamað þar sem hægt
væri að leggja niður
Reykjavíkurllugvöll og flytja
allt innanlands-, millilanda-,
og ferjuflug suður eftir og
nýta þar með betur tjárfestin-
gar þar. „Ein forsenda jress er
tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar og
hækkun á hámarkshraða
þannig að það taki aðeins
hálftíma að keyra inn í miðbæ
Reykjavfkur".
Að sögn Kristjáns verður
unnið í málinu þangað til að
niðurstaða er fenginn. „Ég tel
víst að Suðumesjamenn munu
sjá tvöfalda Reykjanesbraut
fyrr ef verktakaleiðin er farin
og menn sætta sig við að
greiða ákveðið lágmarksgjald.
Suðumesjamenn verða að
gera það upp við sig. Annars
gætum við þurft að bíða í
langan tíma“.
6
Víkurfréttir