Víkurfréttir - 03.07.1997, Page 3
Aðalfundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja:
Minni bnennslutekjup frá sveitarfélögum
Aðalfundur Sorpevðingar-
stöðvar Suðurnesja var
haldinn nýverið.
Samkvæmt rekstrarreikningum
var tap S.S. á árinu kr.
7.021.154 sem stafar m.a. af
minni brennslutekjum frá
sveitarfélögunum og hækkun
launakostnaðar vegna veikinda
og slysa. Eigið fé er kr.
74.991.236.
Rekstrarkostnaður hefur
lækkað verulega milli áranna
1992 til 1996 en var það talið
áhyggjuefni að allar fjárfestin-
gar kölluðu á lánsfé.
Lagt var til á árinu við sveitar-
stjórnirar að breyta sorphirðu
þannig að notaðar yrðu plast-
tunnur í stað poka en brýnasta
verkefni stöðvarinnar er bygg-
ing nýrrar brennslulínu og mót-
tökuhúss við stöðina.
Sorpeyðingarstöðin tók á móti
16.140 tonnum af sorpi á árinu
sem er aukning frá árinu áður.
Til brennslu fóru 10.400 tonn
sem er svipað og frá fyrra ári.
Um 130 til 140 tonn af pappír
safnaðist á árinu og kom fram
að endurvinnsla á netum var
nokkur. Önnur flokkun hefur
verið látin bíða þar til reynsla
hefur komið á slíka endur-
vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
Breytingar á sorphirðukerfi
S.S. vekja efasemdir
-Plasttunnum fylgir aukin eldhætta segir Slökkviliðsstjóri B.S.
Ýmsar efasemdir eru nú á
lofti varðandi tillögu
Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja um breytingar á
sorphirðukerfi á Suður-
nesjum þannig að notaðar
verði plasttunnur í stað
plastpoka en ákvörðun um
breytinguna verður líklega
tekin næsta haust.
Sigmundur Eyþórsson slökk-
viliðsstjóri Brunavama Suð-
umesja hefur sent Sambandi
sveitarfélaga á Suðumesjum
bréf þar sem hann bendir á
ýmsa ókosti sem fylgja
notkun á plasttunnum m.a.
eldhættu en að hans sögn
hefur reynslan sýnt að brunar
eru tíðir í sorpílátum og
sorpgeymslum á Islandi en á
síðasta ári fengu Brunavarnir
Suðurnesja þrjár slíkar til-
kynningar.
Plasttunnunum fylgir meiri
eldhætta þar sem þær brenna
og myndast mikill svartur
reykur við bmnann. Sorpílátin
eru 240 lítra, 13 - 17 kg að
þyngd og gerð úr polyethylen.
Segir m.a. f bréfi Sigmundar
„Undirritaður leggur áherslu á
að við breytingar á sor-
phirðukerfi ber að hafa í huga
hvort plastruslatunnur passi í
þar til gerðar sorpgeymslur
einbýlis- og fjölbýlishúsa sem
nú þegar eru fyrir hendi á
svæði Brunavarna Suður-
nesja. Þar sem plastrusla-
tunnur passa ekki í sorp-
geymslur er hætta á að
staðsetning þeirra utanhúss
valdi útbreyðslu elds ef
ákvæði byggingar- og bruna-
málareglugerðar er ekki höfð í
fyrirrúmi’'.
Samkvæmt ákvæðum bygg-
ingar- og brunamálareglu-
gerðar skulu plastsorpílát ekki
standa nær timburvegg en 3 m
en 2 m sé veggurinn járn-
klæddur eða með yfirborði.
Fjarlægðin skal þó aldrei vera
minni en 5 m sé mælt lóðrétt.
Séu sorpílátin fleiri en 10 skal
hafa þau í óbrennanlegum
skýlum sem opnast frá hús-
inu. Sorpgeymslur með plast-
tunnur skulu vera í samræmi
við ákvæði byggingar- og
bmnamálareglugerðar.
Á fundi bæjarstjómar Reykja-
nesbæjar sl. þriðjudag kom
frarn í máli minnihlutans að
fleiri ókostir gætu fylgt
breytingunni en kostir og kom
fram í máli bæjarfulltrúanna
Kristjáns Gunnarssonar og
Ólafs Thordersen að kanna
þyrfti málið ofan í kjölinn.
Skipasmíðastöð Njarðvíkur:
Byggir skipakví
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar
hefur samþykkt umsókn
Skipasmíðastöðvar Njarð-
víkur um að byggja skipakvf
úr stáli að Sjávargötu 6. Stærð
hússins er 50.900.1 rúmmetr-
ar að flatarmáli og greiðir
Skipasmíðastöðin kr.
8.004.717 í gatnagerðargjald.
Byggingarleyfisgjald er kr.
1.221.602.
Við afgreiðslu málsins í bygg-
ingamefnd óskaði eldvarna-
eftirlit Bmnavama Suðumesja
að eftirfarandi yrði fært til
bókar. „Eldvarnaeftirlit
Brunavarna Suðurnesja vill
benda rekstraraðilum B.S. á
að slökkviliðið hefur ekki
tiltækan búnað sem þarf til að
fást við eld í húsum sem em
30 metrar á hæð. Nauðsynlegt
er að fara að huga að kaupum
á körfubíl. þar sem verið er að
samþykkja byggingar sem em
um og yfir 30 metrar á hæð“.
® ® Slropie
sS&o
Simpie
Maliiurí»in|
Shampoo
fOfrlHW
kynning í
Apóteki Suðurnesja
föstudaginn 4. júlí
kl 14:00 til 18:00
Kynningarafsláttur.
Hringbraut 99 Keflavík - sími 421 6565
Víkurfréttir
3