Víkurfréttir - 04.09.1997, Side 4
VIKUR
FRÉTTIR
Við erum til húsa
á efri hæð
Sparísjóðsins
Grundarvegi 23
Auglýsingar
421 4717
Faxmímer
4212777
Ritstjóm
4214717
Við þurfum þinn stuðning
Föstudaginn 5. september n.k. verður
haldin styrktarsamkoma til stuðnings
Erni Kjærnested og fjölskyldu.
Öm hefur barist hetjulegri baráttu við
krabbamein sl. 3 ár. Fyrir u.þ.b. sex árum
fann hann fyrst fyrir meininu en þrjú ár
liðu þar til læknir hans komst að réttri nið-
urstöðu varðandi meinið.
Fyrir um tveimur árum fékk hann þann úr-
skurð hjá læknum að líklega væri ekkert
hægt fyrir hann að gera þar sem meinið
væri komið í lifrina. Öm neitaði að gefast
upp og fór í óhefðbundna læknismeðfer
erlendis sem hefur haft í för með sér mik-
inn kostnað fyrir tjölskylduna.
Ut á jtessa meðferð fást ekki greiðslur úr
sjúkrasamlagi og hefur fjölskyldan þurft
að fjármagna jsetta sjálf og þurft að treysta
á fjárstuðning frá ættingjum, vinum og
samstarfsmönnum.
til að létta undir með fjölskyldunni hafa
nokkrir vinir undirbúið styrktarsamkomu
sem haldin verður á veitingahúsinu Staðn-
uni í Keflavík sem lætur húsið í té ásamt
starfsliði og hljómsveit endurgjaldslaust.
Skemmtiatriði kvöldsins verða eftirfar-
andi: Bubbi Morthens, félagar úr karate-
deild Keflavíkur, Kór Keflavíkurkirkju
undir stjóm Einars Amar Einarssonar sem
jafnffamt er kynnir kvöldsins. Allir jrcssir
aðilar gefa sína vinnu jretta kvöld. I boði
hússins leikur síðan hljómsveitin POPP-
ERS fyrir dansi.
Veglegt styrktarhappdrætti verður með
vinningum frá fyrirtækjum á Suðumesjum
og höfuðborgarsvæðinu. Aðgöngumiða-
verð er kr. 1000 sem rennur óskipt ásamt
innkomu af happdrætti til tjölskyidu Am-
ar.
Einstaklingum og forsvarsmönnum fyrir-
tækja er bent á að forsala aðgöngumiða er
á fimmtudagskvöldið 4. september frá kl.
19 - 24 á Staðnum. Þá er einnig á sama
tíma tekið á móti frjálsum framlögum í
símurn 421 -3421 og 421 -3494.
Þeim sem vilja styrkja fjölskylduna er bent
á bankabók í Islandsbankanunt í Keflavík
nr. 0542-14606060.
Húsið opnar kl. 21.00 og hefst dagskrá
stundvíslega kl. 22.00.
MeS fyrirfram þakk
StuBiiingsliópur Ö.K.
*
SUZUKI
Cm_u ifi [yjikar I sýní«Ul'j|!/';"
SUsalBi^krínglunnar
tengivegir slysagildrur
Nýtt hringtorg við Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur reynst mikil
slysagildra vegna slælegra vinnubragða Vegagerðar ríkisins.
Merkingar vantar og hafa þó nokkrir bílar ekið þvert yfir hring-
torgið. Nýr Sandgerðisvegur virðist einnig varhugaverður og
jregar hafa orðið þar tvær bílveltur í vikunni.
Allar merkingar vantar við hringtorgið sem var tekið í notkun í
sumar en mikil umferð fer um Reykjanesbrautina í átt að flug-
stöðinni. Sumir ökumenn hafa ekki áttað sig á breytingunni og
keyrt þvert yfir hringtorgið.
Hið sama má segja um nýjan Sandgerðisveg sem tengist hring-
torginu en þar urðu tvær bfiveltur á sama stað í vikunni. Vegur-
inn er ekki lýstur og að auki vantar vegamerkingar þannig að
hann er biksvartur jregar að skyggja tekur.
Víkurfréttir reyndu ítrekað að ná sambandi við Jónas Snæ-
bjömsson hjá Vegagerðinni vegna málsins án árangurs.
Stjóm Hafnarsamlags Suður-
nesja samþykkti á fundi sín-
um þann 24. júlí sl. að ræða
við tryggingaifélag hafnarinn-
ar vegna tjóns sem varð á
gámaskipinu Hansewall sem
tók niðri við bauju í Njarðvík-
urhöfn þann 16. júnís.l.
Skipið tafðist vegna þessa um
3 vikur en gert var við það í
Hamborg. Hefur útgerðin sent
Hafnarsamlaginu bréf þar
sem það leitar upplýsinga og
kemur þar fram að hún áskili
sér rétt til þess að krefja höfn-
ina bóta.
Að sögn Péturs Jóhannssonar
hafnarstjóra mun stjórnin
ræða við tryggingarfélag
hafnarinnar um viðbrögð ef til
bótakrafna kæmi. Þó taldi
hann höfnina ekki vera bóta-
skylda.
,Astæða jress að skipið tekur
niður er sú að ekki var nægj-
anlegt flot þegar það fór út.
Það er ýmislegt sem þar kem-
ur til m.a. seinkaði brottför
skipsins aðeins auk þess sem
fjaran var á undan áætlun.
Nokkrar skemmdir urðu á
botni skipsins en við höfum
ekki fengið nákvæmar upp-
lýsingar um skemmdirnar
sem búið er að gera við“.
MIKIÐ AF VARGFUGU
Mikið hefur borið á vargi á Suðumesjum að
undanfömu og hafði bæjarbúi samband við
blaðið og benti á að óvenjuntikið væri af
Svartbaki þar sem stór hluti unga hafi komist
á legg. Hann taldi að rekja mætti fjölgunina til
þess að fuglarnir kæmust einhversstaðar í
fiskúrgang og þyrfti að koma í veg fyrir það.
Jafnframt sagði hann að Skúmurinn sem er
mikilil vágestur væri að festa sig í sessi á Suð-
umesjum.
Mikið hefur borið á vargi á Miðnesheiði en
mikil lægð var í stofninum fyrir ári síðan.
Hjá Snorra P. Snorrasyni hjá Heilbrigðiseftir-
liti Suðumesja fengust þau svör að stofnstærð
varga væri hvorki minni né stærri en undan-
farin ár. Hann sagði helstu leiðir til úrbóta
vera að koma í veg fyrir að fuglinn komist í
æti eins og fiskúrgang og væri þeim tilmælum
beint til fiskverkannda að svo væri gert.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar íhugar nú að-
gerðir gegn varginum.
Diskar úr
kartöflumjöli
Stefnt er að samstarfsverkefni
við erlenda aðila um fram-
leiðslu a diskum úr kartöflu-
mjöli. Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofa Reykjanesbæj-
ar hefur að undanfömu verið í
samstarfi við aðila sem stefna
að þvi að reisa verksmiðju á
suðumesjum til að framleiða
ofangreinda diska og hafa að-
ilar á Suðumesjum lýst áhuga
á verkefninu.
Gámaskipið Hansewall tekur niðri
við Njarðvíkurhöfn:
Nýtt hpingtorg og
Halnarsamlag Suður-
nesja þarf hugsanlega
aö greiða skaðabætur
-skipið tafðist um 3 vikur
4
Víkurfréttir