Víkurfréttir - 25.09.1997, Síða 4
Annað bindi Sögu Keflavíkur komið út
Mavík um
Annað bindi Sögu Keflavík-
ur eftir Bjarna Guðmarsson
kemur út hinn 1. október
n.k.
f bókinni er þráðurinn rakinn
frá því um 1890 og allar götur
til ársins 1920 þegar H.P.
Duus selur eignir sínar þar
syðra og selstöðuöldinni lýkur.
Meðal efhisþátta í Sögu Kefla-
víkur 1890-1920 eru heimilis-
þættir, samgöngur við um-
heiminn, félagslíf og skemmt-
anir og íbúaþróun. Sagt er frá
húsbyggingum í kauptúninu,
alþýðuhögum og atvinnulífi,
breytingum á verslunarháttum
og vélvæðingu í sjávar-
útvegi svo nokkuð sé
nefnt. Getið er helstu
kaupmanna, forkólfa
útgerðar í Keflavík,
lækna og presta. Þá
koma við söguna
krakkar á skólabekk,
sprúttarar og gút-
templarar í amstri
sínu, tónlistarmenn
og áhugaleikarar,
bmnaliðsmenn og símastúlkur
og raunar margir fleiri.
Sögunefnd í samvinnu við
menningamefnd eldri borgara
stendur fyrir kynningu á bók-
í Selinu, Vallarbraut 4 á út-
gáfudegi bókarinnar 1. októ-
ber kl. 20.30. Skemmtunin er
öllum opin.
Hafnargötu30
(Tjarnargötumegin)
230Keflavík
sími 421 3555
W£> BJÓOUM:
/Xlhlioa fatahreiimsuim
Gufupressuim
/Xlhlida pvottapjóimustu
Dúkaleigu
ÍSLEIMSKA GÆDA PJÓIMUSTU
gyffjtUJUB/! OG SffWS®
HgHHj£jSlMÍlCAf
Forsala á
bikarinn
Forsala aðgöngumiða á
bikarúrslitaleik Keflavíkur
og ÍBV sem fram fer 5.
október hefst á morgun
föstudag í K-video við
Hringbraut. Auk aðgöngu-
miða verða þar seldir ýmsir
minjagripir, eins og fánar,
húfur og fleira. Keflvíkingar
og stuðningsmenn Kefla-
víkur em hvattir til að
tryggja sér miða í forsölu.
Skemmdarverk unnin á Sólarvéinu
Keflavíkurkirkja var tekin í
notkun sl. sunnudag eftir gagn-
gerar endurbætur þar sem
byggt var nýtt anddyri við
kirkjuna.
Að sögn Birgis Guðnasonar for-
manns byggingarnefndar
Keflavíkurkirkju er mikil hag-
ræðing fúlgin í nýju anddvri og
býður það upp á aukiö rými
fyrir meðlimi kirkjukórsins. Eir
hefur verið sett á þak viðbygg-
ingarinnar en það veröur sett á
allt þak kirkjunnar í framtíð-
inni og hluta safnaðar-
heimilisins.
Á næstunni veröur gerð kostn-
aðaráætlun yfir framkvæmdir á
þaki kirkjunnar. Skemmdir á
því hafa komið í Ijós og taldi
Birgir að framkvæmdir gætu
jafnvel hafist á næsta ári.
Bygging safnaðarheimilis geng-
ur nokkuð á eftir áætlun.
158 km hraða á Grindavíkirogi
Sjö ökumenn vom teknir fyrir
of hraðan akstur hjá
lögreglunni í Grindavík í
vikunni. Þar af var einn svipt-
ur ökuleyfi á staðnum en
hann var á 158 km hraða á
Grindavíkurvegi þar sem
hámarkshraði er 90 km. Einn
ökumaður var tekinn fyrir
ölvun við akstur.
Skemmdarverk hafa verið unnin á Sólarvéinu í Grindavík þar
sem rifin var niður hleðsla. Tjónið er verulegt og óskar
lögreglan í Grindavík eftir vitnum.
Neyðarblys á ælingu
Lögreglunni í Grindavík barst
tilkynning um neyðarblys rétt
fyrir þrjú aðfaranótt föstu-
dagsins 5. september sl.
í ljós kom að þarna voru
björgunarþyrlur vamarliðsins
á æfingu og hafði láðst að
tilkynna hana viðeigandi
yfirvöldum. Haft var sam-
band við tilkynningarskyld-
una og höfðu íslensk skip
hafið eftirgrennslan þegar í
Ijós kom að um æftngu var að
ræða.
4
Víkurfréttir