Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.09.1997, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 25.09.1997, Blaðsíða 14
Viðtalstímar forseta bæjarstjórnar eru á skrifstofu Reykjanesbæjar í Kjarna, Hafnargötu 57,2. hæð á þriðjudögum kl. 9-11. VARNARLIDIÐ Laust framtíðarstarf Viðskiptafræðingur-Gæðastjórnun Stjórnsýslustofnun Varnarlidsins óskar að ráða starfsmann í fast starf hjá stofnunni. Hjá stofnuninni starfa fjórir einstaklingar. Starfið felur í sér framkvæmd, um- sjón og eftirlit gæðastjórnunar, í deildum sjóhersins á Keflavíkur- flugvelli. Einnig er viðkomandi ætlað að fylgjast með framkvæmd á hinum margvíslegu reglugerðum sem í gildi eru hverju sinni, bæði á stjórnunar- og fjármálasviði. Starfsmanni er einnig ætlað að gera tillögur sem gætu leitt til umbóta auk þess að semja skýrslur á ensku. Menntun og reynsla: Æskileg menntun er endurskoðun eða viðskiptafræði auk mjög góðrar enskukunnáttu, bæði á talað mál og ritað. Þekking á íslensku launakerfi ásamt lögum og reglum er varða íslenskan launamarkað er nauðsynleg, ásamt notkun tölva og algengustu forrita fyrir Windows. Umsækjandi þarf að vera mjög nákvæmur, hafa góða skipulags- hæfileika og eiga auðvelt með að umgangast fólk, Samstarfsaðilar eru bæði Islendingar og Bandaríkjamenn. Lögð er áhersla á, að þetta starf hentar ekki síður konum en körlum. Þar sem starfið er mjög umfangs- mikið og krefjandi og hér að framan aðeins tekið fram það helsta, er nauðsynlegt að væntanlegir umsækj- endur lesi starfslýsingu sem liggur frammi hjá ráðningardeild varnarmálaskrifstofu að Brekkustíg 39, Njarðvík. Umsóknir skulu berast til ráðningardeildar varnarmálaskrif- stofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 421-1973, ekki síðar en þridjudaginn 30. september n.k. Öllum umsóknum verður svarað skriflega. ÍA LUJSW IUPERLA í GRINDAV! L5ZÍ Grindvikingar eru Reykjanesmeistarar Grindvíkingar tryggðu sér í fyrrakvöld Reykjanesmeist- aratitilinn í körfuknattleik í fyrsta sinn með sigri á Haukum 89-73 í Grindavík. Leikurinn var vel leikinn, sérstaklega af hálfu Grind- víkinga og var lítinn haust- brag að sjá á leik liðanna. Darryl Wilson, nýi Banda- ríkjamaðurinn í liði Grind- víkinga, fór á kostum í leiknum og skoraði 42 stig, þar af 29 í fyrri hálfleik. Konstantin Tzartsaris, hinn sautján ára 205 cm gríski inn- flytjandi Grindvíkinga, leik einnig vel og skoraði 15 stig, tók 9 fráköst og varði 3 skot. Annars var liðsheild Grind- víkinga sterk og full ástæða til bjartsýni í Grindavík þrátt fyrir miklar breytingar á liðsskipan frá fyrra ári. Sigfús Gizzurarson sem skor- aði 27 stig og Sherrick Simpson, 15 stig, voru bestir Hafnfirðinga að þessu sinni. Keflvíkingar luku síðan Reykjanesmótinu með sigri á grönnum sínum í Njarðvík 74-70 í Keflavík í gærkveldi. Leiksins verður ekki minnst og vonandi ekki endurtekinn næst þegar liðin mætast. Stigahæstir Keflvíkinga voru Chris Cameron, sem er víst kominn með annan fótinn í IBHCUIG REFUHMR Frá Leikfélagi Keflavíkur Nú lídur ad því að tekið verði í notkun nýtt og glæsilegt leikhús hér í bæ, sem hýsa mun starfsemi Leikfélags Keflavíkur. Einnig mun húsið ætlað undir aðra starfsemi af menningarlegum toga. Af því tilefni óskar L.K. eftir nafnatillögum á leikhúsið, sem berast eiga félaginu bréflega fyrir 2. október '97. F.h. stjórnar Leikfélags Keflavíkur Guðný Kristjánsdóttir formaður Pósthólf297, Keflavík. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, með 29 stig og Guðjón Skúla- sonmeðl8. Teitur Örlygsson skoraði 25 og Páll Kristinsson 19. Keflvíkingar enduðu í neðsta sæti mótsins, Njarðvíkingar í öðru sæti og Haukar í því þriðja. Islandsmótið í körfuknattleik hefst síðan með Meistara- keppni KKI á sunnudag. Fimmtudaginn 2. október hefst sfðan fyrsta umferð Islandsmótsins með leik Keflvíkinga og Njarðvíkinga í Keflavík. é> Q) 9 99 999 sMichelh 66,SO mín. * Sájitrfiarfráwjmr 'dKimni léinktlífj kvenna (hljóDriLinir) érólisk ttfjiteýmij 905-2000 14 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.