Víkurfréttir - 25.09.1997, Qupperneq 15
Meistarakarfa í Keflavík
Góðagerðaleikir í Meistara-
keppni KKÍ í karla og
kvennaflokki fara fram á
sunnudag í íþróttahúsi
Keflavíkur. Þá eigast við í
kvennaflokki lið Keflavíkur
og Grindavíkur og hefst sá
leikur kl. 18. í karlaflokki
mætast Keflvfkingar og KR
kl. 20.
Allur ágóði af innkomu leikj-
anna mun renna til Neistans,
styrktarfélags hjartveikra
bama.
Miðaverð á leikina er kr. 600
fyrir fullorðna og 300 fyrir
börn. Stuðningsmenn
Keflavíkur halda sætum
sínum niðri en þuifa að greiða
aðgangseyri.
Birgir Guðfinsson sem leikið
hefur með úrvalsdeildarliði
Keflavíkur í körfuknattleik hef-
ur tekið að sér þjálfun Selfyss-
inga sem leikur í 1. deild.
Birgir er fæddur og uppalinn í
Keflavík en bróðir hans, Magn-
ús, lék einnig um tíma með
Keflavíkurliðinu. Birgir hefur
hins vegar síðustu tvö árin leik-
ið með 1. deildarliði Leiknis í
Reykjavík.Birgir tekur við
þjálfun Selfyssinga af Gylfa
Þorkelssyni sem ásamt bróður
sínum, Hreini, léku með Kefla-
vík fyrir nokkmm ámm.
Keflvískir þjálfarar em víða og
nokkrir í DHL-deildinni , m.a.
þeir Hrannar Hólm, KR og
Einar Einarsson, Haukum.
Tveir í dnengja-
landsliöinu
Tveir Keflvíkingar eru í
drengjalandsliði íslands
sem tekur þátt í
Evrópukeppni landsliða en
riðillinn sem ísland leikur í
fer fram í Lettlandi 24.-28.
sept. nk. Þetta eru þeir
Omar Jóhannsson, mark-
vörður og Sævar Gunn-
arsson, útileikmaður. Liðin
sem leika í riðlinum eru
auk íslands, Lettland og
Pólland.
Fyrsti og eini
Reynissigurinn
Reynismenn unnu sinn
eina sigur í 1. deildinni í
knattspymu sl. helgi. Það
var gegn liði Dalvfkur í
Sandgerði. Heimamenn
skoruðu tvö mörk gegn
engu Dalvíkinga. Mörk
Reynis skoruðu Ólafur
Sævarsson og Marteinn
Guðjónsson. Sandgerð-
ingar misnotuðu fimmtu
vítaspymuna á tímabilinu
þegar Anthony Stissy
skaut í stöng.
flnnar Grinda-
víkur þjálfari
til KR?
Guðmundur Torfason
hefur verið orðaður við
þjálfun KR-liðsins í
Sjóvár-Almennra deildin-
ni í knattspyrnu sam-
kvæmt heimildum DV.
Blaðið segir forráðamen
KR vera búna að ræða við
Guðmund sem þjálfað
hefur lið Grindavíkur með
ágætum árangri sl. tvö ár.
Ef svo færi að Guð-
mundur tæki við KR-
liðinu yrði það í annað
sinn sem þjálfari UMFG
færi til liðsins. Forveri
Guðmundar. Lúkas Kostic
flutti sig frá Grindavík í
vesturbæinn. Þjálfunar-
staða KR lilýtur þó að
vera ein sú heitasta á Iand-
inu því ef menn skila ekki
árangri á þeim bænurn eru
þeir látnir fjúka eins og
Lúkas fékk að upplifa.
Birgir þjálfar á Selfossi
Keílvfskir körfuboltaþjálfarar vinsælir:
Leikmenn Keflvíkinga hafa slegið á létta strengi í sumarþó svo gengi þeirra hafi ekki verið upp á
marga fiska undanfarið. Eftir sex sigurleiki í röð hefur liðið aðeins sigraði einu sinni og náð
tveimur jafhteflum í síðustu ellefu leikjum en svona er knattspyrnan oft enginn dans á rósum.
Síðasta umferðin í Sjóvár-Almennra deildinni er á laugardaginn . Varla verður mikil spenna í loft-
inu því úrslit í henni hreyta engu um á toppi né hotninum. Eina hreyting getur orðið sœtaskipan í
miðri deild. A laugardag mœta Skagamenn til Keflavíkur en Grindvíkingar leika á Boigarnesi.
Suðurnesjaliðin eru í 6. og 7. sœti deildarinnar. Stœrsti leikur Keflavíkur í sumar verður hins
vegar 5. október en þá mœtir liði nýbökuðum Islandsmeisturum í síðari úrslitaleik bikarkeppn-
innar. Hvernig sem sá leikurfer hafa Keflvíkingar tiyggt sér sceti í Evrópukeppni hikarhafa að ári.
Fyrsti Kaninn fokinn
Fyrsti útlendi ieikmaðurinn i
íslenska körfuboltanum er
fokinn. Það vom Keflvíkingar
sem létu Chris Cameron taka
pokann sinn eftir leik þeirra
við Njarðvíkinga í gærkvöldi
í Keflavík.
Þrátt fyrir sigur hjá Keflavík í
leiknum þá dugði það
Cameron ekki sem þótti ekki
sýna þá getu sem til var
ætlast. Keflvíkingar vonast til
að fá nýjan leikmann fyrir
leikinn í meistarakeppninni á
sunnudaginn gegn KR.
Vilhjálmur bestur
Vilhjálmur Ingvaarsson sigr-
aði á opna Úrvals-Útsýnar-
mótinu í golfi sem fram fór á
Hólmsvelli í Leiru sl. sunnu-
dag. Vilhjálmur fékk 46 punk-
ta og fékk að launum golfferð
með ÚÚ til Spánar að laun-
um.
Utanbæjarmenn voru at-
kvæðamiklir í mótinu og hirtu
flest verðlaunin. í 2. sæti varð
Jónas Agústsson GSE með 41
punkt en síðan komu jafnir í
3.-6. sæti Jón Halldór Bergs-
son GKG, Grfmur Kolbeins-
son, GR, Svanþór Laxdal,
GKG og loks Keflvíkingurinn
Rúnar Georgsson, allir með
40 punkta.
leik með marki Þoraldar M.
Sigurbjörnssonar og sigur-
mark þeirra skoraði harðjaxl-
inn Gunnar Már Másson í
byrjun seinni hálfleiks. Grind-
víkingar mæta Skallagrfmi f
síðasta leik sínum f Borgar-
nesi á laugardag en Keflavík
fær IA í heimsókn í Keflavík.
Keflvflcingar byrjuðu leik sinn
gegn IBV ágætlega og þegar
5 mín. voru til leikhlés var
staðan 1:1. Sigurvin náði for-
Tveir Suðurnesjakylfingar
fóru holu í höggi nýlega. Þetta
eru þeir Jón Ólafur Jónsson
og Þorsteinn Geirharðsson,
báðir í Golfklúbbi Suður-
nesja.
Jón Ólafur sem ekki hafði far-
J ið holu í höggi áður vann af-
rekið á hinum nýja velli Golf-
klúbbs Reykjavíkur á
Korpúlsstöðum á 7. holu.
Hann notaði jám nr. 8. Þor-
steinn sem tvisvar áður hafði
farið holu í höggi, m.a. á 13.
holu á Hólmsvelli, „smellti"
boltanum ofan í á þeirri liolu
sl. fimmtudag.
Það var stigalaus helgi hjá
Suðurnesjaliðunum í Sjóvár-
Almennra deildinni í knatt-
spymu. Keflvíkingar sem enn
hafa ekki séð ljósið í seinni
umferð deildarinnar töpuðu í
Islandsmeistaraleik í Eyjum
en Grindvíkingar töpuðu 1:2
gegn Leiftri.
Grindvíkingar náðu forystu
gegn Ólafsfirðingum með
marki Óla Amar Bjamasonar
en gestimir jöfnuðu fyrir hálf-
ystu fyrir heimamenn en Jó-
hann B. Guðmundsson jafn-
aði 2 mín. síðar. Frá 41. til 48.
mín. skoruðu Islandsmeistar-
arnir sfðan þrjú mörk og
bættu svo því fimmta við rétt
fyrir leikslok. Lokatölur 5:1
fyrir Eyjamenn.
Ekki er hægt að segja að þess-
ar tölur f Eyjum haft verið eft-
ir gangi leiksins. Keflvíkingar
spiluðu oft ágætlega og voru
sterkari aðilinn stóran liluta af
fyrri hálfleik. Mörg tækifæri
litu dagsins ljós sem ekki
nýttust. „Þrjú markanna voru
slæm. Svo nýttum við ekki
færin okkar. Vonandi tekst
okkur að sýna lit í leiknum
gegn ÍA á laugardaginn. Við
liöfum ekki haft lukkudísimar
með okkur að undanförnu“,
sagði Gunnar Oddsson, annar
þjálfari Keflavíkurliðsins.
Tvær holur í höggí
Stigalaus helgi hjá
Suðurnesjaliðunum
Víkurfréttir
15