Víkurfréttir - 02.10.1997, Qupperneq 4
Poppminjasafn íslands opnar sýninguna
Bítlabærinn Keflavík á næstunni:
IBmujiuy mjíD
aö hunmvnd
eflfpamkvsmdn
eraoantnoio
-segir Rúnar Júlíusson sem hefur unnið
ötullega að söfnun gripa
FYRIR FJÖLSKYLDUNA í OKTÓBER
20% afsláttur af
strípum - litunum - permanenti
sléttunum og djúpnœringakúrum
Tilboð gilda frá mánudegi til
fimmtudags í október
Engar tímpantanir - Topp þjónusta -
Hresst starfsfólk. Láttu sjá þig.
Edilon
Túngötu 12 - Keílavík - Sími 421-2195
Klippið út auglýsinguna og geymið.
Poppminjasafn íslands opnar
sýninguna Bftlabærinn Kefla-
vík á næstunni á veitinga-
staðnum Glóðinni og hefur
verið unnið hörðum höndum
að undanförnu við söfnun
muna sem hljóta munu sinn
stað á safninu.
Hljómlistarmaðurinn Rúnar
Júlíusson er meðal þeirra sem
sitja í undirbúningsnefnd um
poppminjasafn Islands og
sagði hann fólk sýna sýning-
unni mikinn áhuga.
„Söfnunin gengur bara vel og
höfum við verið að fá allt sem
tengist músík. Þar má nefna
hljóðfæri eins og gítara og
hljófærabassa, föt, handskrif-
aða texta og nótur, plötu-
umslög, myndir, plaköt og
fleira“.
Hafa einhverjar óvæntar perl-
ur komið í ljós?
„Já, til dæmis fengum við
hvítan gítar sem Gunnar Þórð-
arson notaði í Hljómum og
fannst hann hjá leigubílstjóra.
Við höfum líka fengið gömul
segulbandstæki og gamlar
myndir. Ein þeirra er m.a. af
fyrstu uppákomu söngkon-
unnar Ellýar Vilhjálmsdóttur
svo það er ýmislegt sem kem-
ur í ljós“.
Sýningin opnar á veitinga-
staðnum Glóðinni laugardag-
inn 11. október og er áætlað
að hún standi fram á næsta ár
en poppminjasafnið hefur enn
ekki fengið fastan samastað.
Matseðill og drykkir á Glóð-
inni munu tengjast sýningunni
og geta gestir m.a. fengið sér
drykk sem nefndist ástarsæla
eða fyrsti kossin.
Að sögn Rúnars hefur hug-
myndin að slíku poppminja-
safni verið lengi að gerjast.
„Ég var eitt sinn formaður
nefndar innan tónlistarskól-
anna og vann ég þá nokkuð
með honum Kjartani Má
Kjartanssyni sem er skóla-
stjóri Tónlistarskólans í Kefla-
vík. Við vorum oft að ræða
þessa hugmynd en það er
ómögulegt að segja til um
hvaðan hún er fengin. Þetta er
ekkert voðalega „orginal“
hugmynd en það valt allt á því
að framkvæma hana. Það er
nefnilega enginn vandi að fá
góða hugmynd en fram-
kvæmdin er aðalatriðið".
4
V íkurfréttir