Víkurfréttir - 02.10.1997, Síða 15
Suðurnesin
embest
íkirfunri
Kvennalið UMFG og karla-
lið Keflavíkur voru krýnd
Meistarar meistaranna síð-
astliðinn sunnudag.
Grindvísku stúlkurnar
lögðu Keflvíkinga 59-58 í
spennandi leik og Kefl-
víkingar tóku KR-inga í
bakaríið 97-77.
Leikur kvennaliðanna var jafn
og spennandi og játuðu
Keflvfldngar sig ekki sigraða
fyrr en á síðasta sekúndubrot-
inu þegar Anna “goðsögn”
Sveinsdóttir lauk leiknum
með sveifluskoti frá miðju,
beint í. Bima Valgarðsdóttir,
Pennf Peppas og Svanhildur
Káradóttir fóru fyrir liði
meistaranna sem átti svar við
állum klækjum
Keflavíkurstúlkna að þessu
sinni. Erla Reynisdóttir, sem
varð fyrir meiðslum á
lokasprettinum, var best
Keflvíkinga og Anna María
átti frábæran sprett í seinni
hálfleik.
Karlalið Keflvíkinga virðist
hafa gert sér grein fyrir því að
þrátt fyrir slakt gengi í
Reykjanesmótinu væri
óviðeigandi að ftmmfaldir
meistarar síðastliðins árs yrðu
ekki Meistarar meistaranna.
Vopnaðir nýjum erlendum
leikmanni, Dana Dingle,
sýndu þeir Vesturbæingum
enga miskunn og unnu verð-
skuldað 97-77. Það væri illa
gert að hæla einum fyrir
annan því allir léku vel og
allir skomðu en ég ætla nú að
gera það samt því fyrirliðinn
Guðjón Skúlason lék best
allra bæði í vöm og sókn.
Stigahæstir Keflvíkinga vom
Guðjón með 27, Dingle 21 og
Kristján 15. Stigahæstir KR-
inga, sem fá lítið hrós fyrir
hugmyndaauðgi og þor, voru
Hermann með 21 og Ingvar
14.
„Kostas" kostar
iimm milljónir!
Gríska 4. deildarliðið Filippos
sem Konstantín Tzartsaris lék
með á síðustu leiktíð vill fá 5
milljónir frá Grindavík-
urliðinu fyrir piltinn. Að sögn
Grindvíkinga telja Grikkir sig
eiga “Kostas” til 19 ára
aldurs. Grindvíkingum hafa
leitað til FIBA, alþjóðasam-
taka körfuboltans, vegna
málsins en fengið þar lítinn
hljómgmnn. Telja þeir ástæð-
una vera að samtökunum sé
að mestu stjómað af “Júgó-
slövum” og Grikkjum. Takist
ekki að ná sanngjömu sam-
komulagi er allt útlit fyrir að
körfuknattleiksunnendur
missi af þessum stórefnilega
unglingi. Þykir undarlegt að
Bosmanreglan gildi ekki í
þessu tilviki því pilturinn er
ekki samningsbundinn Gríska
liðinu. Svo segja menn að
fólk í sjávarþorpum Islands sé
bundið átthagafjötmm.
Missi Grindvíkingar Konst-
antín minnka möguleikar
þeirra tölvuvert á titlum þetta
árið.
L
pepsi adidas
FYRSTISTÓRLEIKUR HAUSTSINS
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK
í ÍÞRÓTTAHÚSINU KEFLAVÍK
I KVÖLD KL- 20:00
REYKJANESBÆR
- íþrótlabœr!
Víkurfréttir
15