Víkurfréttir - 11.12.1997, Blaðsíða 31
Grindvíkingar fengu KR-inga í
heimsóknl 17-97. Helgi Jónas
Guðfinnsson er þessa dagana,
án nokkurs vafa, besti
körfuknattleiksmaður Islands
og spuming hvort hann hverfur
ekki á brott til landvinninga að
tímabilinu loknu því hann er
síst verri en þeir erlendu bak-
verðir sem hér leika. Vesturbæ-
ingar tefldu fram nýjum banda-
rískum bakverði, Jermaine
Smith, og lék hann ágætisvöm á
Helga í upphafi leiks en þess í
stað tók Grikkinn Costas nýju
stóm íslensku vonina, hinn efni-
lega Baldur Ólafssonfath. Bald-
ur er eldri en Costas) í nefið og
skoraði körfur í öllum regnbog-
ans litum, jafnt 3 stiga sem
troðslur. Um miðjan hálfleikinn
tók Hrannar Hólm Smith af
leikvelli fyrir Sigurð Jónsson.
Það var eins og við manninn
mælt, Helgi Jónas skoraði í
hverri sókn og gerði því sem
næst út um leikinn á fáeinum
mínútum. í hálfleik var staðan
þó 47-48 fyrir KR að mestu
leyti fyrir tilstilli Ingvars Onn-
arssonar sem lék langbest KR-
inga að þessu sinni. í síðari
hálfleik einbeitti Helgi sér að
því að leika Wilson uppi en
hann hafði aðeins skorað 2 stig í
fyrri hálfleik. Hermann Hauks
gafst loks upp í vörninni en
hann hafði gætt Wilsons vel í
fyrri hálfleik og stórskyttan
Wilson hrökk í gang, skaut
mikið og skoraði. Ekki er hægt
að gleyma hlut Costas en þessi
ungi strákur er einn áhugaverð-
asti leikmaður sem hér hefur
leikið. Endaði hann með 28 stig
og 26 fráköst og ófá varin skot.
Ótrúlegt að sjá leikmann upp á
207 cm rekja boltan afturábak
út fyrir þriggja stiga línuna og
Þann 2. ágúst voru gefin
saman í Kálfatjamarkirkju
af séra Ólafi Oddi Jónssyni,
brúðhjónin Anna K.
Friðriksdóttir og Þorleifur
Sigurþórsson, búsett í
Danmörku.
Ljósm. Oddgeir.
setja niður mjúka þriggja stiga
erfiðleikalaust. Gaman er alltaf
að sjá nýja erlenda bakverði
eins og KR-inginn Smith en
hann varð oft ráðvilltur á svip-
inn þegar Helgi Jónas var að
skjóta langt fyrir utan þriggja
stiga línuna. Stigahæstir grind-
vískra voru Wilson með 35,
Helgi 31 og Costas 28. Ójú þeir
voru fleiri en fór lítið fyrir
þeim. Smith með 25 og Ingvar
með 22 voru atkvæðamestir
Vesturbæinga.
Keflvíkingar í erfíðleikum
Þórsarar sýndu að þeir eiga enn
erindi í DHL-deildina. Liðið er
gjörbreytt eftir komu Banda-
ríkjamannsins Jesse Ratcliffs og
vonandi verður framhald á vem
þeirra í efstu deild. Keflvíkingar
reyndust þó ofjarlar þeirra að
þessu sinni þrátt fyrir að ein-
beitingin væri ekki eins þjálfar-
inn hefði viljað. Segja má að
Þórsarar hafi náð fram hefndum
gegn unglingunum í Keflavík-
urliðinu sem léku þá illa í bikar-
leiknum fyrir skömmu því þeir
drógu á í hvert skipti sem pilt-
unum var skipt inn á. Dingle og
Falur voru léku best Keflvík-
inga og voru jafnframt stiga-
hæstir með 28 og 27 stig. Lína
leiksins: Falur Harðars 27 stig,
5 fráköst, 5 stoðsendingar og 2
stolnir.
Damon of sterkur fyri UMFN
Njarðvíkingar sóttu Akurnes-
inga heim og töpuðu 80-75 í
spennandi og jöfnum leik.
Damon „Keflvíkingur" Johnson
átti stjömuleik fyrir Skagann og
hefúr vart leikið betur hérlendis.
Skoraði 44 af 80 stigum, tók 19
af 34 ffáköstum, átti 5 stoðsend-
ingar og stal knettinum jafrioft.
En tölum frekar um okkar
menn. Friðrik Rúnarsson, þjálf-
Þann 8. nóv. sl. voru gefin
saman í Askirkju, af sr.
Kristjáni Bjömssyni,
brúðhjónin Ragnhildur H.
Guðbrandsdóttir og Páll
Marcher Egonsson,
Rauðagerði 52, Reykjavík,
Ljósm. Oddgeir.
Anna María og Co. tóku
Grindavík í kennslustund.
ari, telfdi ffarn 16 ára nýliða Ör-
lygi Sturlusyni, Örlygssonar í
byrjunarlið í fyrsta skipti. Nýtti
„Ölli“ tækifærið stórvel og
sýndi að þar fer leikstjómandi
framtíðarinnar. Damon Johnson
tryggði IA sigurinn með því að
stela knettinum á lokasekúnd-
unum og troða honum hinum
megin með tilþrifum. Lína
leiksins: Nýliðinn Örlygur
Sturluson, 10 stig, 4 fráköst, 8
stoðsendingar og 3 stolnir boltar
auk heilmikils hugrekkis. Já, ég
er hlutdrægur. Yfírburðasigur
Keflvíkinga gegn meisturum
UMFG
Keflvíkingar yfirspiluðu Grind-
víkinga í seinni hálfleik og sigr-
uðu 78-63 í 1. deild kvenna.
Talsverð eftirvænting var fyrir
þennan leik enda montréttur
jólafrísins að veði. Keflvíkingar
léku án erlenda leikmannsins
Jennifer Boucek sem rifbreins-
brotnaði gegn KR og tekur jóla-
fríið snemnta. Fyrri hálfleikur
Þann 29. ágúst voru gefin
saman í Innri Njarðvík-
urkirkju af séra Baldri R.
Sigurðssyni, brúðhjónin
Anne Beumont og Brynjar
Sigmundsson, Brekkustíg
29b, Njarðvík.
Ljósm. Oddgeir.
var eins og kvennaboltinn gerist
bestur, skemmtileg tilþrif og
góð hittni beggja Iiða en Kefl-
víkingar leiddu í hálfleik 40-32.
Grindvískar sáu aldrei til sólar í
seinni hálfleik gegn ákveðnum
Keflvíkingum með Erlu Reynis
í fararbroddi. Grindvíkinga gátu
engan vegin hægt á henni og
skoraði hún jafnt úr langskotum
sem gegnumbrotum. Anna
María, Erla Þ. og Kristín Blönd-
al léku einnig vel. Meistaralið
Grindvíkinga virkaði þreytt,
þungstígar bæði í vöm og sókn
en best þeirra var Sandra Gun-
laugs sem þó lék lítið. Lína
leiksins: Erla Reynisdóttir 24
stig.
Atvinnumannataktar?
Eins og allir vita skiptu Marel
Guðlaugsson og Nökkvi Már
Jónsson úr Grindavík í KR fyrir
yfirstandandi tímabil. Nú herma
fregnir að Grindvíkingar séu að
fá sinn hlut pakkans þvi vam-
arpjakkurinn Óskar Kristjáns-
son, KR-ingur, mun vera á leið
til liðsins. Verður hann löglegur
í janúar. Þá hermir valvan að
Páll Axel sé jafnvel á heimleið
úr námi en „máske“ er hann
bara í jólafríi á Fróni.
Þann 13. sept. voru gefin
saman í Hvalsneskirkju af
séra Hirti Magna Jóhanns-
syni, brúðhjónin Ósk Bene-
diktsdóttir og Jóhannes A.
Sigvulduson, Eyjavöllum 8,
Keflavík. Börn heita Jóhanna,
Guðbjörg og Bryndís.
Ljósm. Nýmvnd .
Þann 25. október voru gefin
saman í Keflavíkurkirkju af
séra Ólafi O.Jónssyni, brúð-
hjónin Svanhildur Erla
Benediktsdóttir og G.
Hafsteinn Ögmundsson,
Nónvörðu 3, Keflavík..
Brúðarm. Emelía Hafsteins.
Ljósm. Nýmvnd.
Þann 27. sept. voru gefin
saman í Keflavíkurkirkju af
séra Sigfúsi B. Ingasyni.
brúðhjónin Hafdís Norð-
fjörð og Sigurður Sigurðs-
son, Hólmgarði 2a.
Keflavík,
Ljósm. Oddgeir.
Þann 30. ágúst voru gefin
saman í Innri Njarðvíkur-
kirkju, af séra Baldri Rafni
Sigurðssyni, brúðhjónin Sæ-
dís Hlöðversdóttir og Egg-
ert Karlvelsson, Smyrla-
hrauni 10, Hafnarfirði.
Ljósm. Nýmynd.