Víkurfréttir - 11.12.1997, Blaðsíða 12
♦ Inn við beinið
IÝ GÆLUDYRAVEl
Ný og glæsileg gæludýraverslun opnar
laugardaginn 13. desember kl. 10.
Höfum mikið úrval skrautfiska, einnig páfagaukar,
dísarfuglar, fínkur og hamstrar.
Gæðafóður og leikföng fyrir flest öll gæludýr.
Gleymum ekki gæludýrunum um jólinl
Verið velkomin í VATNAVERÖLD
Hafnargötu 35, niðri - Keflavík
♦4!
fefi'aZit*vt4c
- heitt á könnunni!
Við veitum 12 mán. greiðslukjör á
grafskreytingum (legsteinum) ef
panta er fyrir áramót.
Stórglæsileg vara - Ijósmyndir og
letur. Verð frá kr. 3.698 pr. mán.
Einnig sérhannaðir verðlaunagripir
með mynd af viðkomandi fyrir
íþróttafélög, fyrirtaeki og
einstaklinga. Panta verður
með 30 daga fyrirvara.
Framlciöum einnig styttur,
skúlptúra og fleira.
Pantanir og upplýsingar alla daga
í símum 421-6513,
421-6979 eða 898-6913.
RóttcehHngur
ntcd sterkum
íltaldsþáttum
Eiríkur Hermannsson skólamálastjóri Revkjaneshæjar stóð
auk annarra fyrir borgarafundi um skólamál í Reykjanes-
bæ nýverið þar sem í Ijós kom að Suðurnesjamenn þurfa að
taka sig á. Hann segist þó líta á stóðuna sem sóknarfæri. Ei-
ríkur er bæði söngmaður og veiöimaður og blustar m.a. á
Björk og íslensk sönglög í bland.
Nafn: Eiríkur Hermannsson.
Aldur: 46 ára ( bráðum 47).
Fjölskylduhagir: Kvæntur Oddnýju Harðardóttur og á dætum-
ar Ástu Björk 13 ára og Ingu Lilju 11 ára.
Átthagar: Keflavík, nánar tiltekið Hafnarsvæðið og Túnin.
Starf: Skólamálastjóri Reykjanesbæjar.
Bíll: Mitshubishi Lancer árgerð '93, fólksbíll.
Laun: Þokkaleg.
I uppáhaldi: Sunnudags-
morgnar með fjölskyldunni
og héraðsmót.
Besti matur: Grísakótelett-
ur í raspi á aðfangadag (að
hætti mömmu).
Besti drykkur: Malt og
appelsín við sama tæki-
færi.
Uppáhaldspersóna:
Fyrir utan konu og dætur
hafa foreldrar mínir ver-
ið mestu áhrifavaldam-
ir.en annars ýmsir góðir
menn.
Tónlist: Tónlistará-
hugi er mikill, allt ffá
Bítlum , Stónes og
Kinks til Bjarkar og
íslensk sönglög í bland.
Áhugamál: Knattspyrna, söngur með
Víkingum og silungsveiði með „Þremur fisknum og for-
manni" , lestur og útivist.
íþróttafélag: Keflavík og Víðir í kvennatlokki og Leeds Utd.
Gæludýrið: Hvolpurinn Virðisaukaskattur ( kallaður Vaskur).
Hvenær vaknar þú á morgnana: Rétt fyrir 7 alla daga.
Morgunmatur: Hafragrautur eða Cheerios hringir og lýsi.
Heimilisstörf: Geng í allt en sé yfirleitt um matreiðsluna.
Pólitíkin: Alltaf verið óflokksbundinn róttæklingur með sterk-
um íhaldsþáttum.
Það fyndnasta: Mummi bróðir.
Bókin á náttborðinu: Yfirleitt nokkrar en núna: Hressingar-
hælið eftir Montalban, Blackout eftir Lawton og Z eftir Vigdísi
Grímsdóttur.
Helsti veikleiki: Ég er sagður ráðríkur og kröfuharður við mína
nánustu.
Helsti kostur: Ég er sagður seigur og bjartsýnn.
Besta sumarfríið: Cala d'Or á Mallorka 1995.
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir stóra vinninginn í Lottó-
inu: Reyna að tryggja fjárhagslega framtíð dætra minna.
Fallegasti staður á Isiandi: Þingvellir að hausti og Veiðivötn
þegar vel veiðist.
Hvað er það fyrsta sem þarf að gera til úrbóta í skólamálum
á Suðurnesjum:
Það þarf að tryggja að starfsmenn skólanna séu sæmilega sáttir
við starf sitt og lífsafkomu og eins þarf að tryggja að hvert bam
fái námstilboð við sitt hæfi, bæði bókleg og verkleg, þannig að
þeir hæftleikar sem í hverjum búa fái að njóta sín. Síðast en ekki
síst þarf að stórefla tengslin á milli foreldra og skóla, einkum í
gegnum umsjónarkennara bekkja, þannig að námið sé raunveru-
legt samstarfsverkefni skóla og heimilis.
.. .óflokksbundinn róttœklingur
með sterkum íhaldsþáttum....
12
Víkurfréttir