Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 7
Skoðanakönnun um notkun almenningsvagna Reykjanesbæjar: Ánægðir eru fleiri en þeir sem nýta sér þjonustuna Meirihluti íbúa Reykja' nesbæjar eða 76,1% eru ánægðir með þjónustu almenn- ingsvagna Reykjanesbæjar en einungis 27,3% nýta sér þjónustuna. Þetta kemur firam í könnun sem Coopers & Lybrand - Hagvangur gerði fyrir Reykjanesbæ dagana 29. apríl - 4. maí sl. en alls svörð- uð 704. Spurt var: Notar þú eða ein- hver úr fjölskyldu þinni þjón- ustu almenningsvagna Reykjanesbæjar? Ertþú ánægður eða óánægður með þá þjónustu sem almennings- vagnar Reykjanesbæjar bjóða upp á? Rúm 36% að- spurðra sögðu einhvem í fjöl- skyidunni nota AVR enfólká aldrinum 30-49 ára sögðu helst að annað hvort þau sjálf eða einhver úr fjölskyldunni notuðu almenn- ingsvagnana en sá aldurshóp- ur er yfirleitt með böm á heimilinu. Þegar spurt var hvort viðkomandi væri ánægður eða óánægður með þjónustu AVR kemur í ljós að aldurshópurinn 30-49 ára er síður ánægt með þjónustuna en fólk í öðrum aldurshópum en ftetta er sá hópur sem notar helst þjónustuna. Þeir sem nota sjálfir almenningsvagna eða einhver úr fjölskyldunni vom almennt ánægðir með þá þjónustu sem þeir veita, þó vom karlar frekar ánægðari en konur. I könnuninni sögðu 3% nota almenningsvagnana sjálf, 27,3% segja aðra í fjölskyld- unni nýta sér þjónustuna, 6,0% notuðu almennings- vagnana ásamt öðrum í fjöl- skyldunni, 63,1% notfærðu sér ekki þjónustuna og 0,7% vom óákveðnir. Þeir sem sögðust óánægðir með þjónustu AVR vom 7,5%, 6,3% svömðu bæði og og 10,2% vom óákveðnir. Landsbankahlaupið Sandgerði: llnnu í 4. shipti Þessir knáu krakkar hafa unnið Landsbankahlaupið í Sandgerði fjögur ár í röð. Þau eru bæði 13 ára og heita Nína Osk Kristins- dóttir og Þór Ríkharðsson. VF-Mynd: A.G. Vélstjópnarnámskeiö fyrir smábátaeigendur í lok ágúst mun Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum halda annað námskeið í vél- stjóm fyrir sjómenn á bátum allt að 20 rúmlestum með aðalvél minni en 221 kw. I síðustu viku mátti sjá myndir í staðarblöðum frá afhendingu prófskírteina til sjómanna sem lokið höfðu slíku námskeiði sem var hið fyrsta sem haldið er á Suðumesjum. Námskeiðin eru haldin á vegum Miðstöðvar sfmennt- unar vegna nýrra ákvæða í lögum um að fyrrgreindur hópur sjómanna verði að sækja slfk námskeið. Vélskóli íslands hefur boðið þessi námskeið en biðlisti verið langur og færri komist að en vilja. Námskeiðið er haldið í vél- stjórnaraðstöðu Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Upplýs- ingar og skráning fer fram Dagsferð á Þingvöll Farin verður dagsferð á Þingvöll mánudaginn 29. júní n.k. ef næg þátttaka fæst. Lagt verður af stað kl. 13.00 frá SBK og kornið við í Hvammi, Hlévangi og Selinu. Ekin verður Nesjavallaleið á Þingvöll. Þar mun séra Heimir Steinsson staðar- haldari taka á móti fólkinu og fræða það um sögu staðarins. Kaffi verður drukkið í Val- höll. Síðan farið heim um Þrastaskóg og komið við í Hveragerði. Ferðin kostar u.þ.b. 1300 krónur. Skráning fer fram í Hvammi sími 421-4322, Selinu sími 421-6272 og SBK sími 421-5551. Forstöðumaður tómstundastarfs eldri borgara Jóhanna Arngrímsdóttir. mánudaginn 29. júní og þriðjudaginn 30. júní í síma 421-7500. I k . ‘ * Er fluttur Suðurgötu 24 kjallara Karl Olsen jr. Suðurgötu 24 - Keflavík - sími 421 2575 Atvinna - flakarar Vantar flakara í akkorðsvinnu. Upplýsingar í síma 422 7289 Atvinna r Oskum að ráða strfskraft á kassa 1/2 daginn frá kl. 13.00 í Njarðvík. Reynsla æskileg en ekki skilyrði. Ekki yngri en 18 ára. Viðkomandi þarfað geta hafið störf strax. Fyrri umsóknir óskast staðfestar. verslunarstjon Víkurfréttir 7

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.