Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 11
I Hitaveita Suðurnesja - orkuver 5: Lava með lægsta tilboð Boðin hefur verið út bygging stöðvarhúss, tengigangs og dropa- skiljuhúss vegna bygg- ingar orkuvers 5, að Svarts- engi. Lava h.f. átti lægsta tilboð í verkið, 262 milljónir króna sem er 67,7% af kostnaðará- ætlun. Feiri útboð eru í undirbúningi sem verða auglýst á næstunni. Þá hafa undanfarið staðið yfir viðræður milli forráðamanna Landsvirkjunar og Hitaveitu Suðurnesja um væntanlega raforkusölu. Sumarhátíö varnarliðsmanna Varnarliðsmenn halda ár- lega sumarhátíð sína með „karnival” sniði, laugardag- inn 27. júní n.k. Hátíðin fer fram í stóra flug- skýlinu næst vatnstanki vall- arins og gefst gestum kostur á að njóta þar fjölbreyttrar skemmtunar fyrir alla fjöl- skylduna frá kl. 11.00-17.00. Þátttaka í þrautum og leikjum og hressing af ýmsu tagi verð- ur á boðstólum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda. Fyrsta skip í hús í ágúst Framkvæmdir við nýtt skipaskýli Skipa- smíðastöðvar Njarðvíkur eru vel á veg komnar. Stefnt var að því að Ijúka klæðningu á húsinu í þessari viku. Stefán Sigurðsson hjá skipasmíðastöðinni sagði að ætlunin væri að taka inn skip í ágústmánuði. Húsið muni breyta miklu í rekstri íyrirtækisins yfir vetrarmánuðina. Þá muni það nýtast til málningarvinnu þegar langvarandi rigningar em. Verkefnastaða Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur er góð og nóg að gera þessa dagana. „Þú sérð það örugglega best á myndinni“, sagði Stefán í samtali við blaðamann Víkurfrétta. VF-MYND: Hilmar Bragi Fysti fundur nýkjörnar bæjarstjórnar Reykjanesbær: VF-MYND: pket -Skúli forseti bæjarstjórnar og Ellert bæjarstjóri Ellert Eiríksson var kjör- inn bæjarstjóri Reykja- nesbæjar á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjar- stjórnar sem hélt sinn fysta fund þriöjudaginn 9. júnísl. og var Skúli Skúlason Fram- sóknarflokki kjörinn forseti bæjarstjórnar. A fundinum lagöi meirihluti Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks fram málefnasamning sinn. Fyrsti varaforseti var kjörinn Kjartan Már Kjartansson Fram- sóknarflokki og Jónína A. Sanders Sjálfstæðisflokki var kjörin annar varaforseti. Þeir sem munu sitja sem aðalmenn í bæjarráði em Kjartan Már Kjartansson, Jónína Sanders, Björk Þorsteinsdóttir, Jóhann Geirdal og Kristmundur Ás- mundsson. Varamenn em Þor- steinn Erlingsson, Skúli Skúla- son, Þorsteinn Ámason, Krist- ján Jóhannsson og Ólafur Thordersen. Jafnframt sam- þykkti fundurinn breytingatil- lögur um stjóm Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjómar. Minnihluti sagði á fundinum það vera greinilegt á málefha- samningi meirihluta að ekki yrðu miklar breytingar í stjóm- un bæjarins og sagðist Jóhann Geirdal oddviti Bæjarmálafé- lags jafhaðar- og félagshyggju- fólks hafa vonast eftir meiri djörfung. Hann benti á að ýmsir þættir í máiefhasamningi væm ýmist bundnir í lögum eða þeg- ar samþykktir af fyrrverandi bæjarstjóm. Lagði minnihluti fram bókun vegna þessa þar sem sagði m.a.: „Þrátt fyrir óhagstæða fjárhagsstöðu bæjar- sjóðs er margt ógert sem snýr að þjónustu við íbúana. Leiðin til að vinna bæjarfélagið út út þessum ógöngum fyrri meiri- hluta, sem í raun verður óbreytt- ur á þessu kjörtímabili, felst í því að nú verði hafið nýtt upp- byggingartímabil í bænum. Það er því nauðsynlegt að ný íbúða- hverfi verði skipulögð og kom- ið í byggingarhæft ásant. Gera þarf bæinn eftirsóknarverðari til að búa í, með bættri þjónustu, öflugu félags- og menningar- lífi“. Meirihluti lýsti yfir ánægju sinni með málefnasamning flokkanna þar sem mikil áhersla væri lögð á skólamál og for- vamir. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar: Endurskipulagning nefnda í bænum Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á sínum fyrsta fundi á dögunum róttækar brevtingar á nefndarskipulagi bæjarins og er þeim nú skipt niður í átta meginráð en heit- ið “nefnd” fellur niður í flest- um þeirra. Að auki verður sú nýbreytni tekin upp að fund- argerðir bæjarstjórnar og róða verða skráðar í tölvu og er gert ráð fyrir að í framtíð- inni verði þær komnar á heimasíöu Reykjanesbæjar stuttu eftir fundi. Fjölskyldu- og félagsmálaráð verður eitt af veigamestu ráðum Reykja- nesbæjar en undir það falla nú verkefni áfengisvarnar- nefndar, jafn rétt isnefndar, framtalsnefndar og húsnæðis- nefndar auk öldrunarmála. Barnaverndarráð kemur í stað barnaverndarnefndar, framkvæmda og tækniráð fjallar um vatnsveitumál, gatnagerðarmál, fráveitumál, almenningssamgöngur, inn- kaupa- og útboðsmál og nýjar framkvæmdir auk stjórnar Brunavarna Suðurnesja frá áramótum. Markaðs- og at- vinnuráð kemur í stað mark- aðs- og atvinnumálanefndar og er stjórn Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykja- nesbæjar. Ráðið fjallar jafn- framt um skráningu atvinnu- lausra, þjónustu fyrir fólk í atvinnuleit, atvinnumál, ný- skópun í atvinnulílinu, ferða- mál, rekstur tjaldsvæðis, stekkjarkot, samskipti við Varnarliðið og vinabæjarmál. Ráðið fer einnig með málefni Reykjanesfólkvangs. Menn- ingar- og safnaráð kemur í stað menningarnefndar og fjallar um menningarmál, listasafnsnefnd, stjórn byggöasafna og bókasafns- stjórn. Skipulags- og bygging- arnefnd heldur sínu heiti áfram samkvæmt lögum og fjallar um byggingarmál, skipulagsmál og umferðar- mál. Ennfremur heyra undir nefndina umhverfis- og nótt- úruverndarmál og málefni skrúðgarðs-og fegrunar- nefndar. Skóla og fræösiuráö kemur í stað skólanefndar og fer með málefni grunnskóla, tónlistarskóla og leikskóla. Tómstunda- og íþróttaráð keniur í stað tveggja sam- nefndra nefnda og fer með íþróttamannvirki í eigu sveit- arfélagsins, íþrótta og æsku- lýðsmál, 17. júní nefnd, stjórn vinnuskóla og framkvæmda- sjóð aldraða. Ráðið fer einnig með málefni Bláfjallanefndar. Gert er róð fyrir að róðin fundi oftar og ntun hvert ráð fá úthlutaö ákveðnum dögum til fundarhalda. Víkurfréttir 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.