Víkurfréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 10
AFMÆLI
■ Reykjanesbær á réttu róli - Foreldrar/forráöamenn barna!
Notar barnið jul
ykkar hass? fji
Hvernig getid þid gengid úr skugga um þad?
Kannabisefni - Marihuana -
Hass - Hassolía
Almennar upplýsingar:
Kannabisneysla meðal ung-
menna hefur farið ört vaxandi
hérlendis samkvæmt könnunum
s.l. ára. Árið 1989 kváðust 4%
grunnskólanema (15 ára og
yngri) hafa reynt efnið.
Samkvæmt nýjustu könnun
hafa 13% þeirra reynt það.
Nýjustu kannanir á meðal j
framhaldsskólanema sýna að
23% nema hafa reynt efnið.
Samkvæmt síðustu fréttum frá
S.Á.Á. þá eru að jafnaði í
kringum 300 manns á biðlista |
hjá stofnuninni. Af ofanrituðu
virðist neyslan því vera algeng-
ari nú en áður.
Um skaðleysi og í framhaldi af
því unt lögleiðingu Kanna-
bisefna í hinum vestræna heimi
í dag er hin mesta firra að áliti
vísindamanna. Kváðu þeir efnið
m.a. hafa fyrir alla lífstíð skað-
leg áhrif á ýmsar stöðvar
heilans, ásamt því að það dragi
úr árangri til náms og starfs.
Marihuana: Það er fyrsta stig
framleiðslu fíkniefnisins úr j
Kannabisplöntunni. Þegar það
er tilbúið til neyslu þá er það í
formi tóbaks. Efnið er framleitt
hérlendis, grænleitt að lit og
lyktar í líkingu við þurrkað
gras. Innflutt Marihuana er
brúnleitt að lit, lyktar í líkingu
við „ýmsar kryddtegundir” og
inniheldur það oft fræ.
Hass: Samanstendur af komótt-
um plastkenndum eða hörðum j
molum. Efnið getur verið frá ]
svörtum/brúnum lit eða að
grábrúnum/grænum. Lyktin
Kannabis sagt hættii-
'minnaenáfengi
WHO bft M u«du 1» ^
w^IíbiL ***** .
getur verið ámóta og af brennd-
um hampi eða af reykelsi.
Hassolía: Efnið er í formi
seigfljótandi vökva, líkt og
síróp. Er það dökkgrænt að lit
með beiskri lykt.
Einkenni um vímu: Breytt fjar-
lægðar- og tímaskyn. Blóð-
hlaupin glansandi augu. Stórir j
augasteinar, hraður púls, hjart-
sláttartruflanir og aukin þörf
fyrir sætindi eða aðra ruslfæðu.
Sljóleiki, þreyta, almennt sinnu-
leysi, skortur á einbeitningu og
samhæfingu hreyfinga, ógleði,
uppköst og munnþurrkur.
Vímuáhrifin geta varað allt frá
nokkrum mínútum frá inntöku
efnisins til nokkurra klukkus-
tunda.
Gefið gaum að: Auknu hirðu-
leysi, sinnuleysi fyrir sjálfum
sér og öðrum, vindlingum
(jónum), litlum bréfavogum,
brenndunt sviðnum álpappír,
lykt líkt og af brenndum
hampi/reykelsi, vasahnífum
með sótugri brenndri egg, reyk-
jarpípum og ýmsum heim-
agerðum áhöldum, ætluðum til
reykinga og litlum geymsluílát-
um eins og eldspítustokkum,
málm- og filmuboxum.
Hættumar og skaðinn: Skertir
námshæfileikar, skertur áhugi
fyrir umhverfi og eigin útliti,
þunglyndi og aðgerðarleysi.
Stóraukin hætta á varanlegum
heilaskemmdum, krabbameini í
lungum, minnistapi og geð-
veiki.
Dæmin sanna: Að oft verður
neysla Kannabisefna forsmekk-
urinn að annarri neyslu ólögle-
gra fíkniefha. Leiðir hún oft af
sér að neytendur mynda með
sér klíkur og að þeir einangrast
frá hinu hefðbundna þjóð-
félagsmynstri og verða and-
þjóðfélagslega sinnaðir.
Munið að : Kannabisefnin geta
haft áhrif á persónuleikagerð
einstaklingsins. Að því gefnu.
eru þau stórhættuleg ómótuðum
ungmennum.
Reykjanesbær
á Réttu Róli,
Vímuvarnarhópurinn,
Elías Kristjánsson
hópsstjóri.
Elsku Sandra.
Til hamingju með sex ára afmælið
þann 23. júní. Kær kveðja,
Aninta og afi liorgarhlíð Akureyri.
Litli og stóri bróðir.
Aníta Osk frænka,
Guðbjörg frænka og Hilntar.
■ Bæjarstjórn Reykjanesbæjan
Fækkun nefnda
í upphafi fundar bæjarstjómar Reykjanesbæjar sl. þriðju-
dag var kosið í nefndir samkvæint nýrri skipan. Eins og
áður hefur kontið fram fækkar nefndum nú verulega frá því
sem var eða úr tuttugu og einni í átta og gert er ráð fyrir að
nefndarkerfið verði mun skilvirkara við breytingamar.
Sorpeyðingu hætt eða ekki hætt!
Fyrirspum kom fram á fundinum frá Olafi Thordersen (J)
unt málefhi Sorpeyðingarstöðvar Suðumesja, en í fréttum
nýlega kom fram að leggja ætti hana niður árið 2000 og
semja við Sorpu urn alla sorpeyðingu. Bæjarstjóri kvaðst
sjálfur hafa komið fréttin á óvart. Ekki væri búið að taka
ákvörðun í málinu en stjóm Sorpeyðingarstöðvar rnundi
tjalla um ntálið á fundi 12. júlí n.k.
Opnunartími sundstaða lengdur?
Kjartan Már Kjartansson (B) lagði fram tillögu á síðasta
bæjarstjómarfundi þess efnis að bæjarráð Reykjanesbæjar j
kannaði hversu mikill kostnaður fylgdi því að opna Sund- |
miðstöðina við Sunnubraut fyrr á morgnana þ.e. a) kl. I
06.30, b) kl. 06.45 í stað kl. 07.00 eins og nú er.
Kjartan sagði stöðugt fleiri nýta sér Sundmiðstöðina snern- I
nta á morgnana áður en vinnudagur hefst og fyrir þá sem [
ættu að niæta til vinnu kl. 08.00 væri tíminn naumur.
Mótmæla breyttu nafni
Keflavíkurflugvallar
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar mótmælir harðlega þeini ætl- |
an Markaðsráðs Keflavíkurflugvallar að breyta nafni flug- |
vallarins í Reykjavík- Keflavík Airport. I
Þá undrast bæjaryfirvöld að ekki skuli neinn Suðumesja- I
maður hafa setið í markaðsráðinu þar sem flugvöllurinn er j
einn stærsti vinnustaðurinn á Suðumesjum. Nauðsynlegt sé !
því að viðhorf þeirra komi frant í framtíðarstefnumótun.
I__________________________________________________I
Öryggi barnanna í bílnum á að hafa forgang
Stórhækkaðar sektir fyrir að hafa börnin laus
Ný reglugerð um sektir.
Þann 15. maí sl. tók gildi ný
reglugerð sem stórhækkar
sektir fyrir að hafa böm laus í
bíl eða nota ekki réttan
öryggisbúnað fyrir bömin.
Tekið er á flestum þáttum og
ég held að sannast sagna viti
fæstir af því. Nú stendur fyrir
dyrum herferð lögreglunar
ma. í þessum málum og er
vissara fyrir ökumenn að sýna
forsjálni.
Ástandið er slæmt.
I könnun sem fór fram í
febrúar sl. við vetraraðstæður
kom í ljós að ástandið var
ærið gloppótt. Reykjanesbær
kom
þokkalega
vel út með
aðeins 17%
bama laus.
Verst var
ástandið í
Garðinunt
þar sem
57% bama
vom óbundin og í Grindavík
þar sem 50% bama vom laus.
I Sandgerði vom 43% bama
laus. Þetta er alveg óviðun-
andi. Þó böm væru bundin
gerir fólk nokkur ntistök sem
gætu orðið afdrifarík.
Mörg 2-6 ára böm nota
eingöngu bílbelti. En bflbelti
em hönnuð fyrir fullorðið
fólk og ætluð þeim sem em að
minnstakosti 140 cm. j hæð
og u.þ.b. 40 kfló á þyngd.
Mörg böm sitja í framsæti.
Böm á leikskólaaldri eiga
aldrei að sitja í framsæti nema
í bamabflstól sem snýr baki í
akstursstefnu.
Böm em greinilega sett of
ung á bflpúða og veitir bíl-
beltið ekki þá vemd sem til er
ætlast.
Ennþá nota alltof mörg böm
tveggja festu bílbelti, en slík
belti henta ekki litlum böm-
um.
Nýju sektirnar:
í nýju reglugerðinni hafa
sektimar hækkað hressilega.
Nefnum nokkur dæmi:
* Öryggisbelti ekki notað !
4.000 icr
* Sérstakur öryggisbúnaður
fyrir böm ekki notaður 10.000
kr.
* Þess ekki gætt að farþegi
yngri en 15 ára noti öryggis
og vemdarbúnað 8.000 kr.
Nú stendur fyrir dymm hjá
löggæslu ntönnum að gera
átak í þessum málaflokki og
er að vænta þess að það beri
góðan árangur. Hver vill
verða fyrir því að láta gnpa
sig þar sem hann er að flýta
sér heim með bamið frá leik-
skólanum. Sjálfrur) óspenntur
og baminu tyllt í aftur sætið.
„Þetta er svo stutf‘.
16.000 til 20.000 krónur sekt
er áfall rétt þegar verið er að
fara í sumarfrí.
Venjunt okkur strax á að festa
okkur og þau sem okkur þykir
vænst um ömgglega í bfl
hvort sem lagt er í lengri eða
skemmri ferð. Tryggjum
öryggi bamanna.
Jón Gröndal
Umferðaröryggisfulltrúi
Suðurnesja.
10
Víkuifréttir