Víkurfréttir - 02.07.1998, Blaðsíða 4
Aldargamall bátur endurbyggður
Ragnar Ágústsson í
Halakoti á Vatnsleysu-
strönd hefur látið
endurbyggja nær ald-
argainlan bát og hefur
komið honuni fyrir á túninu
við heimili sitt. Háturinn,
tveggja manna far, var
smíðaður árið 1902 af
Guðmundi Jónssyni báta-
smið og er báturinn með
sunnulenska laginu. Guð-
mundur var mikill hagleiks-
smiður og segir Ragnar að
báturinn sé mjög vandaður.
Báturinn var gerður út frá
Halakoti. Honum var róið á
haustin en einnig á gráslep-
putímanum. Gert var að
fisknum á klöppunum í
fjörunni og hann saltaður í
húsi í fjörukambinum. Stærri
bátar voru síðan á sjálfri
vertíðinni. Ragnar sagði að
þessi bátur hafi verið mikið
notaður í ferðir frá Halakoti á
Vatnsleysuströnd til
Hafnarfjarðar, þar sem að f þá
daga hafi ekki verið kominn
vegur frá Hafnarfirði til
Keflavíkur og samgöngur á
sjó því verið fljótlegri en að
fara á hestum yfir hraunið.
♦ Ragnar Ágústsson við gamla bátinn í túninu
heima. VF-MYNDIR: Hilmar Bragi
♦ Vörin í fjörunni við Halakot þar
sem báturinn var ætíð sjósettur.
SmföG úr cjömuf rjrjfíf
1 Q 1
*;i-» KarlOlsenjr.
Suóurgötu 24 ■ Keflavik - simi 4212575
IHSSKW
, Verðlrá 245 krómstykkið
Ápreg™ iímÉm
p • *i
www.rn.is •'
j •'
FRETTIR
• MANNLÍF
ÍÞRÓTTIR
VÍKURFRBTTIR Á INTERNETINU
Sjóstangaveiðimót í Gnindavík
Sjóstangaveiðifélag
Reykjavíkur hélt sjó-
stangaveiði mót dagana
19. og 20. júní í Grinda-
vík. Veður var gott báða
dagana og voru keppendur og
mótshaldarar nokkuð ánægðir
með hvernig til tókst. Alls
voru 40 keppendur og farið
var á 8 bátum. Aflabrögð voru
svona í meðallagi en það var
að sjá á sumum keppendum
að það væri kanski ekki aðal-
atriðið heldur að hafa gaman
af. Á laugardagskvöld var
félagið með kvöldverð á
Sjómannastofunni Vör og
verðlaunaafhending eftir
borðhald. Fjölmargir fengu
verðlaun fyrir sinn árangur en
helstu niðurstöður eru þessar:
Aflahæðsti karl: 379,5 kg.
Þorsteinn Einarsson Reykja-
vík. Aflahæðsta kona: 325,6
kg. Sigríður Rögnvaldsdóttir
Siglufirði. Rétt er að geta að
aflahæðsti karl og kona voru
bæði á sama bátnum sem er
Hamar skipstjóri Einar
Haraldsson og fékk hann
fjölda verðlauna fyrir árangur
sinna keppenda.
Stærstu fiskar:
Þorskur: 16 kg. Jónas Jónas-
son Siglufirði. Ýsa: 3,05kg.
Hávarður Bernharðsson
Vestmannaeyjum Ufsi: 7,09
kg. Ámi Halldórsson Akur-
eyri Karfi: 1,45 kg. Erlendur
Guðjónsson Reykjavík.
Keila: 8,36 kg. Erlendur
Guðjónsson Reykjavík.
FRÉTTIR
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23 Njarðvík, sími 421 4717 fax 421 2777 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson,
heimas.: 421 3707, GSM: 893 3717 Fréttastjóri: Hilmar Bragi Báröarson, GSM: 898 2222 Blaöamaöur: Arhheiður Guðlaugs-
dóttir, heimas.: 421 513B Auglýsingar: Kristin Njálsdóttir, Kolbrún Jóna Pétursdóttir Skrifstofa: Stefanía Jónsdóttir og Aldis
Jónsdóttir Útlit, litgreining og umbrot: Víkurfréttir ehf. Filmuvinna og prentun: Stapaprent ehf., sími: 421 4388
Netfang: hbb@vf.is Stafræn útgáfa: www.vf.is
4
Víkurfréttir