Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.10.1998, Page 22

Víkurfréttir - 29.10.1998, Page 22
Reykjanesskaginn Þjóðin hefur gert stóratak í umhverfismálum síðustu ár. Sveitarfélög og íbúar hafa tekið höndum saman og vaknað til vitundar um sitt nánasta umhverfi. Enda ekki vanþörf á því landið okkar var á góðri leið með að ljúka út í veður og vind. Reykjanesskaginn hefur ekki farið varhluta af þein i veðráttu sem hér ríkir og umtalsverð landeyðing átt sér stað. Skaginn var eitt sinn þakin gróðri en ekki livað síst fyrir mannanna sakir lítur hann út sem hálfgerð auðn. Ég tel mikilvægt að hetja strax á skipulagðan hátt gróðurset- ningu til uppbyggingar á þessu landsvæði. Tímabært er orðið að skila því aftur sem við tókum. Surnir hugsa líklega á þá leið að þetta sé rugl og von- laust verkefni, það má vel vera en það getur varla sakað að reyna. Við vitum öll að það er áratuga verkefni og mun kosta umtalsvert fé og ljóst er að að þessu verða að konta ríkið, sveitarfélög, félagssamtök, einstaklingar og fyrirtæki. Ég held að ef allir |ressir aðilar kæmu að þessu sameiginlega átaki að þá væri hálfur sigur unnin. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir Höfundur býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæini 14. nóv. n.k. M A N N L I F I Ð Villibráðin vinsæl á Glóðinni Villibrádarhladbord Glódarinnar hefur gert mikla lukku enda nú tími villibrádarinnar. Medal þess sem er ad finna á borðum Glóðarinnar erskarfur og háhyrningur. Síðasta villibráðarhelgin verdur á Glóðinni um helgina. VF-mynd: Hilmar Bragi Húfur fyrir börn í Bosníu Stapafell kynnti nýjar saumavélar sl. föstudag og fékk viðskiptavini jafnframt til að sauma húfur fyrirbörn i Borníu. Saumakonurnar hjá Liljum við Hafnargötu tóku sig til og saumuðu húfur í tvo fulla plastpoka úr afgöngum á saumastofunni og afhentu í húfusöfnun Stapafells. Kvennakarfa: Grettistak kvenna- defldar UNIFN Njarðvíkingar ákváðu að senda lið til keppni í meistaraflokki kvenna á þessu tímabili eftir nokkurt hlé. Liðið er ungt að árum, fyrstu leikir leiktíðarinnar hafa ekki skilað stigum, og ljóst er að á brattann er að sækja tyrir stúlkumar fyrsta tímabilið. Eins og algengt er í kvennaíþróttum hérlendis þurfa stúlkumar að standa sjálfar að öllu því er við- kemur liðinu og hjá njarðvísk- um em það þrjár stúlkur sem borið hafa hitann og þungann af starfinu. Þær Erla Hildur Jónsdóttir, Brynja Brynjarsdótt- ir og Hólmfríður Karlsdóttir hafa starfað af miklum krafti það sem af er tímabilinu, útveg- að stuðning ffá fyrirtækjum og staðið að ýmis konar fjáröflun- um. Hjá UMFN er hatður sá háttur á að hyggi einhver deild á framleiðslu vamings með merki félagsins eða auðkennum skal tilkynna það fomianni félagsins bréflega. Sú deild eignast þá nokkurs konar einkarétt á þeirri framleiðslu og að sögn Krist- bjöms Albertssonar, formanns UMFN, hefur kvennaráð unnið mikið starf á þeim stutta tíma sem þær hafa starfað. Þær hafi leyfi fyrir smíði lyklakippa og séu nú að óska leyfis vegna nýrrar hugmyndar sem hann vill ekki láta uppi hver er að svo stöddu. Kvennaráð þakkar kær- lega þann stuðning sem veittur hefur verið. Þær segjast þó hvergi nærri hættar, segja stúlk- umar t.d. eiga það skilið að áhorfendur borgi sig inn á leiki þeirra eins og hjá körlunum, og hyggjast markaðssetja nýjar hugmyndir innan skamms. Þær segja að kvennafþróttir séu vax- andi um heim allan og mikil- vægt sé að Njarðvíkingar styðji við bakið á þeim stúlkum sem í eldlínunni em núna og tryggi stöðu körfuknattleiks kvenna í Njarðvík til allrar framtíðar. Bandaríkja- dama til liðs við njanðvískar Kvennaráð Njarðvíkur hefur ráðið til sín bandarískan leik- mann og kom hún til landsins í gærmorgun. MeChelle Murray heitir stúlkan og lék hún með Miami háskólanum síðustu 4 ár. Hún er sögð vera sterkur vam- armaður og frákastari með mik- inn stökkraft auk jtess að vera keppnismaður harður. MeChelle, sem fæddist 11. júní 1975, leikur sinn fyrsta leik í Njarðvíkurbúning á föstudag kl. 20:00 þegar topplið Stúdína kemur í heintsókn. Öruggup UMFG-sigur Grindvíkingar sigruðu nýliða Njarðvíkur örugglega í Grindavík á laugardag 59-34. Njarðvísku stúlkurnar héldu í við leikreynt lið Grindvflcinga í fyrri hálfleik þó einhverjum fyndist það vera lélegum leik grindvískra meira að þakka en góðum leik gest- anna. í seinni hálfleik fór leikur Njarðvíkinga á límingunum og Grindavikurstúlkur gengu á lagið og jóku rnuninn jafnt og þétt fram að leikslokunt. Eysteinn til Englands Eysteinn Hauksson, besti leik- maður Keflvíkinga í úrvals- deildinni í knattspyrnu fer á næstu döguin til Knglands. Hugsanlegt er að hann æfi með enska knattspyrnuliðinu Grimsby Town en það leikur í 1. deild. „Mig langar að prófa þetta og nú er tækifærið þar sem ég er samningslaus“, sagði Eysteinn í samtali við Víkurfréttir í vik- unni. Grimsby er í 8. sæti í 1. deild- inni ensku en liðið kom upp úr 2. deild í fyrra. Eysteinn sagði aðspurður um það hvort hann myndi leika með Keflavík yrði ekkert úr at- vinnumennsku hjá honuim, að helmingslíkur væru á því. „Ég hefði gott af jiví að breyta til en eins og staðan er núna er næsta verkefni að reyna við atvinnu- mennsku", sagði Eysteinn. Það má því að segja að miklar líkur séu á því að framundan sé mikil blóðtaka hjá Keflvíking- um því að flestra mati var Ey- VerulegarlíkureruáþvíadEysteinnHauksson.einnbestileik- steinn besti maður liðsins í madur Keflvíkinga leiki ekki með liðinu á næsta sumri. sumar. 22 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.