Morgunblaðið - 12.04.2016, Page 10
Einn helsti hátíðardagurinn vestanhafs er
svokallaður „Memorial Day“ en þá minnast
Bandaríkjamenn þeirra fjölmörgu sem
létu lífið í hildarleiknum sem kallaður
er Þrælastríðið, er norður og suður
tókust á í blóðugri borgarastyrj-
öld. Í ár ber daginn upp á 30.
maí og það gæti verið klókt
hjá bílaáhugafólki að punkta
dagsetninguna hjá sér, eigi
það leið til Bandaríkjanna
um það leyti sem daginn
ber upp. Ástæðan? Jú,
þann daginn verður
áhugaverðu samstarfi
hleypt af stokkunum, svo
ekki sé meira sagt. Sam-
starfsaðilar eru Shelby
American, Hertz og Ford
og verkefnið, sem hverfist
um sérstaka 50 ára afmæl-
isútgáfu af Ford Mustang
Shelby GT-H, nefnist
„Rent-a-Racer“ og eins og
nafnið gefur til kynna gengur
það út á möguleikann að leigja
sér öflugan bíl til eigin afnota.
140 hressandi bílaleigubílar
Alls verða 140 eintök af áðurnefndum Ford Must-
ang Shelby GT-H sett í verkefnið og verður ein-
göngu hægt að leigja þá hjá sérvöldum útibúum
Hertz-bílaleigunnar á flugvöllum í Bandaríkjunum,
frá og með 30. maí eins og framar greindi. Verða
þeir allir málaðir eins, í kolsvörtum lit með gylltum
sportröndum, rétt eins og Ford Mustang-bílarnir
litu út í upprunalega „Rent-a-racer“ leiguverkefn-
inu sem Ford og Hertz stofnuðu til fyrir 50 ár-
um.
Það mun því bjóðast áhugavert tæki-
færi til þess að þeysa um á veru-
lega spennandi bíl – sem ekki
þarf að punga út fyrir, vel að merkja – ætli les-
endur sér að halda til Bandaríkjanna í kringum
mánaðamótin maí/júní og hyggi þar á að taka bíl á
leigu.
Nánari upplýsingar um flugvallarleigurnar verða
settar von bráðar á heimasíðu Hertz í Bandaríkj-
unum.
jonagnar@mbl.is
Ef það vantar bara Hertz-lumuninn í budduna …
Draumabíll til leigu – ekki eigu
Sportbílasamstarf
Ford og Hertz á sér
50 ára sögu.
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Nýr Skoda Superb Combi varð á
dögunum þess heiðurs aðnjótandi
að hljóta Red Dot-verðlaunin fyrir
framúrskarandi vöruhönnun og
varð þar með sá níundi úr Skoda-
fjölskyldunni til að hljóta þessi eft-
irsóttu hönnunarverðlaun. Red Dot
er ein þekktasta og virtasta hönn-
unarsamkeppni heims og var þetta
í 61. sinn sem hún er haldin. Um
5.000 þátttakendur frá meira en 50
löndum tóku þátt að þessu sinni og
alþjóðleg dómnefnd skipuð sér-
fræðingum sá um að velja sigurveg-
arana. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá Heklu.
Hagkvæmni og fagurfræði
Að mati dómnefndar er hárfínt
jafnvægi á milli hagkvæmni og fag-
urfræði í Combi-útfærslunni á
þessu glæsilega flaggsskipi Skoda
sem undirstrikar færnina í verk-
fræði og hönnun. „Nýr Superb er
með frábærar útlínur og er stór-
kostlegur bíll,“ var haft eftir dr.
Peter Zec, stofnanda og forstjóra
Red Dot keppninnar við þetta til-
efni.
Skoda Superb var frumsýndur í
Heklu í janúar. Um er að ræða
þriðju kynslóð þessa vinsæla bíls
sem kemur úr smiðju skemmtilegu
Skoda-fjölskyldunnar. Nýr Superb
er stærri og rúmbetri en áður og
býr yfir mörgum framsæknum ör-
yggiskerfum. Af öryggisbúnaði má
nefna árekstrarvara og rafræna
stöðugleikastýringu með fjölda-
árekstursbremsu en Superb er á
lista Euro NCAP yfir öruggustu
fjölskyldubílana, segir ennfremur í
tilkynningunni.
jonagnar@mbl.is
Bílaframleiðendur leggja sig margir fram við að vinna Red Dot-verðlaun.
Ein virtasta hönnunarsamkeppni heims heiðrar Skoda
Skoda Superb Combi
hlýtur Red Dot-verðlaunin
Franska bílasamsteypan PSA ætl-
ar fram til ársins 2012 að koma
með á markað 34 ný bílmódel eða
verulega endurhönnuð, þar á
meðal verða rafbílar. Fyrirtækið
boðar mikla útrás og hefur breytt
nafni sínu úr PSA Peugeot Citro-
ën í Groupe PSA.
Forstjórinn, Carlos Tavares,
kynnti í síðustu viku nýja sókn-
djarfa stefnu PSA sem ætlar að
freista vaxtar með því að sækja
fram um heim allan og hefja bíl-
smíði í Suðaustur-Asíu árið 2018
og í Indlandi 2021. Minnstu mun-
aði að fyrirtækið færi í hundana
2012 vegna fjárhagserfiðleika en
Tavares, sem tók við stjórn-
artaumunum 2014, hefur tekist að
snúa því til betri vegar með upp-
stokkun og endurskipulagningu.
Varð hagnaður af rekstrinum í
fyrra, 2015, í fyrsta sinn í fjögur
ár.
26 nýir fólksbílar á fimm árum
„Á grundvelli fjárhagslegrar
endurskipulagningar munum við
hefja sókn á heimsvísu með fram-
leiðslu og tækni,“ sagði Tavares í
París fyrir helgi. Hann boðar 26
nýja fólksbíla og átta létta at-
vinnubíla á næstu fimm árum.
Þar á meðal verða fjórir rafbílar
og sjö tengiltvinnbílar og pallbíll.
Markmiðið er að árið 2018 verði
tekjur af rekstri 10% meiri en
2015 og vaxi um 15% til viðbótar
fram til 2021. Er í áætlunum PSA
Groupe gengið út frá að rekstr-
arhagnaður verði kominn í 6% ár-
ið 2021.
Hvað framleiðslu varðar þá
hefur PSA sett sér það sem mark-
mið að fjórfalda bílasölu í Afríku
og Mið-Austurlöndum fram til
2021, í 700.000 eintök. Hefur fyr-
irtækið nýverið ákveðið að reisa
bílsmiðju í Marokkó og á í við-
ræðum um að reisa samsetning-
arsmiðju í Alsír, auk þess sem
það áformar að hasla sér einnig
völl í Íran en landið er að opnast
fyrir vestrænum fyrirtækjum.
Samruna gæti samt verið þörf
Þótt PSA gangi næst Volkswa-
gen að stærð á Evrópumarkaði
nemur bílasala franska risans að-
eins um þremur milljónum ein-
taka á ári í heiminum öllum. Til
samanburðar selja bæði VW og
Toyota um 10 milljónir bíla hvor
á ári og fransk-japanska sam-
steypan Renault-Nissan um 8,5
milljónir. Fréttaskýrendur segja,
að til að geta gert sig gildandi
þurfi PSA að leita fyrir sér um
samruna við aðra bílsmiði eða
freista enn nýrrar og magnaðrar
herfræði.
agas@mbl.is
AFP
Carlos Tavares stjórnarformaður PSA Peugeot Citroën kynnir plönin.
Fransmenn ætla sér stóra hluti á næstu misserum
PSA blæs til sóknar
Afmælisútgáfan er máluð í litum sem tekið er eftir á götunni.
Sprotafyrirtæki hefur verið stofnað
í Wales í Bretlandi til að þróa og
smíða litla vetnisbíla, sem verða þó
ekki til sölu.
Sæti verða aðeins fyrir tvo í bíln-
um, sem gengur undir heitinu Ri-
versimple Rasa, en fyrri hluti þess
er nafn fyrirtækisins, Riverside.
Rasa er frábrugðinn öðrum bíl-
um að útliti og flestum ef ekki öll-
um að allri gerð. Vegna smæð-
arinnar og spartverskrar
innréttingar vegur bíllinn aðeins
580 kíló.
Við hvert hjól er rafmótor er
knýr þau áfram. Ekki er vitað
hversu lengi hann verður úr kyrr-
stöðu í 100 km/klst. ferð því þeim
hraða nær Rasa aldrei. Hámarks-
hraðinn verður 60 mílur, eða 96
km/klst. Þeim topphraða er bíllinn
sagður munu ná á um 10 sekúndum.
Fábrotinn bíll en skilvirkur
Riverside segir að rauði þráð-
urinn í þróun bílsins og smíði sé að
hann verði skilvirkur. Lítill þungi
stuðli meðal annars að miklu drægi,
en Rasa mun komast 480 kílómetra
á tankfylli vetnis. Lítilli eiginþyngd
er náð með mikilli notkun koltrefja
í grindinni og yfirbyggingu.
Mælaborðið er fábrotið en þar
má meðal annars finna hnapp til að
skipta um gír. Þeir eru tveir, annar
fyrir áfram og hinn fyrir afturábak.
Ytra útlit hannaði bílhönnuður að
nafni Chtis Reitz, sem meðal annars
hefur starfað á hönnunardeildum
Fiat, Volkswagen og Nissan. Meðan
hann var hjá Fiat var Fiat 500 end-
urvakinn og átti hann mjög stóran
þátt í gerð hans.
En hafi nú vaknað hjá þér, les-
andi góður, áhugi á að eignast
svona bíl þá er hann ekki svo auð-
fenginn. Riverside ætlar nefnilega í
fyrstu umferð að smíða einungis 20
eintök sem brúkuð verða til að
prófa bílinn í þaula og kanna mögu-
leika hans og notkun í umferðinni.
Til leigu en ekki til eigu
Fari allt að óskum verða síðan
smíðuð 3.500 eintök af Rasa árið
2018. Verða bílarnir leigðir not-
endum, sem eignast þó ekki á þeim
kauprétt. Notendur borga leigu og
síðan er allt innifalið til rekstursins,
eldsneyti, viðhald og tryggingar.
Að sögn breska bílaritsins Auto
Express verður mánaðarleg leiga –
í Bretlandi alla vega – svipuð og
kaupleigugjald á einföldustu út-
gáfu VW Golf.
Það er ekki aðeins að forsvars-
menn Riverside hafi trú á verkefn-
inu. Fyrirtækið hefur nefnilega
fengið tveggja milljóna evra styrk
frá Evrópusambandinu (ESB) til að
þróa og hanna hinn vistvæna bíl.
agas@mbl.is
Umhverfisvænn fararskjóti fyrir tvo
Rasa – velskur vetnisbíll
Riversimple Rasa er ekki fyrirferðarmikill á vegi.