Morgunblaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
S
amkeppnin í flokki svo-
kallaðra millistærðarbíla
hefur löngum verið hörð
og þar hafa nöfn eins og
VW Golf, Ford Focus og Toyota
Auris ráðið lögum og lofum hér á
Íslandi. Nú er hins vegar komin
veruleg samkeppni í nýkrýndum
bíl ársins í Evrópu 2016, en nýr
Opel Astra er ekki aðeins glæsi-
legur að sjá, heldur líka góður að
keyra, rúmgóður með afbrigðum
og stútfullur af búnaði og tækni-
nýjungum. Blaðamaður Morg-
unblaðsins fékk fyrsta bílinn til
reynslu fyrir nokkrum vikum, þá
með 1,6 lítra dísilvélinni en einnig
prófuðum við bensínbílinn með 1,4
lítra forþjöppuvélinni.
Allt að 200 kílóum léttari
Líkt og margir aðrir bílar í
þessum flokki er ný kynslóð end-
urhönnuð frá grunni með nýjum
undirvagni úr léttari og sterkari
málmum sem létta bílinn talsvert,
eða um því sem næst 200 kíló þeg-
ar best lætur. Undirvagninn kem-
ur frá GM og kallast D2 og er bíll-
inn 49 mm styttri, 26 mm lægri og
með 23 mm minna hjólhaf en fyrri
kynslóð. Sterkari byggingarefni
þýða venjulega að hægt er að auka
rýmið innandyra og sú er einmitt
raunin þótt bíllinn sé minni um sig
en fyrri kynslóð. Rými innandyra
kemur verulega á óvart og það er
alveg sama hvar drepið er niður
fæti í bókstaflegri merkingu því að
fótarými er mjög gott fyrir þennan
flokk bíla. Eins er rúmgott og
djúpt farangursrými með því besta
sem gerist í þessum stærðarflokki.
Mælaborðið er mun nýtískulegra
en í fyrirrennaranum og kominn er
stór upplýsingaskjár í miðjustokk-
inn. Þar vantar þó leiðsögukerfi í
annars vel búnum bílnum, en það
er bæði kostur og galli því að
kaupendur sem vilja slíkt geta ein-
faldlega bætt því við en öðrum
sem finnst það óþarfi notið þess í
betra grunnverði. Á móti kemur að
bíllinn er með nýjasta Apple
Carplay og Android Auto svo að
tenging við snjallsíma er af bestu
gerð en þeir bjóða margir hverjir
upp á leiðsögukerfi.
Dísilvélin virkar stærri
Það þykir kostur í nýjum bílum í
dag þegar margar vélar eru í boði
strax í upphafi en sú er einmitt
raunin með nýjan Opel Astra.
Hægt er að velja um eins lítra og
1,4 lítra bensínvélar með forþjöppu
en Opel býst við að flestir velji bíl-
inn með 1,6 lítra dísilvélinni sem
kemur bæði í 108 og 136 hestafla
útgáfum. Bílabúð Benna býður upp
á öflugri vélina og hún er sann-
arlega öflug, því að 320 Newton-
metra togið sér um að vélin hafi
nægt afl upp allt snúningssviðið.
Manni líður eiginlega eins og það
sé tveggja lítra dísilvél undir
húddinu á þessum bíl. Þar að auki
er vélin þýðgeng og hljóðlát fyrir
dísilvél sem er frekar óvanalegur
lúxus í þessum ódýrari flokki bíla.
Uppsetning fjöðrunar og stýr-
isgangs er talsvert frábrugðin
fyrri kynslóð Opel Astra, en þar
sem áður var áhersla á mýkt og
þægindi er nú meiri áhersla á
snaggaralega aksturseiginleika.
Óhætt er að segja að upplifunin
svíkur engan og bíllinn er virki-
lega skemmtilegur akstursbíll
enda stýrið sneggra að bregðast
við og fjöðrunin mun stífari.
Reyndar er hún það stíf að bíllinn
virkar hastur á köflum enda gatna-
kerfið á höfuðborgarsvæðinu ekki
upp á marga fiska. Bíllinn virkar
mjög stöðugur í kröppum beygjum
og nýtur sín vel á hlykkjóttum
vegi. Þónokkur undirstýring verð-
ur þó áberandi ef tekið er of mikið
á honum inn í krappa beygju en
eflaust má kenna því að mestu leyti um að bíllinn kom á harð-
skelja vetrardekkjum þótt við vær-
um að prófa bílinn á auðu malbiki.
Sjálfvirkur hár geisli
Ekki verður fjallað um þennan
bíl án þess að minnast nokkrum
orðum á tækninýjungar og búnað
sem honum fylgir. Aðalljósin eru
af svokallaðir Matrix-gerð og eru
díóðuljós að öllu leyti, en hægt er
að fá þau með sjálfvirkum háum
geisla sem slekkur á sér sjálfkrafa
þegar bíllinn skynjar ljós af öðrum
bíl. Við fengum bílinn með svoköll-
uðum AGR-sportsætum sem eru
fjölstillanleg svo ekki sé meira
sagt. Þau eru rafstýrð en einnig
með nokkrum nuddstillingum auk
þess að vera bæði með sætishita
og kælingu. Einnig er hægt að
stilla og lengja setu undir fótum
sem er ótvíræður kostur á lengri
ferðum. Prófunarbíllinn var í vel
búinni Innovation-útgáfu en slíkur
bíll með þessari dísilvél kostar
4.290.000 kr. Grunnverð hans með
þessari vél er hins vegar 3.890.000
kr. og þá með sjálfskiptingu.
Grunnverð Ford Focus með 1,5
lítra dísilvélinni er 100.000 kr.
lægra eða 3.790.000 kr. Grunnverð
sjálfskipts VW Golf er hins vegar
4.160.000 kr. með 1,6 lítra vélinni í
Trend-útfærslu svo að í þessum
samanburði virðist verð Opel
Astra vera vel samkeppnishæft.
Það sama má reyndar segja um
annan samanburð á milli véla og
skiptinga, Opel Astra kemur sterk-
ur inn sem vinningshafi á góðu
verði.
njall@mbl.is
Bíll ársins sannar sig
Einn af kostum bílsins er gott fóta-
rými. Sést að talsvert er eftir með
ökumannssæti í öftustu stöðu.
Matrix díóðuaðalljósin setja svip á
bíllinn en hægt er að fá þau með
sjálfvirkum háum geisla.
Með 1,6 lítra dísilvélinni virkar bíllinn eins og hann sé með tveggja lítra
dísilvél, kannski því hann er hátt í 200 kílóum léttari en fyrri kynslóð.
Farangursrýmið er rúmgott og þótt það sé ekki breitt er bætt upp með
mikilli dýpt svo gott er að koma fyrir stórum töskum eða barnavagni.
Morgunblaðið/Tryggvi Þormóð
Opel Astra er skemmtilegur akstursbíll sem liggur vel enda með sportlega og frekar hasta fjöðrun. Undirstýring er áberandi er tekið er mikið á honum.
+
Aksturseigineikar,
farangursrými, sæti
-
Ekkert leiðsögu-
kerfi, í hastara lagi
1,6 lítra dísilvél
136 hestöfl/320 Nm
6 þrepa sjálfskipting
0-100 km/sek: 9,8
Hámarkshr: 202 km/klst
Framhjóladrif
17“ álfelgur
Eigin þyngd kg: Vantar uppl.
Farangursrými: 370 lítrar
Mengunargildi: 103 g/kg
Verð frá: 3.190.000 kr.
3,7 L/100 km í bl akstri
Umboð: Bílabúð Benna
OPEL ASTRA 1,6
Reynsluakstur
Njáll Gunnlaugsson
njall@mbl.is