Morgunblaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ | 17
venjast í Volvo-bílum seinni ára,
og ekki leiðum að líkjast þar.
Framsetning helsta búnaðar og
viðmót allt er einfaldlega fram
sett, nánast minimalískt, og það
tekur enga stund að verða eins
og heima hjá sér. Fyrir þá sem
vilja vera með puttann á púls-
inum hvað umhverfið varðar þeg-
ar þeir fara um á bíl þá má fletta
upp margs konar tölfræði gegn-
um snertiskjáinn sem er hjartað í
stjórntækjunum og glöggva sig
þar á öllu mögulegu sem snýr að
akstrinum og umhverfinu. Sumt
virkar máske heldur langsótt og
ekki á áhugasviði bíleigenda í það
heila en þessir hlutir skipta máli
í síauknum mæli og vel gert hjá
Renault að vera á undan bylgj-
unni. Það er þó óþarflega flókin
leið að stöðvaminninu fyrir út-
varpið og ekki heiglum hent að
ætla að skipta um stöð á ferð;
það er beinlínis hættulegt að ætla
að pikka og pota sig áfram þar
uns hádegisfréttirnar finnast.
Vera má að hægt sé að stilla
stöðvarnar fastar á aðalviðmót
snertiskjásins en það tókst þá
undirrituðum ekki. Útvarpið er
jú það sem oftast þarf að eiga við
á ferð og því skrýtið að það blasi
ekki við öllum stundum. Á móti
má nefna að hljómurinn er einkar
tær og góður í hljóðkerfinu.
Unga fólkið sem fékk far og kall-
ar ekki allt ömmu sína þegar
hljóðkerfi og hljómur er annars
vegar hafði sérstaklega orð á
þessu.
Þægilegur í akstri og umferð
Það slær mann að sama skapi
hvað Mégane virkar breiður að
innan og eftir því rúmgóður. Hér
er nóg af plássi, fram í sem aftur
í, og sæti bæði og efnisval hafa
tekið framförum frá síðustu kyn-
slóð.
Það vekir líka athygli hve
hljóðlátur bíllinn er í akstri en á
móti kemur einkennilegt gnauð
eða ýlfur í miðstöðinni þegar hún
er á lágum blæstri. Hvinurinn á
háblæstri er skiljanlegur en það
á helst ekki að heyrast múkk í
miðstöðinni þegar hún malar á
lágum snúningi.
Þá er vert að geta þess að það
fer fjarska vel um ökumann undir
stýri. Gírstöng og handbremsa
eru á upphækkuðum miðjustokki
milli framsæta og staðsetning
þeirra er fyrirtak. Ökumaður
steinliggur umvafinn í sæti sínu
og þarf hvergi að teygja sig í gír-
stöngina né handbremsu. Þá er
stýrisgjörðin sver og vönduð við-
komu, og meira að segja neð-
anskorin svo ekki skortir á sport-
bílatilfinninguna. Allt í allt er
Mégane allur hinn fínasti að inn-
an.
Í akstri kemur bíllinn einna
helst á óvart því 110 hestafla dís-
elvélin er hörkuspræk og bein-
skiptingin mjög þægileg í allri
umgengni. Togið er hressandi og
Mégane bregst dúndurvel við
inngjöfinni, bæði í upptaki og
eins þegar á ferð er komið. Bíll-
inn er með skriðlás eða brekku-
aðstoð (e. Hill Start Assist) sem
varnar því að hann renni aftur á
bak þegar tengslin eru rofin, til
dæmis í brekku á rauðu ljósi, og
því ekkert stress með það fyrir
ökumann. Jafn auðvelt er að taka
af stað í brekku og á jafnsléttu.
Uppgefin eyðsla á hinni snörpu
díselvél er gefin 3,7 lítrar í
blönduðum akstri. Ekki tókst
undirrituðum að ná þeim „lægð-
um“ í eldsneytiseyðslu – enda lít-
ið ekið á þjóðvegum svo allri
sanngirni sé haldið til haga – en
best náðist um 5 lítrar innan-
bæjar, og þegar ekið var með
eyðslusamasta móti náði eyðslan
um 6,3 lítrum. Meira fékkst bíll-
inn ekki til að eyða.
Fallegur og rennilegur
á að líta
Þær útlitsbreytingar sem hafa
verið gerðar á Mégane eru allar
til bóta. Útlitið er einfalt við
fyrstu sýn en fljótlega fer maður
að staldra við ýmis skemmtilega
afgreidd smáatriði sem ljá honum
fallegan svip og fá mann til að
staldra við. Svipmikil LED-ljósa-
umgjörðin sem hverfist um að-
allugtir framljósanna sver sig í
ætt við aðra nýja bíla frá Renault
og ljær honum auðþekkjanlegan
og flottan svip, og það er til
marks um aukið sjálfstraust Re-
nault að tígullaga merkið er
stærra og sett í svipmeiri um-
gjörð á framhlið bílsins eins og
er með aðra nýja bíla frá fram-
leiðandanum. Er það vel enda full
ástæða fyrir Renault að standa
keikir um þessar mundir því lín-
an þeirra er einfaldlega feik-
isterk.
Renault Mégane
Stýrisgjörðin er sver og vönduð viðkomu, og neðanskorin.
Mælaborðið minnir á innanrými Volvo-bíla í seinni tíð. „Svipmikil LED-ljósa-umgjörðin sem hverfist um aðallugtir framljósanna sver sig í ætt við aðra bíla Renault.“
„Útlitið er einfalt við fyrstu sýn en fljótlega fer maður að staldra við ýmis skemmtilega afgreidd smáatriði.“
„Renault að tígullaga merkið er stærra og sett í svipmeiri umgjörð.“ Afturendinn er lögullegur. Blaðamanni þykir 110 hestafla díselvél bílsins vera hörkuspræk.
1,5 lítra díselvél
110 hestöfl
6 gíra beinskipting
0-100 km/sek.: 11,3
Hámark: 187 km/klst.
Framhjóladrif
16 tommu álfelgur
Eigin þyngd: 1311 kg
Farangursrými: 434 lítrar
Mengunargildi: 95 gr/km
Verð frá: 3.390.000 kr.
3,7 lítrar í blönduðum akstri
Umboð: BL
Renault Mégane
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Reynsluakstur