Morgunblaðið - 12.04.2016, Page 22

Morgunblaðið - 12.04.2016, Page 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ Breska stjórnin hefur ákveðið að veita 50 milljónum sterlingspunda, jafnvirði níu milljarða króna, til að laga malbiksholur á vegum. Áform- að er að gera við um 943.000 holur á næstu tólf mánuðum. Peningunum verður skipt milli 100 héraðsstjórna, en hér er aðeins um að ræða fyrsta skrefið í áform- um um að leggja til atlögu við veg- holur á breskum vegum. Hefur ríkið stofnað sérstakan „vegholusjóð“ og lagt honum til 250 milljónir punda, um 45 milljarða króna. Verður veitt úr honum fé á næstu árum og markmiðið er að gera við og fylla á fimmtu milljón hola fram til ársloka 2021. Malbiksholur eru meinsemd „Ég skil vel hversu miklu það varðar fólk um land allt að vegum sé vel viðhaldið,“ segir samgönguráð- herrann Patrick McLoughlin af þessu tilefni. „Næstum því hvert ein- asta ferðalag hefst og lýkur á minni vegum í heimabyggð. Því munu sveitastjórnir fá 250 milljónir punda til að ráðast til atlögu gegn þeirri meinsemd sem malbiksholurnar eru á sínu svæði. Og þetta er aðeins hluti af áður óþekktum fjárfestingum í viðhaldi vega annarra en hrað- brauta. Til þeirra munum við veita sex milljörðum punda á næstu fimm árum. Mun það stórbæta vega- samgöngur í einstökum héruðum landsins.“ Áætlað er að það kosti að meðal- tali 53 sterlingspund að laga hverja holu, eða sem svarar um 9.300 krón- um. Í Devonsýslu eru holurnar tald- ar vera 36.830, eða fleiri en í nokk- urri annarri sýslu. Verst er ástand vega í Suðvestur- og Suðaustur- Englandi, síðan Austur-Englandi og í fjórða lagi í Norðvestur-Englandi. agas@mbl.is Holur á vegi eru Þrándur í Götu Morgunblaðið/Ómar Bretar ætla að setja á stofn veglegan vegholusjóð og veitir víst ekki af þar frekar en hér. Á Hverfisgötunni. Níu milljarðar í holufyllingar Pulsur eru snar þáttur í rekstri Volkswagen-samsteypunnar, sem seldi fleiri pulsur á nýliðnu ári en bíla. Þessi vinsæli þýski matur kom held- ur betur við sögu á hluthafafundi hjá öðrum þýskum bílrisa, Daimler AG, um miðja síðustu viku. Á fundinum var samþykkt stærsta arðgreiðsla í sögu fyrirtækisins en örlæti hluthafanna var misjafnt og taldi að minnsta kosti einn þeirra, að sér bæri stærri skammtur þegar komið var að hádegisverð- arhléi. Fátt þykir Þjóðverjum betra en pulsur, að frátöldu því að græða á smíði og sölu lúxusbíla. Svo vel hafði rekstur Daimler gengið að ákveðið var að greiða 3,25 evrur í arð á hvern hlut, sem er met. En það var eins og það væri ekki nóg, fyrir suma. Ofbauð græðgi hluthafans Á fundi Daimler sem um 5.500 hluthafar sóttu voru í boði samtals 12.500 pulsur, eða rétt rúmlega tvær á mann, að meðaltali. Þann skammt lét hluthafi ekki duga sér og tíndi hverja pulsuna af annarri til viðbótar á diskinn sinn. Kona nokkur sem var næst á eftir honum í röðinni skarst í leikinn og fann að framferði hins hluthafans. Áður en varði rifust þau hástöfum og lá við áflogum. Linnti ekki látum fyrr en lögregla mætti á vettvang og stíaði deilendum í sundur. Það mun vera til siðs á hluthafafundum Daimler að bjóða upp á þjóðarkrás þessa. Stjórnarformaðurinn Manfred Bischoff gerði grín að uppákomunni og sagði að tvennt væri í stöðunni; að bæta við pulsum eða hætta að gefa hluthöfunum að borða. agas@mbl.is Oft veltir lítil pulsa þungu hlassi Hluthafar í hart út af pulsum Frá hluthafafundinum í Stuttgart í síðustu viku þar sem til slagsmála kom, út af pulsugræðgi. Nissan hefur framleitt fleiri Qas- hqai-jepplinga en nokkuð annað bílamódel í 30 ára sögu bílsmíði jap- anska fyrirtækisins í Evrópu. Nissan hefur rekið bílsmiðju í bænum Sunderland við ósa árinnar Wear og þar féll gamla smíðametið. Það hljóðaði upp á 2.368.704 bíla og voru þeir af gerðinni Nissan Micra, fyrrverandi merkisbera bílsmiðsins í Evrópu. Nýr stærðarflokkur verður til með Qashqai Var 2.368.705. Qashqai smíðaður í Sunderland á dögunum en í Sunder- land renna um 1.200 eintök af jepp- lingnum vinsæla af færiböndunum dag hvern. Hefur smíði hans verið öllu hraðari en í tilfelli Micra því inn- an við áratugur er frá því fyrsti Qas- hqai var smíðaður. Enginn annar bíll hefur verið framleiddur í meira en tveimur milljónum eintaka á ára- tug í Bretlandi öllu. „Með Qashqai varð til alveg nýr geiri í stærðarflokki bíla, jepplingar, og hefur hann verið snar þáttur í miklum vexti Nissan í Evrópu,“ seg- ir forstöðumaður framleiðslu og að- fanga hjá Nissan í Evrópu, Colin Lawther. „Mirca er íkon fyrir Nissan í Evr- ópu og var smíðaður í 18 ár í Sun- derland. Að slá það met á innan við 10 árum sýnir bara og sannar hversu rækilega evrópskir neyt- endur hafa tekið Qashqai fagnandi,“ bætir Lawther við. agas@mbl.is Vinsælasti Nissan-bíllinn í manna minnum Evrópubúar hafa vægast sagt tekið Nissan Qashqai fagnandi. Qashqai slær öll met AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.