Morgunblaðið - 12.04.2016, Side 23

Morgunblaðið - 12.04.2016, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23 Rétt um það bil þegar þú hélst að F-Type væri það svakalegasta sem fyrirtækið hefði upp á að bjóða, ákvað SVO-deildin (Special Vehicle Operations) hjá Jaguar Land Rover að sleppa lausri SVR-útfærslu af F-Type sem lofar svo góðu að mann setur hljóðan. Bíllinn er hraðskreiðasti framleiðslubíllinn frá Jaguar og því vert að kíkja aðeins á gripinn. Mörg hestöfl, mikill hraði Til að létta bílinn er yfirbyggingin úr samspili títaníum og koltrefja en meira er þó um vert að 575 hestafla V-8 vélin knýr bílinn – sem er fjórhjóladrifinn – upp í 322 km/klst hámarkshraða. Togið er ekki síður eftirtektarvert en það er gefið upp, skv. til- kynningu frá JLR, sem hvorki meira né minna en heil 700 NM enda flýgur F-Type SVR í hundraðið á 3,5 sekúndum, nokkuð sem ætti að fá Þjóðverjana í sama flokki til að líta um öxl. Sérstök dekk á sérstakan bíl Til að létta enn frekar á farskjótanum er SVR-týpan á sérhönnuðum 20 tomma felg- um sem eru samtals um 15 kílóum léttari en þær sem fara á hefðbundna F-Type sport- bíla. Aukinheldur verða SVR-felgurnar íklæddar sérstökum P ZERO-dekkjum frá Pirelli með afturdekkin 10 millímetrum breiðari en á standard-útgáfunni af F-Type. Eitthvað segir okkur að það verði gaman að þenja vél Jaguar F-Type SVR í jarð- göngum en að því má eflaust komast í sum- ar er bíllinn kemur í almenna sölu. Verðið í Bandaríkjum er sagt verða 126.000 dalir, um 15,5 milljónir íslenskra króna. jonagnar@mbl.is F-Type SVR á að geta náð 100 km/klst hraða á 3,5 sekúndum. Kraftmikið kattardýr væntanlegt Jaguar F-Type sportbíllinn á sér marga dygga aðdáendur. Koltrefjar og títaníum gera bílinn laufléttan. Vélin er skrímsli og togið svakalegt. F-Type í SVR útgáfu Fá farartæki eru sveipuð jafn mik- illi fortíðarþrá og Volkswagen T1, bíllinn sem Íslendingum er tamast að kalla einfaldlega „rúgbrauð“ í takt við lögunina sem helst minnir á formbrauðshleif. Síðustu rúg- brauðin rúlluðu af færibandinu í Brasilíu á gamlársdag 2013, og hétu þá T3, og síðan hafa þessir ástsælu smávagnar ekki verið í framleiðslu. Unnendur þeirra eru þó víða og margir láta sig dreyma um að ný kynslóð VW T-bílanna líti dagsins ljós og það fyrr en seinna. Nýjar línur, klassískt yfirbragð Þeirra á meðal er hönnuðurinn David Obendorfer sem hefur dund- að sér við að teikna upp nútíma út- færslur á ýmsum klassískum bílum á borð við Fiat 127 og BMW E9. Hann hefur tekið VW rúgbrauðið upp á sína arma og útkoman er slík að internetið hefur tekið eftir því og það rækilega. Eins og glöggt má sjá á myndunum gætir Oben- dorfer þess að halda í meginþætti upprunalegu hönnunarinnar – við getum kallað það „sálina“ – en um leið hefur allur bragur bílsins verið færður til nútímans með einkar smekklegum hætti. Meðal þess sem rímar við fortíðina eru sveigð horn, kringlóttu framljósin sem eru þegar í stað auðþekkjanleg sem og afturljósin, staðsetning VW-merkisins á framhlið bílsins, krómhlutir hér og hvar ásamt því að hið nýja rúgbrauð er málað í tvílit eins og klassíkin var svo þekkt og dáð fyrir. Byggður á grunni T6 Obendorfer hefur eingöngu út- fært yfirbygginguna og innrétt- ingar, og því liggur ekkert fyrir um hvernig vélakostur væri aftan í honum þessum, enda ekki um op- inbera hugmynd á vegum VW að ræða. Þó liggur fyrir að málin smellpassa á grindina af núverandi VW T6-gerðinni. Þeir í höfuðstöðv- unum í Wolfsburg myndu því gera rétt í því að skoða þessar pælingar alvarlega því Volkswagen T1 Revi- val Concept – eins og módelið kall- ast – eru allrar athygli verðar, svo ekki sé meira sagt. jonagnar@mbl.is Volkswagen T1 Revival Concept Glænýtt og ferskt rúgbrauð Í senn nútímalegur og gamaldags. T1 Concept höfðar til nostalgíunnar. Fjölskyldusvipurinn leynir sér ekki, þó sá nýi sé stærri en sá gamli. Hugmyndabíllinn er líka með uppfærðri innréttingu. IB ehf • Fossnes 14 • 800 Selfoss • ib.is Sími 4 80 80 80 • Varahlutir • Sérpantanir • Aukahlutir • Bílasala • Verkstæði Ford F350 King Ranch á lager GMC Sierra 3500 á lager

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.