Morgunblaðið - 12.04.2016, Side 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ
Forstjóri bandaríska rafbíla-
smiðsins Tesla, Elon Musk, talaði
um að fyrirtækið þyrfti að koma
sér upp samsetningarsmiðju í
Evrópu er hann var viðstaddur
samkomu franskra eigenda Tesla-
bíla. Þetta barst umhverf-
isráðherranum Segolene Royal til
eyrna og brást hún skjótt við og
gerði Musk eiginlega ómót-
stæðilegt tilboð.
Bauð Royal að Tesla fengi lóð
og mannvirki kjarnorkuversins í
Fessenheim í Alsace í austurhluta
Frakklands undir bílsmiðju þegar
slökkt hefði verið á kjarnaofnum
og notkun versins breytt. Hafist
verður handa um stöðvun núver-
andi orkuframleiðslu í Fessen-
heim síðar á þessu ári. Verið er á
Rínarbökkum við landamæri
Sviss og Þýskalands.
Elon Musk mun hafa sagt að
Alsace-héraðið væri ákjósanleg
staðsetning fyrir evrópska bíl-
smiðju Tesla. Það er ekki bara
Royal sem tekið hefur hann á
orðinu, heldur einnig íbúar og yf-
irvöld í héraðinu. Er vonast til að
bílsmiðja í Fessenheim muni bæði
leiða til hagvaxtar í héraðinu og
veita starfsmönnum kjarn-
orkuversins möguleika á vinnu í
stað atvinnuleysis sem lokun
versins ella hefði í för með sér.
Royal sagði á frönsku sjón-
varpsstöðinni LCP, að það yrði
frábært að fá Tesla til Alsace til
að nýta mannvirkin sem þar
væru. Rafbílasmíði væri atvinnu-
grein framtíðarinnar.
Embættismenn og leiðtogar Al-
sace munu síðar í apríl eiga fund
með fulltrúum Tesla vegna þessa
máls. Vonast þeir til að þær til-
lögur sem lagðar verði fyrir bíl-
smiðinn verði nógu aðlaðandi til
að hann bíti á agnið og hefji
rekstur bílsmiðju í Fessenheim.
Segolene Royal mun sömuleiðis
funda með fulltrúum Tesla og
segist hún þegar hafa komið hug-
mynd sinni á framfæri við sjálfan
Musk. „Ég sagði við hann: Ég er
með stað fyrir þig, í Fessenheim.
Hann afþakkaði það ekki. Og
vogun vinnur, vogun tapar,“
sagði Royal í samtalinu.
agas@mbl.is
Frakkar vilja fá Musk til að smíða bíla á óvenjulegum stað
Það kann að hljóma undarlega að
Tesla smíði rafbíla í kjarn-
orkuverinu sem lokað verður.
Býður Tesla kjarn-
orkuver í Alsace
Lúxusbílaframleiðendur Evrópu
flykkjast nú hver á eftir öðrum í
kjölfar Porsche Cayenne og hleypa
af stokkunum lúxusjeppum í þeirri
viðleitni að fá sinn skerf af vel-
gengni lúxusjeppa. Það er út af fyr-
ir sig ekki að undra því Cayenne er
langsöluhæsta, og þar af leiðandi
langtekjuhæsta módel Porsche og
því blasir við að eftir nokkru er að
slægjast.
Bentley sýndi þannig Bentayga-
jeppann á alþjóðlegu bílasýning-
unni í Frankfurt síðasta haust og
Lamborghini hefja framleiðslu á
Urus-jeppanum á næsta ári. Fyrir
Genfar-sýninguna sem fór fram í
síðasta mánuði sýndi ítalski lúx-
usbílaframleiðandinn Maserati sitt
nýjasta útspil, alltént í myndum.
Það er jeppi að nafni
Levante og verður
hann formlega
kynntur fyrir
fjölmiðlum síðar
á árinu. Óhætt
er að tala um
vatnaskil því þetta er í
fyrsta sinn sem Maserati framleiða
jeppa, nokkuð sem flestir hefðu tal-
ið fráleitt og jafnvel óhugsandi.
Bensín, dísil og loks kraftvél
Upplýsingar um vélakost og ann-
að eru takmarkaðar enn sem komið
er en þó hefur lekið út að Levante
verður fáanlegur bæði með bensín-
og dísilvél, í kringum 3 lítra og að
líkindum V6. Hvað hestöflin áhrær-
ir er orðið á bílagötunni á þá leið að
bensínvélin verði 430 hestöfl en dís-
ilvélin 275. Þá ku vera nokkrar lík-
ur á því að einnig verði framleidd
sérstök og kraftmeiri útgáfa með
3,8 lítra V8 vél fenginni hjá syst-
urfyrirtækinu, Ferrari, líkast til
upp á minnst 500 hesta.
Þótt torfæruakstur sé ekki það
fyrsta sem manni kann að detta í
hug þegar Levante er litinn augum
er hann engu að síður fjórhjóladrif-
inn og búinn 8 gíra sjálfskiptingu.
„Þið þurfið að skjóta mig fyrst!“
Hvort áðurnefnt systurfyrirtæki,
Ferrari, fetar svo í fótspor annarra
lúxusbíla og sendir frá sér eitthvað
sem kallast mætti jeppi þá verður
það að teljast í hæsta máta ólíklegt,
að minnsta kosti meðan núverandi
forstjóri, Sergio Marchionne, er við
völd. Er hann var spurður að því
hvort eitthvað fjögurra
dyra, upphækkað og fjór-
hjóladrifið væri vænt-
anlegt úr þeirri átt-
inni ku hann hafa
svarað sem svo:
„Þið þurfið að
skjóta mig fyrst!“
Svo mörg voru
þau orð…
jonagnar@mbl.is
Maserati kynnir fyrsta jeppa sinn í sögunni
Levante er á leiðinni
Þetta er í fyrsta sinn sem Maserati framleiða jeppa og Levante-jeppinn verður formlega kynntur síðar á árinu.
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**
Margir hafa tamið sér að hlaða far-
símann meðan ekið er og stinga
símtækinu í samband við USB-
kapal um leið og sest er inn í bílinn.
Það gæti þó verið, þegar dæmið
er reiknað til enda, að sniðugra
væri að hlaða símann heima eða í
vinnunni, því orkan sem síminn
dregur í sig úr rafkerfi bílsins veld-
ur því að meira eldsneyti er notað
við aksturinn.
Munar um hvern dropa
Fréttavefur Bloomberg hefur
það eftir Jon nokkrum Bereisa,
sem áður var verkfræðingur hjá
General Motors en er núna sestur í
helgan stein, að sími í hleðslu gegn-
um USB-tengi auki eldsneytisnotk-
unina að jafnaði um sem nemur
0,03 mílum á hvert gallon. Það jafn-
gildir 0,01 kílómetra á hvern lítra.
Upphæðin er kannski óveruleg, í
samhengi við aðra útgjaldaliði
heimilisins, en fyrir allan bílaflot-
ann getur munað um minna. Reikn-
ar Bereisa út að ef allir bandarískir
ökumenn væru með farsíma í
hleðslu meðan ekið er myndi það
þýða að 970.000 aukatonn af koltví-
sýringi dælist út í andrúmsloftið.
Miðað við orkuverð í Bandaríkj-
unu kostar um 2 sent á klukku-
stund að hafa símann í hleðslu í
bílnum, en 0,06 sent að hlaða
heima.
Bloomberg segir bílaframleið-
endur þurfa í vaxandi mæli að gera
ráð fyrir því að ökumenn hlaði ým-
is raftæki á meðan ekið er. Auk
þess að stinga farsímanum í sam-
band nota margir GPS-tæki, hlaða
fartölvuna á ferðinni og spjaldtölv-
ur fyrir börnin til að glápa á í aft-
ursætinu. Sem dæmi um þróunina
verður hægt að finna níu USB-
raufar í Chrysler Pacifica-
smárútunni sem kemur á markað
síðar á árinu.
ai@mbl.is
Rafmagnið ódýrara heima
AFP
Orkan sem sími í hleðslu dregur til sín verður ekki til úr engu.
Sími í hleðslu eykur
bensínnotkun