Morgunblaðið - 12.04.2016, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25
Þeim fjölgar stöðugt sem velja vistvæna raf-
og tengiltvinnbíla frá Volkswagen á Íslandi.
Tækninni fleygir áfram og til að koma á móts
við nýja eigendur hefur Hekla nú látið gera
átta kennslumyndbönd. Í myndböndunum er
leitast við að útskýra virkni bílanna á einfald-
an hátt, að því er segir í tilkynningu frá um-
boðinu. Farið er yfir muninn á raf- og tengilt-
vinnbílum, mismunandi hleðsluaðferðir,
drægni og fleiri hagnýt atriði. Hekla býður
upp á tvo hreina rafbíla, Volkswagen e-up! og
e-Golf, og tengiltvinnbílana Golf GTE og
Passat GTE sem ganga bæði fyrir rafmagni
og bensíni. Virkni þessara bíla er um margt
ólík virkni hefðbundinna bensín- og dísilbíla
og því þótti tímabært að gera vönduð
kennslumyndbönd.
„Það hefur orðið mikil aukning í sölu á
þessum bílum hjá okkur og við höfum fundið
fyrir þörf fyrir nánari útskýringum á virkni
þeirra og ráðlagri umgengni við þá. Mynd-
böndin hafa mælst vel fyrir, bæði meðal við-
skiptavina okkar og þeirra sem eru að íhuga
kaup á raf- eða tengiltvinnbílum frá
Volkswagen,“ segir Árni Þorsteinsson, sölu-
stjóri Volkswagen á Íslandi.
Myndböndin voru unnin af tæknisérfræð-
ingum Heklu í samvinnu við framleiðslufyr-
irtækið Republik og Árni segist hæstánægð-
ur með útkomuna. „Viðskiptavinir okkar eru
ánægðir með þetta framtak,“ segir Árni.
Myndböndin eru öll aðgengileg á heima-
síðu Heklu:
volkswagen.is/is/volkswagen/mynd-
bond.html
jonagnar@mbl.is
Komið til móts við eigendur og áhugafólk
Mikil aukning hefur orðið í sölu á rafbílum hjá Heklu og í kjölfar skapaðist þörf fyrir nánari útskýringar á virkni og umgengni um bílana. Hekla hefur brugðist við því með gerð myndbanda.
Hekla gerir átta kennslumyndbönd um raf- og tengiltvinnbíla