Morgunblaðið - 12.04.2016, Page 27

Morgunblaðið - 12.04.2016, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ | 27 Sannkölluð hybrid-hátíð var hjá Toyota á laugardag þegar nýr Prius var frumsýndur. Þar er á ferðinni fjórða kynslóð af Prius sem var fyrsti tvinnbíllinn sem Toyota kynnti. Auk þess mátti sjá Toyota RAV4, Auris og Yaris, einnig í hybridútfærslu, á sýningunni. Boðið var upp á fræðslu um hybrid- tæknina og sáu tæknimenn Toyota um að fræða áhugasama gesti, eins og meðfylgjandi myndir sýna. jonagnar@mbl.is Hybrid-hátíð hjá Toyota í Kauptúni Toyota Prius hefur verið í fararbroddi meðal blendingsbíla frá því hann kom á markað og nýjasta kynslóðin hefur vakið mikla athygli. Auris Hybrid í sedan-útfærslu er hér skoðaður og virðist falla vel í kramið. Toyota Yaris markaði ákveðin tímamót á bílamarkaðnum þegar hann var fyrst kynntur til sögunnar um síðustu aldamót. Hann er að sjálfsögðu til í hybrid-útgáfu. RAV4-jeppinn hefur verið vinsæll farkostur síðustu tvo áratugi eða svo og hybrid- útfærslan er síst til að minnka vinsældirnar. Hybrid-bílar hafa sannað sig á markaðnum og njóta sívaxandi vinsælda. Toyota Auris í skutbílsútfærslu er þar á meðal. Morgunblaðið/Árni Sæberg Brimborg frumsýndi nýverið Volvo XC90 jeppann með T8 tvinnvél. Aflið er gríðarlega mikið, eða 407 hestöfl með hröðun frá 0-100 km á 5,6 sekúndum, sem telst allgott fyrir jeppa, og eyðslu frá aðeins 2,1 l/100 km í blönduðum akstri. Togið er heil 640 Nm og losun koltvísýrings er einungis 49 g/km. Volvo XC90 var valinn bíll ársins 2016 á Ís- landi af Bandalagi íslenskra bílablaðamanna en þetta er í þrettánda skiptið sem verðlaunin eru afhent. Alls 30 bílar voru tilnefndir í ár. Volvo XC90 stóð uppi sem sigurvegari keppninnar enda veglegur og vel búinn 7 manna lúxusjeppi með öllu því besta frá Volvo. jonagnar@mbl.is Volvo XC90 T8 frumsýndur Gestum og gangandi var boðinn kaffisopi meðan jeppinn var skoðaður og var metn- aðurinn allsráðandi á öllum vígstöðvum. Volvo XC90 stóð uppi sem sigurvegari í keppninni um bíl ársins 2016, enda stórglæsilegur bæði að utan og innan. Morgunblaðið/Eggert Fólkið lét sig ekki vanta á sýninguna enda sjón að sjá 407 hestafla bíl sem eyðir 2,1 lítra í blönduðum akstri. Geri aðrir betur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.