Morgunblaðið - 12.04.2016, Side 29

Morgunblaðið - 12.04.2016, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29 Einkafyrirtæki munu að líkindum taka við hluta eftirlits með um- ferðarhraða í Frakklandi sem ver- ið hefur í höndum lögreglu hingað til. Franska stjórnin áformar að fela viðurkenndum einkafyrirtækjum að reka færanlegar hraðamynda- vélar frá og með janúar 2017. Með því verður losað um lögreglumenn til annarra verka sem ella hefðu verið fastir í umferðareftirlitinu. Með einkavæðingu hraðamæl- inganna væri hægt að auka eft- irlitið og halda úti ómerktum bíl- um búnum hraðamælitækjum og ratsjám allan sólarhringinn. Er þetta nýja fyrirkomulag á eftirliti með umferðarhraða liður í til- raunum yfirvalda til að stuðla að fækkun banaslysa í umferðinni. Eftir margra ára fækkun fjölgaði dauðsföllum aftur 2014 og 2015. Notendur veganna hafa ekki tekið þessum tíðindum með nein- um sérstökum fögnuði. Að sögn blaðsins Le Parisien eru 83% al- mennings andvíg einkavæðingu hraðamælinganna. Þá telja 75% Frakka að eini tilgangur ríkisins sé að fjölga hraðasektum og þar með auka tekjur ríkissjóðs. Félag franskra bifreiðaeigenda, 40 Millions d’automobilistes, segir að einkafyrirtæki sem rekin eru áfram af gróðasjónarmiðum eigi ekki að fá að sinna hraðarat- sjánum. Umferðaröryggisfulltrúi frönsku stjórnarinnar, Emmanuel Barbe, vísar því á bug að fyrir yfirvöldum vaki að fjölga sektum með því að fela einkaaðilum verkið. „Fyr- irtækjunum verður ekki borgað í hlutfalli við fjölda sekta,“ segir hann í blaðinu. Áfram verði allar upptökur myndavéla frá landinu öllu skoðaðar og metnar í sér- stakri miðstöð í borginni Rennes á Bretaníuskaganum. Það verk verði sem fyrr í höndum lögreglumanna. Í fyrra hélt franska lögreglan úti 319 ómerktum biðreiðum bún- um innrauðum hraðaratsjám er mynduðu 1,5 milljónir hraðakst- ursbrota. Skortur á sérþjálfuðum lögreglumönnum á bílana gerði það hins vegar að verkum að hver og einn bíll var að meðaltali aðeins á ferð við umferðareftirlit í eina klukkustund á dag. agas@mbl.is Er einkageiranum treystandi fyrir öðru eins? Hraðamælingar einkavæddar Morgunblaðið/Júlíus Með því að láta einkageirann sjá um umferðareftirlit eru lögreglu- menn lausir í önnur störf. Úr safni. Eru einhverjar líkur á því að fólk á miðjum aldri upplifi þá tíma, að samgöngugeirinn verði laus við brennslu lífræns eldsneytis? Gæti það gerst á Íslandi innan manns- aldurs? Tíminn einn leiðir það í ljós, en svo gæti farið að bensín- og dísilolía renni sitt skeið í Hollandi árið 2025. Þar í landi hefur hópur þing- manna tekið höndum saman og hafið herferð gegn bílum með brunavélar. Vilja þeir að hætt verði að selja bensín- og dísilbíla í Hollandi innan áratugar, eða í síð- asta lagi 2025. Stefna hollenska verkamanna- flokksins (PvdA) hefur sett það á oddinn að skipt verði um kúrs og einungis leyfðir mengunarfríir bílar á vegum landsins og í bæjum og borgum. Ályktun þess efnis hef- ur verið samþykkt í neðri deild þingsins í Haag. Samkvæmt ályktuninni yrði meira að segja bannað að selja tvinnbíla og tengiltvinnbíla frá og með 2025. Einungis yrðu leyfðir hreinir rafbílar og vetnisbílar. Til viðbótar við banni við losun gróð- urhúsalofts frá bílum kveður álykt- unin á um að hollenska stjórnin stuðli að lausn á umferðarteppum með því að fjárfesta í mjög stórum stíl í sjálfakandi bílum. Eins og gerist og gengur eru ekki allir á eitt sáttir um inntak ályktunarinnar. Þjóðfylkingin fyrir frelsi og lýðræði segir hana ganga of langt og vera óraunhæfa. Flokksmaðurinn og efnahags- málaráðherrann Henk Kamp segir að samgöngukerfið þoli 15% hlut- deild rafbíla í markaðinum, hærra hlutfall gæti leitt til vandræða. Og jafnvel stöku flokksmenn PvdA gagnrýna ályktunina og segjast ekki hafa áttað sig á innihaldi hennar fyrr en þeir heyrðu um það í fréttum fjölmiðla. Litlar líkur eru taldar á að þingsályktunin eigi eft- ir að vera útfærð í lagafrumvarp og verða að lögum. agas@mbl.is Eru nýir bílatímar innan seilingar? Sala á bílum með brunavél verði bönnuð frá 2025 Rafbíllinn Nissan Leaf á hollenskum vegi. Hópur hollenskra þingmanna hefur horn í síðu hefðbundinna bíla. NÝR VIÐBURÐAVEFUR Allt það helsta á einum stað - vinsælasti vefur landsins KVIKMYNDIR FUNDIR OG RÁÐSTEFNUR TÓNLIST LEIKHÚS MYNDLIST SJÓNVARPSDAGSKRÁ AÐRIR VIÐBURÐIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.