Morgunblaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 1
 Leikskólabörn á Seltjarnarnesi fá að borða fyrir 450 kr. á dag á meðan leik- skólabörn í Reykjavík borða fyrir 308 kr. Þá borga foreldrar á Seltjarnarnesi 785 kr. lægra fæðisgjald á mánuði en foreldrar í Reykjavík, sé miðað við fulla vistun. Á Seltjarnarnesi er sameiginlegt mötuneyti fyrir leik- og grunnskóla og allar starfs- stöðvar bæjarins, öll innkaup eru því á einni hendi. Í Reykjavík er unnið að því að hagræða í hráefn- isinnkaupum fyrir leikskóla en þar sem þær hagræðingaraðgerðir hóf- ust ekki fyrr en núna í apríl er ekki komið í ljós hvort hagræðing hafi náðst. Algengt er að gert sé ráð fyrir tæpum 400 kr. á dag í mat á hvert leikskólabarn í stærri sveit- arfélögum landsins. »6 Misjafnt hvað börn- in borða fyrir mikið F Ö S T U D A G U R 2 9. A P R Í L 2 0 1 6 Stofnað 1913  99. tölublað  104. árgangur  FÓTBOLTINN ÞUNGAROKKIÐ EREKKERT KARLA- VÍGI LENGUR 40 SÍÐNA BLAÐAUKI UM EINSTAKT FÓTBOLTASUMAR ROKKARINN MARÍA RÓS 12 Það var vetrarveður um allt landið norðan- og austanvert í gær, svo vegir lokuðust og fleira. Kuldapoll- ar í norðri taka nú á rás þegar fyr- irstaða vestanvindabeltis er farin. „Svona hvellur í sumarbyrjun er al- vanalegur,“ sagði Einar Svein- björnsson veðurfræðingur. Á Akureyri er talað um hríð- arhret sem komi yfirleitt um líkt leyti og aðalfundur KEA er hald- inn. Þetta hefur verið í áratugi og aðalfundur félagsins var haldinn í fyrrakvöld. sbs@mbl.is » 4 Vetrarríki og aðalfundur hjá KEA Morgunblaðið/Skapti Vetrarríki Unnið af miklu kappi við snjókarlagerð á Akureyri í gær. KR-ingar urðu í gærkvöld Íslandsmeistarar karla í körfuknattleik þriðja árið í röð þegar þeir sigruðu Hauka á sannfærandi hátt, 84:70, í fjórða úrslitaleik liðanna í Hafnarfirði. Um leið hefur KR loksins náð ÍR sem sigursæl- asta körfuknattleiksfélag landsins í karlaflokki en bæði hafa Reykjavíkurfélögin nú orðið meistarar fimmtán sinnum. » Íþróttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Fimmtándi meistaratitill KR-inga Íslandsbikarinn í körfubolta karla fór í Vesturbæinn þriðja árið í röð Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Áætlað er að fjárfesting í ferðaþjónustu hafi numið 62 milljörðum á síðasta ári. Það er um fimmtungur af heildaratvinnuvega- fjárfestingu ársins. Kemur þetta fram í út- tekt Samtaka ferðaþjónust- unnar (SAF). „Já, en nú má kannski segja að fjárfestingin sé afleiðing mikillar eftirspurnar á undanförnum ár- um og það eru væntingar um að hún haldi áfram,“ segir Helga Arn- arsdóttir, fram- kvæmdastjóri SAF þegar hún er spurð hvort aukin fjárfesting sé bein afleiðing fjölgunar ferðamanna. Á síðasta ári komu tæplega 1,3 milljónir erlendra ferðamanna til Íslands, tæplega 30% fleiri en árið áður. Búist er við enn frekari fjölgun í ár og því kemur það skýrsluhöfundum ekki á óvart að fjárfesting í atvinnugreinum tengdum ferðaþjónustu vegi þungt í atvinnulífinu. Mest fer í hótel og veitingahús Úttektin bendir til að mest hafi verið fjárfest í hótel- og veitingahúsarekstri, um 27 milljarðar kr., og í flugrekstri 16 millj- arðar. Fjárfestingar í bílaleigubílum og hjá fjölbreyttum hópi ferðaskipuleggjenda í af- þreyingarstarfsemi var um 19,5 milljarðar. Búist er við um 20 milljarða króna fjárfest- ingu í hótel- og gistirými í ár og að hún fær- ist meira út á landsbyggðina á næstu árum. Fjárfest fyrir 62 milljarða  Meiri fjármunir í ferðaþjónustuna M20 milljarðar »18 Skoðun Fjölgun ferða- fólks hefur áhrif. Morgunblaðið/Ómar  Reiðhjólin eru flest komin út úr geymslum og þá fjölgar þjófnuðum á þeim. Það sem af er apríl hafa 22 reiðhjólaþjófnaðir verið tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu en það eru færri þjófn- aðir en tilkynntir voru í apríl árin 2014 og 2015. Hafa verður í huga að tölurnar fyrir 2014 og 2015 eru fyrir allan mánuðinn en tölur fyrir 2016 ná til 25. apríl. Síðustu þrjú ár hefur tilkynningum fækkað miðað við árin 2010 til 2012. Flestar til- kynningarnar bárust árið 2010, þegar tilkynnt var um 812 reið- hjólaþjófnaði en það sem af er ári hafa 68 reiðhjól verið tilkynnt. Flestum reiðhjólum er stolið ut- andyra en einnig úr hjólageymslum fjölbýla og eftir að brotist er inn í bíla. »11 68 reiðhjólum stolið það sem af er ári Á ferð Reiðhjól er vinsæll fararskjóti.  Borgarráðsfulltrúar minnihlutans, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknar og flugvallarvina, lýstu yfir mikl- um áhyggjum af rekstri Reykjavík- urborgar þegar rekstrarniðurstaða síðasta árs var kynnt í borgarráði í gær. Segja þeir að reksturinn hafi verið í al- gjörum ólestri allt þetta kjörtímabil sem og það síðasta í höndum Samfylkingar og Besta flokksins. 13,6 milljarða króna halli varð af rekstri A-hluta og tæplega 5 milljarða króna halli af samstæðu borgarinnar. Fulltrúar meiri- hlutans vöktu athygli á því að frávik frá fjárhagsáætlun stafaði af gjaldfærslu líf- eyrisskuldbindinga. Þá séu helstu áskor- anir í rekstri borgarinnar að mestu leyti vegna kjarasamninga á síðasta ári. »2 Segja rekstur borgar- innar í algerum ólestri Börn alveg niður í þriggja og hálfs árs hafa komið í viðtöl í Barnahúsi sakir þess að þau hafa sætt óviðeig- andi kynhegðun annarra barna, svo sem áreitni eða ofbeldi. Flest brotin felast í káfi eða þukli. Alls koma 40 til 50 börn á ári í Barnahús vegna þessa og yfir lengri tíma eru þau flest á aldrinum 13-14 ára. Í flestum tilvik- um eru stúlkur þolendur og drengir gerendur. Stundum er upphaf mála kynferðislegir leikir sem vinda upp á sig og enda sem alvarleg brot, en í tilvikum barna eru þau jafnvel gróf og líkamlegu ofbeldi beitt. »10 Ofbeldi í kynferðis- brotum barna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.