Morgunblaðið - 29.04.2016, Síða 18

Morgunblaðið - 29.04.2016, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Áætla má að fjárfesting í ferðaþjón- ustu hafi verið rúmlega 62 milljarðar króna í fyrra eða um fimmtungur af heildaratvinnufjárfestingu ársins. Þá er gert ráð fyrir því að fjárfesting í ferðaþjónustu nemi um 20 millj- örðum króna í hótel- og gistirými í ár. Þetta kemur fram í úttekt á fjár- festingu í ferðaþjónustu frá Samtök- um ferðaþjónustunnar. Mest var fjárfestingin á síðasta ári í hótel- og veitingahúsarekstri, eða um 27 milljarðar króna, og í flugrekstri, eða um 16 milljarða króna. Þá voru fjárfestingar í bíla- leigubílum og hjá fjölbreyttum hópi ferðaskipuleggjenda í mismunandi afþreyingarstarfsemi um 19,5 millj- arðar króna. Afleiðing mikillar eftirspurnar Í fyrra komu tæplega 1,3 milljón erlendra ferðamanna til Íslands eða tæplega 30% fleiri en árið áður. Bú- ist er við enn frekari fjölgun í ár og því vegi fjárfesting í atvinnugreinum tengdum ferðaþjónustunni þungt í atvinnulífi landsmanna. „Já en nú má kannski segja að fjárfestingin sé afleiðing mikillar eftirspurnar á undanförnum árum og það eru væntingar um að hún haldi áfram,“ segir Helga Arnars- dóttir, framkvæmdastjóri SAF, að- spurð hvort aukin fjárfesting í ferða- þjónustu hafi verið viðbúin vegna fjölgunar ferðamanna. „Gæði fjár- festinga í innviðum og afþreyingu ásamt mörgum öðrum þáttum mun skipta sköpum upp á framhaldið.“ Fimm milljarðar til ríkissjóðs Atvinnulífið hefur einnig aukið fjárfestingar í fólksbifreiðum til út- leigu í takt við fjölgun ferðamanna hér á landi en mikil eftirspurn er þeirra á meðal eftir bílaleigubílum. Í fyrra námu fjárfestingar í bif- reiðum rúmlega 10 milljörðum króna sem er 30% aukning milli ára. Einnig ber á mikilli fjölgun í ný- skráningum bifreiða. Þá segir Helga það einnig áhyggjuefni að fjárfesting ríkisins í vegaframkvæmdum hafi ekki verið í takti við fjölgun ferðamanna undan- farin ár. „Slakt vegakerfi kemur í veg fyrir alla landsbyggðarþróun enda eru samgönguinnviðir lífæð ferðaþjónustu og forsenda byggða- þróunar,“ segir Helga, en útlit er fyrir að fjárfesting færist í meira mæli út á landsbyggðina næstu ár. „Þá má ekki gleyma öryggisþætt- inum sem við erum farin að hafa verulegar áhyggjur af. Það er því óskiljanlegt að áætlað fjármagn sem hluti af vergri landsframleiðslu til uppbyggingar samgöngumannvirkja hefur ekki verið lægra síðan árið 1953,“ bætir hún við, en gatnafram- kvæmdir sveitarfélaga drógust sam- an um 14% í fyrra á meðan bílaleigur skiluðu 5 milljörðum króna í ríkis- sjóð í gegnum eldsneytisgjald og virðisaukaskatt. 20 milljarðar í hótel- og gistirými í ár  „Slakt vegakerfi kemur í veg fyrir alla landsbyggðarþróun“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Aukning Fjárfestingar í ferðaþjónustu í fyrra námu fimmtungi af heildar- atvinnufjárfestingu ársins en ferðamönnum fjölgaði um 30% milli ára. Ferðaþjónustan » Búast má við 20 milljarða króna fjárfestingu í hótel- og gistirýmum í ár. » Fjárfesting atvinnulífsins í bifreiðum jókst í fyrra um 30% milli ára. » Bílaleigur skiluðu 5 millj- örðum í tekjur til ríkissjóðs. » 14% samdráttur varð í gatnaframkvæmdum sveitar- félaga í fyrra. Hagnaður stoðtækjaframleiðandans Össurar nam 9 milljónum Banda- ríkjadala, eða um 1,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi. Hagn- aðurinn nam 8% af sölu á tímabilinu. Þetta er nánast sami hagnaður í döl- um talið og á fyrsta ársfjórðungi í fyrra, og sama hlutfall af sölu. Alls nam sala fyrirtækisins 114 milljónum dala, eða um 14,7 millj- örðum króna. Jókst salan um 3% miðað við sama árshluta í fyrra, mælt í staðbundinni mynt. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 19 milljónum dala eða 16% af sölu. Rekstraráætlun Össurar fyrir ár- ið er óbreytt en áætlun fyrir heildar söluvöxt hefur verið endurskoðuð vegna kaupa á Touch Bionics í Skot- landi í apríl. Gert er ráð fyrir 7-9% söluvexti, þar af 3-5% innri sölu- vexti, og aðlagaðri EBITDA fram- legð á bilinu 20-21%. Í afkomutilkynningu til Kauphall- ar segir Jón Sigurðsson forstjóri að söluvöxtur í Ameríku hafi verið mjög góður í fjórðungnum en hins vegar óvenjulega lágur á flestum öðrum markaðssvæðum. „Fyrsti fjórðungur ársins er ávallt sá slak- asti,“ segir Jón, sem væntir góðs vaxtar það sem eftir er árs. sn@mbl.is Óbreyttur hagn- aður hjá Össuri  Félagið spáir 7-9% söluvexti í ár Morgunblaðið/Eggert Össur Jón Sigurðsson segir fyrsta fjórðung iðulega þann slakasta. ● Verðbólga á ársgrundvelli mælist 1,6% í apríl miðað við 1,5% í mars- mánuði. Þetta kemur fram í nýrri mælingu Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,21% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði nokkuð minna eða um 0,1%. Þeir liðir sem helst höfðu áhrif til hækkunar voru kostnaður vegna hús- næðis, hita og rafmagns sem hækkaði um 0,4% og þá hækkaði bensín og olía um 2,9%. Verðbólgan þokast hægt upp á við í apríl ● Anna G. Sverr- isdóttir var kjörin ný inn í stjórn HB Granda á fram- haldsaðalfundi sem haldinn var í gær. Hún var studd af Lífeyrissjóði versl- unarmanna. Í kjör- inu felldi hún Þórð Sverrisson, sem sæti hefur átt í stjórn HB Granda frá árinu 2014. Átök hafa staðið milli kjölfestufjárfesta og líf- eyrissjóðsins um skipan stjórnarinnar allt frá því að sjóðurinn kom inn í hlut- hafahópinn við skráningu fyrirtækisins á markað. Lífeyrissjóður verslunarmanna á ríflega 12% hlut í fyrirtækinu. Ásamt Önnu skipa nú stjórnarsætin fimm þau Kristján Loftsson, sem áfram verður for- maður, Rannveig Rist, varaformaður, og meðstjórnendurnir Halldór Teitsson og Hanna Ásgeirsdóttir. Gengisskráning 28. apríl 2016 Kaup Sala Mið DOLLARI 123,27 123,85 123,56 STERLINGSPUND 179,49 180,37 179,93 KANADADOLLARI 98,12 98,7 98,41 DÖNSK KRÓNA 18,788 18,898 18,843 NORSK KRÓNA 15,187 15,277 15,232 SÆNSK KRÓNA 15,274 15,364 15,319 SVISSN. FRANKI 127,42 128,14 127,78 JAPANSKT JEN 1,1384 1,145 1,1417 SDR 174,14 175,18 174,66 EVRA 139,86 140,64 140,25 MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 174,5303 Heimild: Seðlabanki Íslands Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Icelandair Group tapaði 17 millj- ónum dala á fyrsta ársfjórð- ungi, sem jafn- gildi um 2,1 millj- örðum króna, sem er 17% meira tap en á sama fjórðungi í fyrra. EBITDA var þó jákvæð um 1,1 milljón dala sem er viðsnún- ingur frá sama árshluta í fyrra, þegar hún var neikvæð um 2,3 milljónir dala. Í ljósi kostnaðarhækkana hefur félagið lækkað EBITDA spá fyrir árið um 5-10 milljónir dala í 235- 245 milljónir dala. „Fyrsti fjórðungur ársins er jafn- an þungur í rekstri þar sem mikið af kostnaði er gjaldfærður á fjórð- ungnum sem tengist auknu um- fangi á háönn,“ segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri í afkomu- tilkynningu til Kauphallar. „Er það því ánægjulegt að sjá að EBITDA fyrsta ársfjórðungs er jákvæð í fyrsta sinn síðan árið 2010.“ Kostnaður eykst hjá Icelandair Björgólfur Jóhannsson Knúðu fram breytingu á stjórn HB Granda Anna G. Sverrisdóttir ● Hagnaður Wow air á fyrsta árs- fjórðungi nam 400 milljónum króna samanborið við 280 milljóna tap yfir sama tímabil í fyrra. Tekjur á fjórðungnum námu um 4 milljörðum og jukust þær um 141% frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður án afskrifta nam 680 milljónum og jókst um milljarð milli ára. Á fyrsta ársfjórðungi hefur félagið flogið með 193 þúsund farþega sem er aukning um 119% milli ára. Sætanýting nam 88% og fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 164% og er það mesta aukning frá stofnun félagsins. 700 milljóna viðsnún- ingur hjá Wow air Skúli Mogensen Iðnaðareiningar í miklu úrvali Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.