Morgunblaðið - 29.04.2016, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
Stefán Magnússon, forsprakki þungarokkshátíðarinnar Eistna-flugs, er fertugur í dag. Stefán, sem stundum er kallaður Eistna-flugsbóndinn, segist halda upp á skemmtilegu tölurnar og 40
fellur í þann flokk.
Verður því haldið upp á tugina fjóra með myljandi gleði þar sem bæði
gaddavírs- og bárujárnsrokk af dýrari gerðinni verður hækkað í botn,
og sötrað á eðalbjórum eitthvað fram eftir kvöldi. „Ég geri heimilið fok-
helt og held gott partý. Ég hef gaman af því að skála við vini mína þeg-
ar þeir eru í stuði ef ég á afmæli en ég hef haldið upp á þessi stóru af-
mæli,“ segir Stefán. „Það verður mikið magn af góðum bjór í boði og
skemmtilegt fólk ætlar að taka lagið og hafa gaman af lífinu.“
Eistnaflug, sem haldið verður dagana 6.-9. júlí í sumar, verður
stærsta Eistnaflugshátíðin til þessa. Alls munu 77 hljómsveitir stíga á
svið og má þar nefna Opeth, Meshuggah, Amorphis, Sólstafi, Dimmu,
Mammút, Ham og Agent Fresco. Þar að auki munu Úlfur Úlfur, Páll
Óskar og Kolrassa Krókríðandi, ásamt fleirum telja í.
„Það er allt að smella og að verða tilbúið. Í ár er fullt af alls konar
tónlist. Það er ekki bara gaddavír í boði heldur tónlist fyrir alla,“ segir
Stefán og er greinilega spenntur fyrir komandi hátíð.
Eistnaflug hóf göngu sína sem eins dags tónlistarveisla árið 2005, og
hefur verið haldin árlega í Neskaupstað upp frá því. Hátíðinni hefur
vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár, enda stendur hún nú í fjóra daga.
Nálgast má miða á tix.is.
Morgunblaðið/Kristinn
Á Skúla Stefán verður fertugur í dag og því blásið til veislu.
Gaddavír og báru-
járn í rauða botni
Stefán Magnússon er fertugur í dag
G
uðrún Björg Aðalsteins-
dóttir fæddist 29. apríl
1976 á Húsavík, ólst þar
upp og bjó þar lengst af.
Hún kláraði stúdents-
próf af félagsfræðabraut, sálfræðilínu
frá Framhaldsskólanum á Húsavík.
Guðrún vann í fiski frá 15 ára aldri en
lengst af vann hún á pósthúsinu í af-
greiðslu og flokkun pósts.
Flutti í Borgarfjörðinn
„Þegar ég var 27 ára gömul og þá
með mann og barn ákvað ég að fara í
BS-nám í viðskiptafræði við Háskól-
ann á Bifröst. Það nám kláraði ég
vorið 2006 og fór þá að vinna í nem-
endaskráningunni við Háskólann á
Bifröst. Fljótt fékk ég þar að prófa
hin ýmsu verkefni og hef sinnt
Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, skólameistari MB – 40 ára
Mæðginin Við fermingu eldri sonarins Fannars Óla, frá vinstri: Fannar Óli, Guðrún og Jökull Smári.
Í skólanum er skemmti-
legt en krefjandi að vera
Á Hafnarfjalli Guðrún ásamt vinkonu sinni, Geirlaugu Jóhannsdóttur.
Alexandra Ósk Hermóðsdóttir og Eyja Rós Sigþórsdóttir héldu tombólu við
Krónuna á Akranesi og söfnuðu 2.162 krónum fyrir Rauða krossinn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is