Morgunblaðið - 02.05.2016, Page 24

Morgunblaðið - 02.05.2016, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 TWIN LIGHT gardínum Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. 40 ára Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú átt auðvelt með að hafa áhrif á annað fólk og telja það á þitt band. Endilega kauptu miða, verslaðu og gerðu plön núna. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að laga ýmislegt í starfs- háttum þínum og umfram allt þarftu að muna að æfingin skapar meistarann. Seinna geturðu dæmt um hvort kynni dagsins séu æði eða alveg hryllingur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reyndu að gæta háttvísi í sam- skiptum við maka. Ef þú veist að þú getur staðið við þitt, áttu ekki í vandræðum með að sannfæra aðra. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mundu að deila velgengni þinni með þeim sem standa þér næst. Sýndu þeim hjálpsemi og greiðvikni og þú munt hljóta þakklæti þeirra og viðurkenningu að laun- um. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Tengsl þín við peninga byggjast á innsæi. En nú ertu í miðjunni og veist hvað það tekur til að komast í mark. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Óvænt atburðarás hrífur þig með sér svo þú kemur engum vörnum við. Samtal við einhvern getur leitt til þess að þú öðlist dýpri skilning á hlutum sem þú hefur verið að velta fyrir þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Kipptu þér ekki upp við það, þótt þú fá- ir óvenulegar fréttir í dag. Taktu tíma til að einbeita þér og safna orku. Ekki er allt gull sem glóir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert tilbúinn til að finnast þú æðislegur. Boð mun vekja góðan hljóm- grunn hjá þeim sem er boðið. Góður ásetn- ingur verður að prýðilegri heppni seinna í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert tilbúin/n til að hjálpa vini þínum í dag. Kannski læknast efinn ef þú gerir einhverjum greiða. Vertu sanngjarn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Leiðin upp á tindinn getur stund- um verið löng og snúin. Allt sem þú hefur valið til þessa, leiddi þig að þessum tíma- punkti. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er komið að því að fjárfesta arðinn af erfiði þínu. Breytingar myndu hins vegar valda fleira fólki ónæði. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér er nauðsynlegt að brydda upp á einhverju nýju til þess að gefa lífinu lit. Gakktu glaður til verksins sem þér var falið. Þú færð skemmtilegt símtal fljótlega. Ólafur Stefánsson skaust til sólar-landa og segir svo frá á netinu: „Þegar farið er í pakkaferð í sólina er aðalreglan sú að menn eru ein- kvenna. Þannig, að með svolítilli heppni, er hægt að planta konunni í gluggasætið, setjast sjálfur í miðjuna og bíða svo hvort í þriðja sætið kem- ur tveggja metra maður, sem þarf helst eitt og hálft, eða verður það nett kona og þægileg. Í þetta sinn stefndu á okkur hjón og maðurinn settist hinum megin við ganginn en konan við hliðina á mér. Þægilegustu manneskjur en ákaflega syfjuð og höfðu líklega ekið náttfari utan af landi til að ná fluginu. Enda ekki meira en svo búin að seðja sig á langloku og vínglasi en þau voru búin að vefja sig teppum og voru stein- sofnuð. Eitthvað hefur radarinn á konunni verið ruglaður því hún endaði á öxl- inni á mér og svaf þar uns ókyrrð í lofti vakti hana. Flogið var yfir hauður og haf, – við hittumst það eina sinni – ábreiðu vafin á öxl minni’ ún svaf, með aðra höndina’ á minni. Það er auðvitað krökkt af Íslend- ingum á þessum vinsælustu hótelum, en það er líka gaman að kynnast fólki annars staðar frá. Í bekkjaröðinni okkar í garðinum var þetta svona. Ekki reyndist leyfið lítils virði, ljúft að hitta allra handa fólk. Frá Sri Lanka það var og Siglufirði, og sannir Skotar, hvítir eins og mjólk. Fjögura stjörnu matsalur, en sumum þótti ekki nógu gott og kölluðu „mötuneyti“. Borðuðu stundum annars staðar. Hótelið þó hlaðborð skreyti, og hafi stundum söng og dans, þá mæta lítt í mötuneyti Magnús Jón og spúsa hans. Á sumardaginn fyrsta héldu menn í tveimur liðum í skrúð- göngu og hafa innfæddir kannski haldið að þar færu krossfarar sem villst hefðu í tíma og rúmi, en það fór allt vel. Ég hafði það svona. Húsakynnin heldur góð, hér á Bella Vista. Sat ég þar og samdi ljóð á sumardaginn fyrsta. Á Spáni eru frískleg fljóð, þar ferðalangar gista. Sit ég við og sem mín ljóð, á sumardaginn fyrsta.“ Björn Ingólfsson gat ekki setið á sér og sendi Ólafi kveðju: Ólafur bóndi er íðilsnar ýmisleg ráð að brugga, kemur sér jafnvel á kvennafar með konuna sína úti í glugga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stutt ferðasaga til sólarlanda Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÓKEI, BARA EINU SINNI ENN OG SÍÐAN ER ÞAÐ HÁTTATÍMI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera heillaður af töfrum þínum. HEIMUR, SAKNAÐIR ÞÚ MÍN? ÉG SAKNAÐI ÞÍN EKKERT HELDUR ÞESSI ER STÓR! HVERS KONAR FISKAR ERU Í ÞESSUM HEIMSHLUTA? PÍRANAFISKAR! Víðlesinn maður sagði eitt sinn viðVíkverja að þegar hann læsi ævibækur brygðist sjaldan að sér þætti fyrsti kaflinn – æskuárin – sá besti. Það er margt til í þessu við- horfi eða að minnsta kosti er pæl- ingin skemmtileg. Barnsárin ein- kennast af leik, gleði og áhyggjuleysi og þá er lífið skemmtilegt. Fullorð- insárin eru hins vegar meiri kráku- stígur að þræða og fólk þarf að díla við alls konar kringumstæður og verja hagsmuni sína út og suður. Eitt af því er að þurfa að þegja yfir öllu mögulegu þegar farið er að skrifa söguna. Í bókinni Og svo tjölluðum við okkur í rallið, sem kom út fyrir síðustu jól, tekst Guðmundi Andra Thorssyni þó að finna fínan milliveg þessa. Bæði bregður hann upp raun- sannri mynd af því ólíkindatóli sem faðir hans, Thor Vilhjálmsson, var en segir líka skemmtilega frá æskuár- um sínum í Vogahverfinu í Reykja- vík á árunum um og eftir 1960. x x x Í hinni snotru Thorsbók, sem komút fyrir síðustu jól, segir frá mönn- um eins og Kjarval, Ólafi Thors, Halldóri Laxness, Einari Braga og mörgum öðrum sem alls konar frá- sagnir – sannar sem ýktar – gera að algjörum risum. Í þessari skemmti- legu bók er þó mestur fengur í þeim myndum úr Karfavogi bernsku sinn- ar sem Guðmundur Andri dregur upp. Þetta var barnahverfi og íbú- arnir voru af ýmsu sauðhúsi og víða frá. „Vogabúar voru allskonar fólk í allskonar húsum sem átti það sam- merkt að vera aðvífandi; aðkomu- menn og brottfluttir, förufólk,“ segir á einum stað. x x x Það er vissa Víkverja að í út-hverfum borgarinnar sé yfirleitt skemmtilegt mannlíf. Þar ægir öllu saman, þar er alls konar fólk og í slíku umhverfi gerast ævintýri sem góðum höfundum ber að færa til bók- ar. Bestar verða þá allar æskusög- urnar og barnahverfin í borginni eru mörg. Því er Thorsbókin, sem í grunninn er saga af litríkum lista- manni og umhverfi hans, í alla staði góð uppskrift að að fleiri bókum um lífið í borginni. Hvunndaginn og brauðstritið í öllum sínum yndislega fjölbreytileika. víkverji@mbl.is Víkverji Ég er ljós í heiminn komið svo að eng- inn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri. (Jóh 12:46)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.