Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is franskur, íslenskur, enskur eða heilsu Brunch alla daga frá 9-14 Frábær húðhreinsilína frá ENJO Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið Opið kl. 11-18 alla virka daga Vertu upplýstur! blattafram.is ÞÚ ERT LÍKLEGRI TIL AÐ GRÍPA INNÍ EF ÞÚ HEFUR ÞEKKINGU Á ÓÆSKILEGRI HEGÐUN Vegna mikillar sölu vantar okkur fasteignir á höfuðborgarsvæðinu, á söluskrá. Ef þú ert í söluhugleiðingum, endilega hafðu samband sem fyrst, í síma 5334200 eða : arsalir@arsalir.is Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign, hafðu samband í síma 533-4200 eða arsalir@arsalir.is Ágæti fasteigna eigandi ! Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi. Laugavegi 52 | 101 Reykjavík Sími 552 0620 | gullogsilfur.is Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxnaleggings kr. 6.900 Str. s-xxl Litir: svart og drapp Póstsendum Ný sending Mikið úrval af sundfatnaði Kíktu á heimasíðuna lifstykkjabudin.is LAUGAVEGI 82 101 REYKJAVÍK SÍMI 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Tveir meistarakokkar frá veitinga- staðnum Fäviken í Jämtland í Sví- þjóð munu leika listir sínar á veit- ingastaðnum Einsa Kalda í Vestmannaeyjum næstkomandi laugardagskvöld, 7. maí. Þeir munu bjóða upp á átta rétta Pop Up-kvöld- verð, sem ekki verður endurtekin. Matreiðslumeistararnir eru Pee- ter Pihel og Michael Jiro Holman. Þeir elda eftir svonefndri „Rektun Mat“-stefnu en „Rektun Mat“ þýðir raunverulegur matur og er höfuð- áherslan m.a. lögð á að hráefnin séu sem ferskust. Peeter Pihel er 36 ára Eisti. Hann var valinn matreiðslumaður ársins þar í landi árið 2008 og starfaði á veitingastaðnum Pädaste Manor sem var valinn besti veitingastaður- inn í Eistlandi í fjögur ár í röð áður en Pihel hóf störf á Fäviken. Michael Jiro Holman er þrítugur Kanada- maður og japanskur í aðra ættina. Áður en hann hóf störf á Fäviken starfaði hann m.a. í Japan, Kanada, Bandaríkjunum, S-Kóreu og Dan- mörku. Þess má geta að Fäviken- veitingahúsið státar af tveimur Mic- helin-stjörnum og er í 2. sæti yfir bestu veitingahús á Norðurlöndun- um og í 25. sæti yfir bestu veitinga- staði heimsins. Heimsókn þeirra Pihel og Holman má rekja til þess að Atli Snær Ker- ansson, matreiðslunemi hjá Einsa Kalda og Lava í Bláa lóninu, vann á Fäviken síðasta vetur. Þá kom upp hugmyndin um að bjóða matreiðslu- meisturunum tveimur til Vest- mannaeyja. Kvöldverðurinn kostar 9.500 kr. án víns og 17.500 kr. með víni sem kokkarnir velja. Nánari upplýsingar og borðapantanir fást hjá Einsa Kalda (s. 481 1415 og 698 2572). Hót- el Vestmannaeyjar (s. 481 2900) verður með tilboð á gistingu í tengslum við Pop Up-kvöldverðinn. gudni@mbl.is Michelin-kokkar elda hjá Einsa Kalda  Verða með átta rétta kvöldverð í Eyjum á laugardag Meistarakokkar Einar Björn Árna- son, Peeter Pihel og Michael Jiro. Lúðrasveitin Brasset frá Linköping í Svíþjóð heldur tón- leika hér á landi um næstu helgi. Til stendur að Brasset spili fyrir gangandi vegfarend- ur í miðborg Reykjavíkur á laugardag. Þá mun lúðra- sveitin halda tónleika í Fíladelfíu á laugardag kl. 18.00. Einnig mun hún þeyta lúðrana á samkomu í Fíladelfíu kl. 11.00 á sunnudagsmorgun. Lokatónleikarnir verða í Fella- og Hólakirkju í Breiðholti á sunnudagskvöld kl. 20.00. Frítt er á tónleikana. Lúðrasveitin Brasset kemur úr Ryttargårdskyrkan í Linköping og spilar þar við hin ýmsu tækifæri. Brasset var stofnað 1960 og í lúðrasveitinni eru 27 hljóðfæraleik- arar á aldrinum frá tvítugu til áttræðs. Efnisskráin er fjölbreytt, sænsk þjóðlög, Hjálpræðisherstónlist og eldri sálmalög. Stjórnandi er Daniel Bjurhamn. Brasset á mörg og löng tónleikaferðalög að baki. Lúðrasveitin hefur m.a. farið í tónleikaferð um Banda- ríkin og Kanada, Hong Kong og Japan, Ástralíu og Nýja Sjáland. Þá hefur hún ferðast víða um Evrópu og spilað t.d. í Þýskalandi, Frakklandi, Eistlandi og Noregi. Þetta er fyrsta heimsókn Brasset til Íslands. gudni@mbl.is Brasset Lúðrasveit frá Linköping í Svíþjóð heldur tónleika hér á landi um helgina, m.a. í miðborg Reykjavíkur. Sænsk lúðrasveit heldur tónleika mbl.is alltaf - allstaðar Þegar Dalvíkingar vöknuðu að morgni uppstigningardags hafði hval rekið á land í fjörunni neðan við bæinn. Var mikil umferð barna og fullorðinna niður í fjöru til að skoða hvalinn. Að sögn lögreglunnar á Dalvík var um búrhveli að ræða. Fullvaxn- ir búrhvalstarfar geta orðið um 20 metrar að lengd og 40-50 tonn að þyngd en þessi búrhvalur var um 13 metrar á lengd. Því er talið að um kálf hafi verið að ræða. Sjaldgæft er að sjá búrhveli í Eyjafirðinum, þar sem þeir kjósa að komast niður á meira dýpi. Sævar Freyr Ingason, lögreglumaður á Dalvík, sagði við mbl.is að þetta væri fyrsti hvalrekinn á Dalvík af þessari stærðargráðu í þau 32 ár sem hann hefði starfað þar. annaei@mbl.is Dalvíkingar vöknuðu við hvalreka Dalvík Margir fóru í fjöruferð í gær að skoða búrhvalinn í sandinum. Ljósmynd/Bryndís Anna Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.