Morgunblaðið - 06.05.2016, Side 12
Styrktarfélagið Göngum saman efnir
til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna á
sextán stöðum á landinu á mæðra-
daginn, sunnudaginn 8. maí. Gangan
hefst alls staðar á sama tíma kl. 11 í
Reykjavík, Borgarnesi, Stykkishólmi,
Patreksfirði, Ísafirði, Hvammstanga,
Siglufirði, Akureyri, Vopnafirði, Egils-
stöðum, Neskaupstað, Reyðarfirði,
Höfn, Vestmannaeyjum, Selfossi og
Reykjanesbæ.
Í Reykjavík verður gengið frá
Háskólatorgi þar sem vísindamenn,
sem þegið hafa styrki félagsins,
kynna störf sín. Markmið styrktar-
félagsins Göngum saman er að afla
fjár til að styrkja grunnrannsóknir á
eðli og orsökum brjóstakrabbameins
og flýta fyrir bættri meðferð og aukn-
um lífslíkum. Mæðradagsgangan er
gjaldfrjáls og stærsti einstaki fjáröfl-
unarviðburður félagsins þar sem
fólki gefst kostur á að styrkja rann-
sóknir með frjálsum framlögum eða
með því að festa kaup á varningi
Göngum saman.
Í ár verða m. a. seldir bolir, höfuð-
klútar og margnota innkaupapokar,
Mæðradagsganga Styrktarfélagsins Göngum saman
Teikningarnar og kennimerkið
þóttu of dónaleg fyrir Facebook
Gengið saman Góð þátttaka var í árlegri vorgöngu styrktarfélagsins í fyrra.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Vitað er að sumir foreldrarbeita börn sín andlegu oglíkamlegu ofbeldi. Slík málrata annað slagið í fjöl-
miðla hér heima og erlendis, sér-
staklega ef ofbeldið er óvenjulega
hrottalegt og felur í sér stórfelldar
líkamsmeiðingar, vanrækslu og/eða
sérlega gróft kynferðislegt ofbeldi.
Gera má því skóna að félagsmála-
yfirvöldum sé kunnugt um fleiri til-
vik en þau sem almenningur fær
vitneskju um og grípi þá inn í með
viðeigandi hætti, greini og skrái. En
eru dæmi um að þessu sé öfugt far-
ið? Að börn eða unglingar beiti for-
eldra sína ofbeldi?
Forvitni Guðrúnar Andreu
Maríudóttur, nema í félagsráðgjöf í
Háskóla Íslands, á þeim möguleika
vaknaði í áfanganum Ofbeldi og van-
ræksla í fjölskyldum. „Aðallega
vegna þess hversu lítið var þar
fjallað um ofbeldi af hálfu barna
gegn foreldrum sínum. Mig langaði
að læra meira og ákvað að fjalla um
málið frá ýmsum sjónarhornum í
lokaritgerðinni, sem ég skilaði um
áramótin.“
Guðrún Andrea komst fljótt að
raun um að á Íslandi höfðu aldrei
verið gerðar rannsóknir um ofbeldi
barna og unglinga gegn foreldrum
og sáralítið var til af erlendum rann-
sóknum. Hún hélt engu að síður
ótrauð áfram og beindi sjónum sín-
um að þeim erlendu rannsóknum
sem þó voru til og skoðaði frétta-
flutning íslenskra fjölmiðla af slíkum
málum. Aukinheldur kannaði hún
meðferðarúrræði fyri börnin og for-
eldra þeirra og rýndi í ársskýrslur
Barnaverndarstofu þar sem greint
er frá fjölda tilkynninga um ofbeld-
isbrot og þau flokkuð í stórum drátt-
um eftir eðli þeirra.
Áhættuhegðun
„Þegar barn beitir ofbeldi fellur
það undir áhættuhegðun í flokk-
unarkerfi Barnaverndarstofu, án
þess þó að greint sé frá að hverjum
ofbeldið beinist. Árið 2012 bárust
stofunni 308 tilkynningar um ofbeld-
isbrot barna og unglinga og voru
drengir í miklum meirihluta, eða 242
á móti 66 stúlkum. Ári síðar voru til-
kynningarnar 346 og hlutfall
drengja ívið hærra en 2012. Í sam-
anburði við niðurstöður erlendra
rannsókna er ekki ólíklegt að ofbeld-
ið hafi í einhverjum mæli beinst að
foreldrunum.“
Hér á landi flytja fjölmiðlar afar
sjaldan fréttir af þessum brotum,
sem Guðrún Andrea segir að séu þó
vel þekkt meðal fagfólks sem vinnur
með fjölskyldum. „Þau eru kannski
af skiljanlegum ástæðum hálfgert
tabú víðast hvar,“ segir hún. „Mikil
þöggun ríkir bæði vegna barna-
verndarsjónarmiða og þess að oft
upplifa foreldrarnir skömm og finnst
þeir ekki hafa staðið sig í uppeldis-
Ofbeldi unglinga
gegn foreldrum
Fyrirsögnin er yfirskrift BA-ritgerðar Guðrúnar Andreu Maríudóttur í
félagsráðgjöf í Háskóla Íslands. Hún segir að þótt fagfólki í félagsþjón-
ustunni sé kunnugt um nokkur tilvik þar sem unglingar beita foreldra
sína ofbeldi hafi engar rannsóknir verið gerðar hérlendis, erlendar
rannsóknir séu af skornum skammti og málið sé víða hálfgert tabú.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhugi Guðrún Andrea Maríudóttir fékk áhuga á að kanna ofbeldi barna
gegn foreldrum sínum í áfanganum Ofbeldi og vanræksla í fjölskyldum.
Það er einfalt að eiga snjall-síma en það getur veriðflókið að nota hann rétt.Með heiminn í höndunum
og engar reglur er viðbúið að sumir
fara af sporinu og einfaldlega kunna
ekki að vera skemmtilegir og snið-
ugir. Um það snýst snjallsíminn. Að
gera líf annarra skemmtilegra. Ekki
að monta sig. Enginn kann að meta
monthana sem sýnir hvað það sé
gaman hjá sér. Því allir vita að gleði-
pillur á Snapchat virka öfugt. Þá ertu
í raun að segja að líf þitt sé brotið og
frekar ömurlegt á milli þess sem þú
staupar þig í partýi.
Snapchat er samfélagsmiðill þar
sem engar reglur eru til um hvernig
eigi að nota forritið. Alltof margir
kunna ekki að nota Snapchat og sem
snjallsímadómari hef ég, í annað sinn,
ákveðið að setja saman nokkrar regl-
ur sem notendur forritsins ættu að
lesa. Ég greinilega náði ekki til allra í
fyrri pistlinum. Þar fór ég yfir nátt-
úrusnöpp, Söguna mína eða „my
story“, að 10 sekúndur séu ekki 12
sekúndur, tónleikasnöpp og almenn
dólgslæti á fylleríi. Svo var að
sjálfsögðu kafli um nýju filter-
ana.
Jæja.
Höldum
áfram.
Nú er
íþróttahátíð í bæ.
Úrslitaleikir með
tilheyrandi spennu og
stuði á pöllunum. Snap-
chat dregur úr mynd-
gæðum og hljóðgæðum á
öllum símum. Líka ef þú ert
með nýjan iPhone eða LG.
Það er því lítið skemmtilegt
að heyra skruðninga um
hvað það sé gaman í stúk-
unni. Stuðið í stúkunni skil-
ar sér illa á Snapchat.
Nærmyndir af íþrótta-
hetjum eru líka ekki í boði. Mikill að-
dráttur skilar sér illa.
Það er einnig alveg bannað að setja
sögu í My story en einnig að senda
fólki persónulega. Það er eins og að
líka við sinn eigin status eða setja
Twitter-færsluna sína á Facebook.
Suð og tuð er líka alveg bannað. Þá
minnirðu bara á aðdáanda Britney
Spears á Jútjúb. Hann var nú eitt-
hvað klikk og ekki viltu vera klikk. Þá
er betra að kommenta bara á fréttir.
Svona dagur er líka ekki vel séður.
Að þú sért að þvo bílinn eða fara í
ræktina eða borða hollt er ekkert
sem þú þarft að tilkynna heiminum.
Börnin þín eru yndisleg og allir
vita það. Að barnið þitt sé ekki að
gera neitt merkilegt er ekki merki-
legt. Það er meira að segja frekar
ómerkilegt. Og ef það er að gera
eitthvað merkilegt þá áttu sem
foreldri að setja minningarnar í
heilann á þér, ekki í snjall-
símann.
Barnasnöpp
eru erfið og
eiga bara að fara á
ömmuna og afann.
Guðforeldrar sleppa
en láttu vinina vera. Því
miður þá er þeim alveg
sama. Þetta eru ekki
margar reglur og ég held
að allir viti þær. En samt
eru þær þverbrotnar sí og
æ. Ekki vera fáviti og
gerðu lífið skemmtilegra.
Ekki leiðinlegra.
»Suð og tuð er líka al-veg bannað. Þá minn-
irðu bara á aðdáanda Brit-
ney Spears á Jútjúb.
Heimur Benedikts
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Nú þegar vorið er loksins komið sam-
kvæmt almanakinu en við finnum lítt
fyrir hlýindum eins og við þráum á
þessum árstíma, er engin ástæða til
að láta það fara í taugarnar á sér. Ef
okkur langar að vera úti þá bara
klæðum við okkur samkvæmt veðri
og sjúgum ofan í okkur súrefni sem
bætir geð. Ef við nennum ekki út og
erum geðvond yfir kuldanum, þá er
um að gera að taka til við dans,
stepp, söng eða annað sprell til að
koma sér í betra skap. Og glenna upp
hvoftinn í brosi, það klikkar aldrei.
Endilega …
…látið kuldann ekki á ykkur fá