Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 20

Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 ✝ Gunnar SteinnGuðlaugsson fæddist í Reykja- vík 4. október 2000. Hann lést á Barnaspítala Hringsins 26. apríl 2016. Foreldrar hans eru Aðalheiður Þorsteinsdóttir, f. 15.júní 1974, og Guðlaugur Jón Gunnarsson, f. 5. nóvember 1972 í Reykjavík. Systkini Að- alheiðar eru Gísli, f. 27.1. 1971, Gunnar, f. 22.5. 1975, og Guð- björg, f. 24.6. 1977. Foreldrar Þorsteinn Gíslason, f. 11.1. 1943, og Sigríður Gunn- arsdóttir, f. 24.3. 1946. Systkini Gunnar í Hörðuvallaskóla þar til hann veiktist 11 ára gamall. Gunnar var mikill áhuga- maður um flug og átti þann draum að verða flugmaður. Hann hafði mikinn áhuga á ferðalögum, fara á fjarlæga staði og sjá ný lönd, nýjar borgir. Hann hafði komið víða, t.d. New York, Flórída, sigl- ingu til Bahama, Danmerkur, Finnlands, Spánar og Hollands. Síðasta utanlandsferð hans var til London sem hann fékk að gjöf frá mörgum velviljuðum og vel hugsandi þar sem hann fékk að fylgja uppáhalds- knattspyrnuliði sínu, sem var Arsenal. Gunnar stundaði knattspyrnu, körfubolta, skíði og golf og var mjög áhuga- samur um golfið en varð að hætta þegar veikindi hans komu í ljós. Útför Gunnars Steins fer fram frá Lindakirkju í Kópa- vogi í dag, 6. maí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Guðlaugs eru Bryndís Mjöll, f. 24.11. 1969, og Bjarni Bogi, f. 4.8. 1979. Foreldrar Gunnar Örn Jóns- son, f. 29.10. 1944, og Jenna Kristín Bogadóttir, f. 5.3. 1947. Systkini Gunnars Steins eru Eva Björg, f. 6.2. 1994, og Bjarki Steinn, f. 4.1. 2008. Maki Evu Bjargar er Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson, f. 3.2. 1994. Fyrstu skólaár Gunnars voru í Lágafellskóla í Mosfellsbæ og bjó fjölskyldan þá í Spóahöfða 2, síðar fluttu þau í Drekakór 6, Kópavogi. Eftir það gekk Nú er komið að kveðjustund, elsku yndislegi drengurinn okk- ar. Við erum óendanlega þakk- lát fyrir tímann sem við fengum með þér. Þú varst einstaklega ljúfur, fallegur og greindur drengur. Þú kenndir okkur svo margt, þú tókst á veikindum þínum af yfirvegun og æðru- leysi. Aldrei barmaðir þú þér og ef þú varst spurður hvernig þér liði var svar þitt ávallt „ég er fínn“ eða „það er ekkert að mér“ og svo kom bros. Allar þær góðu minningar sem við eigum um þig geymum við í brostnum hjörtum okkar þar til að við hittum þig aftur á betri stað. Við erum þakklát og stolt að hafa verið foreldrar þínir, elsku Gunnar. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Kveðja, mamma og pabbi. Elsku fallegi litli bróðir með þín fallegu bláu augu. Augun þín sem sýndu einlægnina og sakleysið þitt. Þú varst undra- barn og svo góður við alla. Mamma sagði við mig að tím- inn þarna uppi væri afstæður og trúi ég því vel. Fimmtíu ár hér geta verið vika eða jafnvel sól- arhringur hjá þér. Einn daginn mun ég koma til þín og við get- um leikið okkur saman eins og við gerðum best. Á hverjum degi vorum við samferða heim eftir skóla og áttum þá allan daginn í að leika úti með vatnsblöðrur og fót- bolta, tína skeljar og stundum kríta stéttina til að taka vel á móti mömmu og pabba þegar þau komu heim. Pabbi smíðaði einn flottasta kassabíl sem nokkur krakki hefur átt og vor- um við svo montin af honum og keyrðum hann út um allar triss- ur og niður alla hóla í Mosfells- bænum. Þú varst einstakur bróðir og minn besti vinur. Hvert sem ég fór, þar varst þú, og hvar sem þú varst, þar var ég. Við vorum svo samrýnd og ólíkt öðrum systkinum rifumst við aldrei, ætli við höfum ekki verið að njóta tímans sem við höfðum saman. Þú kenndir mér svo margt sem ég mun alla tíð eiga. Ég er svo óendanlega þakklát að hafa átt þig að. Minning þín mun lifa. Þín systir, Eva Björg. „Drottinn þú varst hjá okkur þegar líf okkar kviknaði í móð- urlífi, vertu hjá okkur við ævi- lok.“ Amen. Á fyrsta degi lífs þíns hitti ég þig, elsku hjartað mitt, það var erfitt fyrir þig að koma inn í þennan heim, það þurfti að nota þau tæki sem læknar ráða yfir til að toga þig til okkar sem bið- um full væntingar um þig. Fal- legur og fullkominn varstu. Við afi fengum að kynnast þér svo vel og eyða með þér mörgum stundum, fengum að taka þátt í stóru dögunum þín- um, skírnin, afmælin eitt af öðru, jólin, fermingin þín, skíða- ferðir, utanlandsferðir, við feng- um að deila með þér gleði og sorgarstundum. Á síðasta degi lífs þíns fengum við einnig að fylgja þér. Allt frá þinni fyrstu stundu til þinnar hinstu varstu okkur uppspretta gleði og djúps þakklætis. Gunnar Steinn var 11 ára þegar hann mætti grimmdarleg- um örlögum sínum. Veikindi hans heimtuðu allt af honum, síðast líf hans. Við áttum von og trú um bata lengi en áföllin end- urtóku sig, að lokum sofnaði þreyttur, ljúfur drengur í örm- um fjölskyldu sinnar inn í annan heim. „Því þín vegna býður hann út englum sínum til að gæta þín á öllum vegum þínum.“ Sálm. 91,11. Hann sýndi með lífi sínu ást og umhyggju fyrir fólkinu sínu. Kvartaði aldrei, þótt þjáningin væri hlutskipti hans. Hjarta- hreinn var hann, æðrulaus, þol- góður, ávallt prúður, hæglátur, þó mikill húmoristi. Skaut oft að okkur hnyttni þannig hlegið var dátt. Hann var í alla staði sonur sem hvert foreldri hefði verið stolt af. Lítill drengur, vel gefinn, skemmtilegur og fallegur er skyndilega sviptur framtíðinni. Hvar var Guð þegar við þörfn- uðumst hans? Guð svaraði bænum okkar með nærveru sinni, hann gaf styrk þegar á þurfti að halda. Þakklætið fyrir hann stendur upp úr. Sorgin og söknuðurinn nístir hjörtum en þakklætið sprettur fyrir líf hans, fyrir það hver hann var, svo heilsteyptur og æðrulaus. Við erum mörg sem elskum Gunnar Stein, frændgarðurinn er stór, við syrgjum hann öll. Elskulega Eva stóra systir, hún og Gunni áttu sérstakt kær- leikssamband, Alli var honum sem bróðir og Bjarki, litli bróð- ir, sýndi Gunna umhyggju og tillitssemi. Foreldrarnir lögðu allt í söl- urnar fyrir soninn sinn, en allt kom fyrir ekki. Við erum stolt af þeim hve vel þau tóku á þessu erfiða hlutskipti sínu og hversu dásamlegir foreldrar þau voru barni sínu. Pabbi hans mætti honum með uppörvun og húmor. Mamma hans helgaði sig umönnun hans, það varð hennar hlutverk í þessi ár og var fallegt að horfa á þeirra nána samband sem varð æ sterkara eftir því sem tíminn leið. „Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,“ þessi orð úr 23. Davíðssálmi veita huggun nú. Já, nú hvílist þú, elskulegi góði drengurinn okkar. „Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævi- daga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi.“ Við trúum að Gunnar hvílist nú í húsi Drottins. Í hjörtum okkar og huga lifir hann áfram með okkur dag hvern um ókom- in ár. Blessuð veri minning hans. Amma Jenna Kristín og afi Gunnar Örn. Það tekur okkur afar sárt að horfa á eftir barnabarni okkar, Gunnari Steini, eftir nokkurra ára hetjulega baráttu við illvígt mein. Gunnar Steinn gekk í gegnum langa og stranga lækn- ismeðferð og tókst á við þrautir sínar af miklu æðruleysi, sem var einstakt í ljósi ungs aldurs. Aldrei kvartaði hann þrátt fyrir þær þungu byrðar sem á hann voru lagðar, heldur var upplits- djarfur og veitti um leið fjöl- skyldu sinni aukinn styrk á þessum erfiðum tímum. Allt kom þó fyrir ekki og á endanum var heilsan á þrotum og fjöl- skylda og ættingjar Gunnar Steins misstu frá sér góðan dreng. Eftir sitja minningar, falleg- ar minningar sem ekki er hægt að taka frá okkur. Af þeim er af nægu að taka, enda var Gunnar Steinn tíður gestur í Vestur- bergi, einkum á sínum yngri ár- um. Eins og oft háttar með ömmur og afa voru við fengin til þess að sækja hann í leik- skóla og skóla á meðan foreldr- arnir voru í vinnu. Hann þótti heldur fámáll þegar inn var kominn, en þótti gott að setjast inn í stofu og horfa á nokkrar teiknimyndir, sem afa hans þótti alls ekki slæmur kostur, þangað til mamma hans kom og sótti hann. En Gunnar Steinn var langt frá því að vilja sitja tímunum saman aðgerðalaus og stara á sjónvarpið, þrátt fyrir að deila smekk afa síns hvað teikni- myndir varðar. Hann var iðinn og atorkusamur með afbrigðum þegar heilsan leyfði á yngri árum. Einkum var hann áhuga- samur um silungsveiði, mótor- kross, fótbolta og golf, sem hann stundaði hjá GKG um tíma. Eflaust hefði hann skarað fram úr í öllum þessum grein- um ef hann hefði fengið tæki- færi til þess. Hvíl í friði, elsku vinur, og takk fyrir samfylgdina. Þín amma og afi, Þorsteinn og Sigríður. Það var með trega og sökn- uði sem við fjölskyldan sett- umst niður til að rifja upp minningar um Gunnar Stein, frænda okkar og vin. Fljótlega náðu þó frábærar endurminn- ingar, virðing og þakklæti fyrir að hafa kynnst Gunnari yfir- höndinni. Við töluðum um minn- ingar sem tengjast uppeldi og ótal stundir í Deildarásnum í pottinum, í Skorradal, í Orlando, Finnlandi, Sviss, New York og Danmörku. Persónuleiki Gunnars Steins var einstakur. Hann var sann- gjarn, skemmtilegur, þolinmóð- ur og ekki frekur, að ekki sé nú minnst á hvað hann var sætur og góður með fallegu bláu aug- un sín. Með áhuga sínum á mót- orhjólum og flugi dró hann með sér félaga og vini í spjall og til- raunir. Þegar kom að hlutum sem hann átti var hann óhræddur að leyfa öðrum að prófa og var vinur í raun. Hann öðlaðist virðingu og ábyrgðar- kennd gagnvart dýrum, hvort sem var með fugla og fuglsunga eða hunda. Síðustu árin þegar Gunnar Steinn barðist við veikindi voru persónueinkenni hans sérstak- lega áberandi. Þvílíkur húmor- isti sem nýtti tækifærin á slunginn hátt til að stríða á sinn hátt og beindist það þá jafnan að Gulla, afa Gunna eða öðrum úr fjölskyldunni sem áttu þá jafnan fá svör. Æðruleysi hans og hæverska var með ólíkindum og hann kvartaði aldrei. Það var alltaf gaman að hitta Gunnar Stein. Þegar barn eða unglingur veikist er það óraunverulegt og ósanngjarnt. Baráttan stóð í langan tíma og alltaf virtist vera von. Gunnar Steinn var algjör hetja sem horfði alltaf fram á veginn og vildi endilega mæta í útskriftir, skírnir og fleira sem var að gerast hjá fjölskyldunni. Það gladdi okkur ósegjanlega þegar hann mætti ásamt fjöl- skyldunni í útskriftina hennar Jennu síðasta vor, nýbúinn að fá mjög vondar fréttir, svo slæmar að við vorum að hugsa um að fresta veislu. Hann mætti með bros á vör með sínu fólki, það sem hann gladdi okkur. Þvílíkur styrkur. Hann vildi fagna með frænku sinni og svo var hann svo frændrækinn eins og pabbi sinn, langaði að koma og hitta stórfjölskylduna sína. Við þökk- um fyrir þetta. Að horfa á vin sinn og frænda í baráttu er ekki hluti af daglegu lífi og reynir á ýmsar tilfinningar og hegðun. Nú þegar við stöndum frammi fyrir því að kveðja Gunnar Stein standa eftir ein- stakar og góðar minningar, slæmar minningar um sjúkdóm en einnig fullvissa fyrir því að nú er Gunnar kominn til Guðs. Við finnum til með Gulla, Heiðu, Evu, Bjarka Steini og ömmu og afa. Við munum sakna Gunnars Steins en góðar minningar standa eftir og þakklæti fyrir samveruna. Við munum aldrei gleyma honum. Fjölskyldan Asparhvarfi 20, Bryndís Mjöll, Guðmundur, Jenna Björk, Skorri Hrafn, Sunna Magný, Karítas Elín og Gunnar Óli. Elsku Gunnar minn, nú er tími þinn hjá okkur á enda. Þú barðist til síðustu stundar og ávallt tókst þú á við sjúkdóminn af miklu æðruleysi. Sterkari dreng þekki ég ekki og mun ef- laust aldrei kynnast. Þú skilur eftir stórt tómarúm í hjarta mínu, nú þegar þú ert farinn. Ég kynntist Gunnari Steini daginn sem hann fæddist. Það var mikil gleði að eignast lítinn frænda, svo fallegan með sín stóru bláu augu. Það var gaman að fylgjast með þér fyrstu árin þín í Spóahöfðanum. Ég man vel eftir einni helgi sem við áttum saman. Foreldrar þínir og systir fóru til útlanda og það kom í hlut stóru frænku að passa þig. Ég man að ég var pínu stressuð að þurfa að sjá um 6 ára gutta. Þú varst mikill aðdáandi Lata- bæjar á þeim tíma og við náðum að tengjast vel því það var ný- komin út Latabæjarbók og þar átti að leysa ýmis verkefni og safna orkustigum. Við eyddum því helginni að telja ofan í þig vatnsglösin og grænmetið og merkja við. Árið 2008 fluttir þú svo í Kópavoginn og eignaðist lítinn bróður. Þú varst svo efnilegur drengur, ákaflega vel gefinn. Lífið gekk sinn vanagang þar til dag einn í byrjun júní árið 2012. Þú veiktist og varst í framhald- inu greindur með krabbamein. Viku síðar varstu kominn í að- gerð þar sem reynt var að fjar- lægja meinið. Ekki orðinn 12 ára gamall og farin í átta klukkutíma aðgerð. Þetta voru mjög erfiðir tímar. Þú stóðst þig eins og hetja eins og alltaf. Í framhaldi af aðgerðinni tóku við sex erfiðar vikur þar sem þú þurftir að fara í geislameðferð. Eftir geislameðferðina tók svo ein lyfjameðferðin við af ann- arri. Inn á milli þurftir þú svo að fara í myndatökur þar sem þú þurftir að liggja kyrr í tæpan klukkutíma í senn. Aldrei heyrð- ust neinar kvartanir frá þér. Líf þitt þessi fjögur síðustu ár voru ekki auðveld en þú stóðst þig eins og hetja og sýndir þvílíkan kraft. Þú áttir marga góða að og allir voru tilbúnir að aðstoða eða reyna að gera eitthvað fyrir þig. En núna er komið að leiðarenda og ég er svo glöð að hafa getað átt stutta stund með þér og mömmu þinni í vikunni áður en þú lést. Þú varst alltaf með húmorinn tilbúinn. Ég sagði þér að ég þyrfti að fara á fund en ég hefði sagt viðkomandi að ég ætti stefnumót sem var mikilvægara og þyrfti að færa fundinn. „Ha, stefnumót með frænda þínum, er það ekki eitthvað skrítið,“ og svo brostir þú svo fallega til mín. Núna sit ég og spyr mig af hverju ég eyddi ekki meiri tíma með þér á meðan það var hægt. En maður var fastur í hvers- dagsleika lífsins. Alltaf einhverj- ar leikskólapestir heima og því vildi ég ekki bera smit til ykkar. En Gunnar, ég get sagt þér það að ég hugsaði til þín allan tím- ann, það leið aldrei sá dagur sem ég var ekki að hugsa til þín. Ég mun aldrei gleyma hug- rakka litla frænda mínum sem nú er farinn frá okkur. Elsku Heiða, Gulli, Eva og Bjarki, guð veiti ykkur styrk og æðruleysi á þessum sorgartím- um. Ég kveð þig í bili, elsku frændi minn. Einlægar samúð- arkveðjur frá fjölskyldunni, þín frænka, Guðbjörg. Elsku Gunnar Steinn, nú flýgur þú af stað á braut nýrra ævintýra. Við stöndum eftir í sárum söknuði með sorg í hjarta en einnig þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman. Þú varst alla tíð mikill gleði- gjafi og elskaður af mörgum. Þú skilur eftir djúp spor í hjörtum okkar allra og mikil ást og ham- ingja mun lifa áfram í minningu þinni. Gunnar minn, þegar ég hugsa til þeirra stunda sem við áttum saman get ég ekki annað en brosað og minnst þinnar ynd- islegu nærveru, óbilandi já- kvæðni og húmors. Þrátt fyrir erfiðleika og ósanngirni stóðst þú alltaf sterkur sem klettur á móti straumnum og hélst alltaf áfram að vera jákvæði, duglegi og yndislegi litli frændi minn. Þú ert fyrirmynd mín og sterk- asta manneskja sem ég hef kynnst. Ég var að fletta í gegnum gamlar myndir og tók eftir því að þú og Eva voruð á annarri hvorri mynd, við Eva auðvitað í eins fötum á langflestum þeirra, en við áttum svo margar góðar stundir saman. Þegar við lékum okkur á trampólíninu eða með Tuma í Mosó, kúrðum okkur saman í Skorradalnum hjá ömmu og afa eða ferðuðumst er- lendis. Til dæmis þegar við fór- um í skíðaferðina til Sviss með allri stórfjölskyldunni og það var tekið svo mikið á því í brekkunum að þegar þú tókst af þér hjálminn var eins og þú værir nýkominn úr sturtu. Einnig minnist ég frábærra ferða til Flórída, Spánar og fleiri staða þangað sem lífsgleði þín og hamingja elti þig og þá sem þér fylgdu. Takk fyrir samveruna, elsku frændi. Ég veit að þú ert í góð- um höndum núna og minning þín mun halda áfram að veita okkur gleði og kærleik. Jenna Björk. Mannsævi er misjöfn. Frændi minn Gunnar Steinn lifði ekki mörg ár en hann bjó yfir meiri reynslu, þekkingu og þroska en margur sem hefur lifað töluvert lengur. Á meðan hversdagsvandræði öngruðu okkur hversdagsmann- eskjur barðist Gunnar Steinn hetjulegri baráttu við raunveru- legan háska. Þegar sorgin steðjar að geta hlutverkin raðast með einkenni- legum hætti. Sá sem mesta þörf hefur fyrir huggun verður hugg- ari. Gunnari Steini voru gefnir Gunnar Steinn Guðlaugsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA ÓLAFSDÓTTIR, Brekastíg 12, Vestmannaeyjum, lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum 2. maí síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 14. maí kl. 14. . Hlynur Sigmundsson, Ólafur Sigmundsson, Kateryna Sigmundsson, Anita Lind Hlynsdóttir, Roman Alexander Hlynsson og barnabörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.