Morgunblaðið - 06.05.2016, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.05.2016, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 Atvinnuauglýsingar Allar nánari upplýsingar veitir Stefán Hrafn hdl. lögg.fasteignasali í síma 535-1000/895-2049 Umsóknarfrestur er til 15. maí. Lögfræðingar- Viðskiptafræðingar -Löggiltir fasteignasalar!        liðsheild. Okkur vantar duglegan og drífandi starfsmann til að annast og halda utan um reikningsfrágang, skjalafrágang og undirbúning kaupsamninga. Mjög góð og vönduð vinnuaðstaða í boði. Æskilegteraðviðkomandi sé löggiltur fasteignasali eða stefni á nám til löggildingar á næstunni. Laun og önnur kjör eru samkomulag. Við erum staðsett í Borgartúni 30 í Reykjavík. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og bingó kl. 13.30 Árskógar 4 Smíðar/útskurður með leiðb. kl. 8.30-16. Boccia með Sigríði kl. 9.30-10.30. Innipútt opið kl. 11-12. Bingó með Lóu í dag kl. 13.10. Myndlist með Elsu kl. 13-17. Bólstaðarhlíð 43 Fréttaklúbbur kl. 10.30 og Qigong kl. 13.20. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl.10.15. Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, upplestur úr dagblöðum viku- nnar kl.10, pílukast kl.11, slökun og hugleiðsla kl. 14. Furugerði Handavinnustofa án leiðbeinanda opin kl. 8-16, morgun- matur kl. 8.10-9.10, leikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30-12.30. Föstudagsfjör (boðið upp á ýmsa viðburði, spil, tónlist, kvikmyndir og upplestur) kl. 14, kaffi kl. 14.30-15.30 og kvöldmatur kl. 18-19. Nánari upplýsingar í síma 411-2740. Garðabæ Vatnsleikfimi í Sjálandslaug kl. 8 og 8.50, félagsvist FEBG kl.13, bíll frá Litlakoti kl.12.20 ef óskað er, frá Hleinum kl.12.30 frá Garðatorgi 7 kl.12.40 og til baka að loknum spilum. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnuhópur, sjálfbær kl. 9-12. Prjónakaffi 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband m/ leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing, Gerðubergskór (Allir velkomnir) kl. 13.30-15.30. Gjábakki Handavinna kl 9, boccia kl 9.10, gler- og postulínsmálun kl 9.30, eftirmiðdagsdans kl 14, seinasti tími eftirmiðdagsdans fyrir sumar er 13. maí. Félagsvist kl 20. Gullsmári Tiffanýgler kl. 9, leikfimi og ganga kl. 10, fluguhnýtingar kl. 13, gleðigjafarnir kl. 14. Hárgreiðslustofa og Fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir! Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9 – 12. Útskurður kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, Boccia kl. 10.30. Hádegismatur kl. 11.30. Hárgreiðslustofa s. 8218226. Snyrtistofa s. 6984938. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, handavinnuhópur kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Spilað bridge kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.45. Við hringborðið kl. 8.50,Thai Chi kl. 9, listasmiðjan kl. 9, boccia kl. 10.20, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Sundleikfimi kl. 9.30 í Grafarvogssundlaug, Qigong með Þóru Halldórsdóttir kl. 11 í Borgum, hannyrðahópur kl. 12.30 í Borgum, Bridge kl. 12.30 í Borgum og hið rómaða vöfflukaffi í Borgum frá kl. 14.30 til 15.30.Tréútskurður, leiðbeinandi Davíð Guðbjartsson kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Lönguhlíð 3 13.00 frásagnarhópur kvenna, fróðleikur og spjall, 14.30 kaffiveitingar, 15.00 bíósýning á 3. hæð. Verið velkomin! Norðurbrún 1 9.45 stólaleikfimi, 9-12 trésmiðja, 9-12 listasmiðja m/leiðbeinanda, 10.15 Lesið upp úr dagblöðum, 11 bókmenntahópur, 14.00 Guðsþjónusta Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl. 13.30. Ath.Til þeirra sem skráðir eru í sameiginlega vorferð félagsstarfsins og kirkjunnar þriðjudaginn 10. maí nk. þá leggur rútan af stað frá Skólabraut kl. 9.00 með viðkomu við kirkjuna. Sléttuvegur 11-13 Opið frá kl. 8.30-16, kaffi á könnunni kl. 8.30- 10.30, gönguhópur kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30-12.30, boccia kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30, dagblöð og púsl til afþreyingar. allir vel- komnir. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Qigong kl. 10.30 Leiðbeinandi Inga Björk Sveinsdóttir - Dansað sunnudagskvöld kl. 20.00-23.00 Hljómsveit hússins leikur fjölbreytta dansmussik. Allir velkomnir. Vesturgat 7 Fótaaðgerð kl. 9.00. Spænska –( framhald ) kl. 10.– 12. Elba Altuna. Verslunarferð í Bónus Holtagörðum kl. 12.10 -14.00. Þórðarsveigur 1-5 Föstudaginn 6. maí verður Bingó kl. 13.15 og flottar veitingar á eftir. Þetta er síðasta bingóið fyrir sumarfrí svo endilega komið og verið með. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Iðnaðarmenn Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt NÝKOMIÐ! Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, fyrir dömur og herra! Gæði í gegn ! Teg: 734307 Stærðir: 36 - 42 Litur: rautt. Verð: 13.750 Teg: 734307 Stærðir: 36 - 42 Litur: svart. Verð: 13.750.- Teg: 422201 Stærðir: 40 -45 Litur: grátt. Verð: 16.950.- Teg: 417305 Stærðir: 40 - 46 Litur: svart. Verð: 15.500.- Laugavegi 178 Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Sendum um allt land Erum á Facebook. TILBOÐ TILBOÐ Dömuskór úr leðri, stakar stærðir. Tilboðsverð: 2.900.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Bílar Volvo XC90 7/2003. Ekinn aðeins 154 þús. km. Diesel. Leður. Lúga ofl lúxus. Flott eintak. Þetta eru geysivinsælir bílar og sjást lítið á sölum. Verð: 2.650.000,- www.sparibill.is Fiskislóð 16 – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Gísli Maackfæddist í Reykjavík 11. mars 1953. Hann lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hringbraut 23. apríl 2016. Foreldrar hans voru Aðalsteinn P. Maack, f. 17. nóv- ember 1919, d. 24. janúar 2009, og Jarþrúður Þórhallsdóttir Maack, f. 8. maí 1920, d. 11. ágúst 1993. Systk- ini Gísla eru Aðalheiður Ma- ack, f. 5. september 1944, Pét- ur Andreas Maack, f. 21. febrúar 1949, Þórhallur Ma- ack, f. 27. september 1950, og Sigríður Maack, f. 8. nóv- ember 1963. Gísli kvæntist 16. júní 1973 Kristbjörgu Áslaugsdóttur, f. 18. september 1951. Börn þeirra eru: 1) Sigríður Ása Maack læknir, f. 15. ágúst 1972, gift Róberti Marvin Gíslasyni tölvunarfræðingi. Börn þeirra eru Ísabella Ró- bertsdóttir, f. 29. maí 2010, og Ólíver Leó Róbertsson, f. 15. júlí 2012. Börn Róberts úr fyrra sambandi eru Perla Sól- ey, f. 5. maí 2000, og Róbert Dagur, f. 26. maí 2005. 2) Árni Pétur Maack forritari, f. 19. júlí 1978, kvæntur Jasmínu Chow Maack verkfræðingi og sonur þeirra er Emil Kyan Maack, f. 21. júlí 2010. Gísli og Kristbjörg skildu 1996 eftir 23 ára hjónaband. Gísli var kvæntur Margréti Svaf- arsdóttur frá 2003 til 2009. Dætur hennar eru Halla Sig- rún og Hildur Arna Hjart- ardætur. Gísli hóf skólagöngu í Breiðagerðisskóla og svo Rétt- arholtsskóla. Hann lauk stúd- entsprófi frá MR 1973 og nam við viðskiptadeild Háskóla Ís- lands 1973–75. Síðar sat hann námskeið til löggildingar í fasteigna- og skipasölu 1991– 1993, námskeið löggildingar verð- bréfamiðlunar 1993–1994 og svo verðbréfa- og tryggingamiðl- unarnámskeið hjá Chartered Ins- urance Institution London árið 1995. Hann lauk IPMA- námskeiði í verkefnastjórn við Háskóla Íslands árið 2010. Gísli var skrifstofustjóri Ferðamiðstöðvarinnar 1975– 1979 og starfaði á Endurskoð- unarskrifstofu Hjartar Péturs- sonar 1979–1982. 1982–1986 starfaði hann hjá Arnarflugi hf. sem stöðvarstjóri á Kefla- víkurflugvelli, og síðar í Líbíu, og verkefnastjóri fyrir leigu- flug í Sádí-Arabíu. Hann var fjármálastjóri Kreditkorta sf. 1984–1985, framkvæmdastjóri hjá Gunnari Ásgeirssyni hf. 1986–1988 og síðar hjá Velti hf., Von Veritas Vesterborg í Danmörku og Ólafi Laufdal frá 1990–1991. Eftir það rak hann ráðgjafarþjónustu þar sem hann annaðist verkefni fyrir fjölda fyrirtækja um víð- an heim, m.a. Sameind hf., Aero North Inc. Seattle, Bandaríkjunum, Aviaservices Ltd., Bretlandi, og ANI Group Holdings Ltd., Indónesíu. Auk þess vann hann á Óðali fast- eignasölu 1994–1996 og rak FÍB Tryggingar 1994–1998. Árin 2011–2012 vann hann á Grand Hótel þar sem hann meðal annars vann að Svans- vottun hótelsins og uppsetn- ingu græns bókhalds. Frá árinu 2012 vann hann sem skrifstofustjóri Lögmanna Laugardal hjá Birni Þorra Viktorssyni, hæstaréttarlög- manni. Útför Gísla fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti í dag, 6. maí 2016, klukkan 15. Í dag kveðjum við heiðurs- manninn Gísla Maack. Það var á árinu 2012 sem leiðir okkar lágu saman, er hann réð sig sem skrifstofustjóra til okkar. Fljótlega kom í ljós að Gísli batt bagga sína ekki sömu hnútum og aðrir, hann var afar hreinskiptinn, staðfastur og ná- kvæmur og bjó yfir mikilli reynslu og þekkingu á hinum ýmsu sviðum. Með okkur tókst góður vinskapur, sem náði langt út fyrir hin daglegu störf. Gísli hafði sótt nám og öðlast réttindi sem verðbréfamiðlari og fasteignasali og verið með mikil mannaforráð hjá stórum fyrirtækjum bæði hér heima og erlendis. Hann hafði auk þess menntað sig sérstaklega m.a. í bókhaldi og verk- og verkefna- stjórnun. Þessi mikla þekking hans og reynsla átti eftir að nýtast okkur vel. Gísli hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og gaf ekki auðveld- lega eftir. Hann hafði gaman af rökræðum og gagnrýnni hugs- un og skoðaði hlutina úr fleiri en einni átt. Gísli sótti AA fundi, en hann háði á sínum tíma baráttu við Bakkus og átti marga góða vini úr þeim hópi. Hann hafði í gegnum þá vinnu öðlast afar þroskaða lífssýn og áttað sig á því um hvað lífsgæði raunverulega snúast. Gísli var í seinni tíð sérstak- ur áhugamaður um velferð barna sinna og afkomenda og var afar stoltur af fjölskyld- unni. Hann hafði gefið ætt- menni sínu annað nýrað fyrir nokkrum árum og það var við reglubundið eftirlit vegna þess fyrir rúmu ári sem ákveðið var að senda hann einnig í rist- ilskoðun. Þrátt fyrir að hafa verið einkennalaus var hann kominn með krabbamein sem ekki fékkst við ráðið. Fréttun- um tók hann af miklu æðru- leysi, staðfastur og yfirvegaður allt til enda. Það var lærdóms- ríkt fyrir mig að fylgjast með Gísla þann tíma sem í hönd fór. Þrátt fyrir að hann væri á köfl- um mikið veikur vegna með- ferða og lyfjagjafa var hugur- inn alltaf í skipulagningu og áætlanagerð. Gísli lét ekki reka á reiðanum þrátt fyrir að ljóst væri í hvað stefndi, heldur tók hann til hendinni á ýmsum sviðum og kom hlutum í það horf sem hann vildi. Hann mætti á skrifstofuna svo lengi sem stætt var og lagði mikið upp úr því að koma nýjum manni inn í störf sín og starfs- aðferðir. Þá hvatti hann okkur alla yngri mennina á hæðinni til að fara í skoðun og láta fylgjast með okkur. Þegar við hittumst í Álfkonuhvarfinu fyrir nokkru yfir kaffibolla og súkkulaði sagði hann alvörugefinn með blik í augunum að sér liði vel. Hann væri búinn að ræða við alla þá sem hann hefði þurft að biðja afsökunar á framkomu sinni á lífsgöngunni og hann væri sáttur. Hann var jákvæð- ur, fannst margt benda til að bjartir tímar væru fram undan á Íslandi og svei mér ef hann hældi ekki einstaka stjórnmála- mönnum, sem áttu því ekki að venjast að fá slík ummæli frá Gísla. Gísli Maack er einn af þeim mönnum sem hafa gert mann ríkari fyrir það eitt að hafa kynnst þeim. Fyrir það er ég þakklátur og hrærður. Um leið og ég þakka fyrir sam- starfið og samfylgdina sendi ég fjölskyldunni samúðarkveðjur. F.h. Lögmanna Laugardal og Fasteignasölunnar Miðborg- ar, Björn Þorri Viktorsson. Gísli Maack

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.