Morgunblaðið - 06.05.2016, Page 27
innan Skipta hf. sem heyrði undir
fjöl- og upplýsingamiðlun (Já og
Skjárinn) sameinuð undir Skjá miðla
ehf.
Sigríður stýrði báðum félögum og
varð sjónvarpsstjóri Skjásins þann
19.6. 2007: „Mér þótti vænt um að fá
að hitta starfsfólk Skjásins og taka
formlega við starfinu, fyrst íslenskra
kvenna, einmitt á þessum degi.“
Árið 2010 var Já hf. selt frá Skipt-
um hf. og Sigríður ákvað að fylgja
viðskiptafélaga sínum og félaginu
sem hún hafði tekið þátt í að stofna.
„Ég hef kynnst framúrskarandi
einstaklingum í störfum mínum en
sá sem hefur kennt mér mest er
Brynjólfur Bjarnason. Hann lagði
áherslu á að sinna félagsstörfum í
þágu atvinnulífsins.“
Sigríður hefur setið í stjórn Sam-
taka Verslunar og þjónustu, Sam-
taka atvinnulífsins og er stjórn-
arformaður Vinnudeilusjóðs. Hún
sat í stjórn Símenntunarmiðstöðvar
Eyjafjarðar og situr í skólanefnd VÍ.
„Ég hef ástríðu fyrir viðskiptum,
hef tekið virkan þátt í íslensku við-
skiptalífi í tæpa tvo áratugi og hef
yndi af nýsköpun, vöruþróun, sölu-
og markaðsmálum, góðum sam-
skiptum og tækni í viðskiptum.“
En Sigríður hefur ekki síður
áhuga á fjölskyldu sinni en starfinu:
„Ég ólst upp á stóru heimili með
fjölmenna og samhenta stór-
fjölskyldu. Sumar elstu og kærustu
endurminningar mínar snúast um
það að sofna í fanginu á pabba í
systkinamatarboðum foreldra minna
við óminn af heimspekilegum sam-
ræðum hinna fullorðna. Nú höldum
við systkinin slík boð og þegar líður
á kvöld sofna börnin í fanginu okkar.
Eiginmaður minn hefur sömu sýn
á fjölskylduna og mikilvægi hennar
og sýnir það í verki. Við fluttum á
Seltjarnarnes fyrir tæpu ári og nú
eigum við þrjú systkinin heimili í
göngufjarlægð hvort frá öðru.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er Rúnar
Pálsson, f. 12.3. 1972, lánastjóri hjá
Íslandsbanka hf. Foreldrar hans eru
Herdís Pétursdóttir, f. 13.8. 1948,
skrifstofumaður, og Páll Fossberg
Leósson, f. 7.10. 1948, málaskrárrit-
ari hjá Lögreglunni á Norðurlandi
Eystra. Þau búa á Akureyri.
Synir Sigriðar og Rúnars eru Ein-
ar Oddur Páll Rúnarsson, f. 25.5.
1998, nemi við VÍ, í foreldrahúsum;
Elmar Fossberg Rúnarsson, f. 18.7.
2004, nemi í Mýrarhúsaskóla.
Systkini Sigríðar eru Kristjana
Rós Oddsdóttir Guðjohnsen, f. 19.3.
1981, verkefnastjóri ferðaþjónustu
og skapandi greina hjá Íslandsstofu,
búsett í Reykjavík; Einar Sigurjón
Oddsson, f. 21.3. 1983, sérfræðingur
í verðbréfamiðlun hjá Íslenskum
verðbréfum hf., búsettur í Reykja-
vík; Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, f.
5.7. 1985, héraðsdómslögmaður hjá
Valitor hf., búsett á Seltjarnarnesi.
Foreldrar Sigríðar eru Oddur
Einarsson, f. 13.1. 1953, stjórnsýslu-
fræðingur MPA, á skrifstofu fjár-
mála og rekstrar í innanríkisráðu-
neytinu, og Una Dagbjört
Kristjánsdóttir, f. 4.7. 1954, deild-
arstjóri afgreiðsludeildar hjá Toll-
stjóra.
Úr frændgarði Sigríðar Margrétar Oddsdóttur
Sigríður Margrét
Oddsdóttir
Una Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Einar Kristinn Guðmundsson
múraram. í Rvík
Dagbjört Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Kristján Óskar Magnússon
skrifstofustj. í Rvík
Una Dagbjört
Kristjánsdóttir
deildarstj. í Rvík
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. í Borgarnesi
Magnús Ólafsson
skipaafgr.m. í Borgarnesi
Kristín Sigurjónsdóttir (Dídí)
talsímakona og bankagjaldkeri í Rvík
Aðalsteinn Guðjohnsen
rafmagnsstj. í Rvík
Ingunn Kristjánsdóttir
flugfreyja í Rvík
Kristjana M.
Kristjánsdóttir
fyrrv. skólastj.
í Grandaskóla
Guðrún Kristjánsdóttir
fyrrv. deildarstj. í Rvík
Dagbjört Jónasdóttir
launafulltr. hjá
Össuri
Agnar Hansson
forstöðum.Arctica Finance
Páll Sveinsson
afgreiðslustj.
hjá Distica
Ingibjörg Högna
Jónasdóttir
kvikmyndagerðar-
kona
Birna Ósk Hansdóttir
framleiðslustj. á RÚV
Kristján Sveinsson
tölvunarfr. í Rvík
Einar Pétur Guðjohnsen
rafmagnsverkfræðingur
Stefán Guðjohnsen
framkvæmdastj. og bridsspilari
Eiður Guðjohnsen
múraram. í Rvík
Arnór Guðjohnsen
fyrrv. knattspyrnum.
Eiður Smári
Guðjohnsen
knattspyrnu-
maður
Guðrún Snjólaug
Aðalsteinsdóttir Guðjohnsen
húsfr. í Rvík
Sigríður Guðrún Einars-
dóttir Guðjohnsen
húsfr. í Rvík
Einar Hilmar Filip Sigurjónsson
bókbindari í Rvík
Oddur Einarsson
guðfr. og stjórnsýslu-
fræðingur MPA í Rvík
Guðrún Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurjón Sigurbjörnsson
aðalbókari í Rvík
Jakob Guðjohnsen
rafmagnsstj. í Rvík
Þórður Guðjohnsen
kaupm. á Húsavík
Einar Oddur Stefánsson Guðjohnsen
kaupm. á Húsavík, síðar fulltr. í Rvík,
hálfbróðursonur Þóru,móður Baldurs
Möller ráðuneytisstjóra
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Sigurður fæddist að Lækjarkotií Mosfellssveit 6.5. 1872. For-eldrar hans voru Jón Árna-
son, bóndi í Lækjarkoti, og k.h., Sig-
ríður Gísladóttir húsfreyja. Jón var
sonur Árna Sigurðssonar, bónda á
Minna-Mosfelli í Grímsnesi, en Sig-
ríður var dóttir Gísla Sæmunds-
sonar, vinnumanns í Útey í Laug-
ardal.
Fyrri kona Sigurðar var Anna
Magnúsdóttir kennari sem lést 1917
og eignuðust þau tvö börn, Steinþór
náttúrufræðing sem lést af slysför-
um við rannsóknir á Heklugosinu
1947, föður Gerðar kennara og Sig-
urðar jarðfræðiprófessors, og Guð-
rún kennara, sem lést 1995.
Seinni kona Sigurðar var Rósa
Tryggvadóttir frá Jórunnarstöðum í
Eyjafirði og voru synir þeirra Hró-
arr sem lést 1953, Tryggvi vélstjóri
sem lést 2010 og Konráð læknir sem
lést 2003.
Sigurður ólst upp í Norðurkoti í
Grímsnesi hjá Guðmundi Vigfússyni,
bónda þar. Hann stundaði nám við
Flensborgarskóla í Hafnarfirði, lauk
þaðan gagnfræðaprófi 1893, kenn-
araprófi þaðan sama ár og stundaði
kennaranám við Jonstrups Sem-
inarium í Kaupmannahöfn 1895-98.
Sigurður var kennari í Gríms-
neshreppi 1888-92 og kennari við
Barnaskólann í Keflavík 1893-95.
Hann varð kennari við Barnaskóla
Reykjavíkur 1898, sama ár og
barnaskólinn flutti úr sínu fyrsta
eiginlega húsnæði, Pósthússtræti 3
og yfir í Miðbæjarbarnaskólann við
Fríkirkjuveg. Hann var lengi yf-
irkennari við skólann og skólastjóri
Barnaskóla Reykjavíkur frá 1923 og
til dánardags.
Sigurður var bæjarfulltrúi í
Reykjavík 1914-26, forseti bæj-
arstjórnar 1922-24 og var stundum
settur borgarstjóri í forföllum.
Sigurður sat í stjórn Hins íslenska
kennarafélags 1901-22, í stjórn SÍB,
í framkvæmdanefnd Stórstúku Ís-
lands, var stórtemplar um skeið, sat
í barnaverndarnefnd frá stofnun
hennar árið 1932 og til dánardags og
var lengi sóknarnefndarmaður í
dómkirkjunni.
Sigurður lést 17.6. 1936.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Jónsson
85 ára
Brynjar Axelsson
Gunnar Sigurðsson
Marsibil Jóhannsdóttir
Vilhjálmur Sigtryggsson
Þórhalla Sveinsdóttir
80 ára
Guðrún Torfadóttir
Hafsteinn Hannesson
Hafsteinn Kristjánsson
Illugi Sveinn Stefánsson
Kristjana J. Richter
75 ára
Gíslína Hallgrímsdóttir
Hendrik Skúlason
Katrín Særún Einarsdóttir
Ríkey Guðmundsdóttir
70 ára
Eva Jónasson
Guðjón Emil Arngrímsson
Guðmundur Pétursson
Ragnheiður Grímsdóttir
Sjöfn Jóhannsdóttir
Þuríður Hermannsdóttir
60 ára
Fríða Sigurðardóttir
Guðrún Heiðdís Jónsdóttir
Helgi Benediktsson
Jóna Þórðardóttir
Ólafur Jónsson
Pierre-Alain Barichon
Sigurður Pétursson
Sólveig Einarsdóttir
Stefán Sigurðsson
Súsanna Þorvarðardóttir
Unnur Ósk Ármannsdóttir
Þóra Björg Garðarsdóttir
Þórarinn M. Eldjárnsson
50 ára
Anna Dóra Helgadóttir
Anna Jolanta Karwowska
Ásta Rut Sigurðardóttir
Jóhanna Þórhallsdóttir
Margrét Sigurðardóttir
Rafn Júlíus Rafnsson
Reynir Jónsson
Þorsteinn Sigurmundason
Þórdís Edwald
Örlygur Már Örlygsson
40 ára
Agla Marta Stefánsdóttir
Erla Sigurlaug Sigurðardóttir
Hákon Jensson
Hilmar Magnússon
Jóna Soffía Baldursdóttir
Ólöf Guðrún Jónsdóttir
Sigríður Margrét Oddsdóttir
Sigursveinn Bjarni Jónsson
Sveinn Fannar Ármannsson
Thi Thu Nguyet Vu
30 ára
Elsa Rut Óðinsdóttir
Elva Rún Rúnarsdóttir
Erlingur Þorsteinsson
Gaidis Frolovs
Gunnar Viðar Þórarinsson
Heiðrún Matthildur
Atladóttir
Helga Bryndís Björnsdóttir
Júlía Rachenko
Katrín Hlíf Sævarsdóttir
Lóa Hrönn Ingvaldsdóttir
Pétur Ingi Rakelarson
Viktorija Pikeliene
Til hamingju með daginn
30 ára Heiðrún ólst upp í
Garðabæ, býr í Kópavogi,
stundar nám í gullsmíði
við Tækniskólann og
starfar hjá Tímadjásni.
Maki: Kristinn Ólafur
Smárason, f. 1984, við-
skipta- og þjónustustjóri
hjá GOMOBILE.
Sonur: Úlfur Þór Krist-
insson, f. 2013.
Foreldrar: Þórdís Gunn-
arsdóttir, f. 1957, fulltrúi,
og Atli S. Aðalsteinsson, f.
1958, kaupmaður.
Heiðrún M.
Atladóttir
30 ára Erlingur ólst upp í
Keflavík, býr í Reykjavík
og er forritari hjá Reikni-
stofu fiskmarkaða.
Maki: Hjördís Alda Hreið-
arsdóttir, f. 1986, fram-
haldsskólakennari við MS
og í Keili.
Foreldrar: Berglind Ósk
Sigurðardóttir, f. 1962,
snyrtifræðingur, búsett í
Keflavík, og Þorsteinn Erl-
ingsson, f. 1962, d. 2013,
blaðamaður og leið-
sögumaður.
Erlingur
Þorsteinsson
30 ára Elva Rún ólst upp
á Ísafirði, býr í Reykjavík,
lauk hjúkrunarfræðiprófi
frá HA og er hjúkrunar-
fræðingur við LSH.
Maki: Ólafur Þór Finsen,
f. 1971, lögfræðingur.
Dóttir: Lilja Guðrún, f.
2014.
Foreldrar: Rúnar Víf-
ilsson, f. 1956, skógar-
bóndi á Ferstiklu III á
Hvalfjarðarströnd, og Ólöf
Minný Guðmundsdóttir, f.
1957, þjónustufulltrúi ISS.
Elva Rún
Rúnarsdóttir
Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af
slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
Hjólað í vinnumaávirkumdögum - leika sér umhelgar
SigmaSport hraðamælir BC8.12Brettasett26
Frábær startpakkimeð öllu semþarf. Bögglaberi, bretti, hraðamælir og að sjálfsögðu hágæðaMongoose hjól!
Ál Bögglaberi
ERTUKLÁRAÐHJÓLA ÍVINNUNA?
MongooseReformComp
Hvítt/Grænt
Fullt verð er 144.870.-
115.900,-
ALLTSAMANÁ