Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 36
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 127. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. „Það er ekkert að óttast“ 2. Íslenskur karlmaður eignast barn 3. „Forseti standi utan fylkinga“ 4. Dorrit sendir frá sér yfirlýsingu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Laser Life, raftónlistarhliðarsjálf tónlistarmannsins Breka Steins Mánasonar, gefur út sína fyrstu plötu, sem heitir Polyhedron. Mun Laser Life fagna útgáfunni með því að leika plötuna í heild sinni á tón- leikum í Mengi í kvöld kl. 21. Á þeim verður flutt vídeóverk og tónlistar- maðurinn Birkir Snær Mánason mun sjá um bassaleik. Platan var gerð með hljóðgervlum og hljóðsmölum eins og finna má í gamaldags tölvuleikjatónlist og „lo- fi“ raftónlist níunda áratugarins en stefna plötunnar spannar víðan völl og heyra má þar áhrif frá pönki, síð- rokki og „drum n’ bass“ tónlist, að því er fram kemur í tilkynningu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Laser Life fagnar út- gáfu fyrstu plötu  Hinn árlegi sumarfagnaður Kringlukrárinnar verður um helgina og eins og undanfarin ár mun hljóm- sveitin Gullkistan leika fyrir gesti, í kvöld og annað kvöld. Gullkistan flyt- ur þekkt lög frá blómatímabilinu, lög eftir Bítlana, Rolling Stones, Kinks o.fl. og verða Hljómalögin í hávegum höfð enda eru í hljómsveitinni þeir Gunnar Þórðarson úr Hljómum, Ás- geir Óskarsson úr Stuðmönnum, Jón Ólafsson úr Pelí- kan og Óttar Fel- ix Hauksson úr Pops. Dansinn mun duna fram eftir nóttu. Gullkistan fagnar sumri á Kringlukrá Á laugardag Norðlæg átt 3-10 m/s og dálítil él eða slydduél norð- anlands einkum fyrri hluta dags en að mestu bjart syðra með lík- um á stöku síðdegisskúrum. Hiti 2 til 11 stig, mildast suðvestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 5-13 m/s og víða rigning eða slydda en yfirleitt þurrt syðst. Hiti 1 til 10 stig að deginum, hlýjast suðastantil en sums staðar næturfrost. VEÐUR Íslandsmeistarar Breiðabliks eru „meistarar meistar- anna“ eftir sigur á bikar- meisturum Stjörnunnar í ár- legum leik milli Íslands- og bikarmeistara síðustu leik- tíðar í kvennaflokki. Marka- laust var að loknum venju- legum leiktíma en Breiðablik hafði betur í vítaspyrnu- keppni, 4:3. Leikurinn fór fram á Samsung-vellinum í Garðabæ við fremur erfiðar aðstæður. » 1 Vítakeppni í Garðabænum „Við erum að vonast til að geta barist um gullverðlaunin í liðakeppninni, á góðum degi,“ segir Sandra Dögg Árnadóttir, annar þjálfara kvenna- og stúlknalandsliðsins í áhaldafim- leikum en Norðurlanda- mótið í grein- inni fer fram í Laugardalnum í Reykjavík um helgina. Ísland gæti þar eignast Norður- landameistara ein- staklinga í þriðja skipt- ið í sögunni. »3 Vonast til að berjast um gull í liðakeppninni Verða það Keflavík, Leiknir úr Reykjavík og KA sem berjast um tvö sæti í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í ár? Eða geta Fram, Grindavík og Þór blandað sér í þann slag? Þrjú Austfjarðalið eru í deildinni í ár en verða þau öll í fallbaráttunni? Fjallað er ítarlega um 1. deildina í blaðinu í dag en keppni þar hefst í kvöld. »4 Þriggja liða barátta í fyrstu deild karla? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Skákin verður allsráðandi í Ráðhús- inu í Reykjavík í dag og á morgun og þar verður Hrafn Jökulsson sér- staklega í sviðsljósinu. Hann ætlar að tefla skákmaraþon frá klukkan níu að morgni til miðnættis báða dagana og safna framlögum og áheitum sem renna óskert til Fatimusjóðs og UNICEF á Íslandi til styrktar sýr- lenskum flóttabörnum í neyð. „Ég fæ til mín áskorendur af öllum stærðum og gerðum, allt frá skák- meisturum og undrabörnum til fólks sem hefur jafnvel ekki gripið í tafl áratugum saman,“ segir Hrafn og leggur áherslu á að skákkunnátta og styrkleiki sé aukaatriði í þessum hraðskákum. „Ég ætla að tefla í 30 klukkustundir, ef guð lofar, og vona að sem flestir, sem vilja leggja mál- staðnum lið, láti sjá sig við taflborð- ið.“ Stefnir á 200 skákir Hrafn segir að markmiðið sé að ná 200 skákum. Leitað hefur verið eftir áheitum til fyrirtækja og hafa nokk- ur þegar tekið áskoruninni. „Ástæða er til að ætla að þetta verði árangurs- ríkt og skemmtilegt og veki einnig athygli fólks á þessu hörmulega stríði og ástandi, sem margir eru orðnir frekar ónæmir fyrir eftir fimm ára stríð og stöðugar fréttir sem ekki virðist sjá fyrir endann á.“ Meðan á maraþoninu stendur verður myndasýning úr sýrlenskum flóttamannabúðum og af starfi UNI- CEF á vettvangi. Auk þess troða ýmsir listamenn upp, þar á meðal Ragnheiður Gröndal söngkona, Jóhannes Kristjánsson eftirherma, barnakór úr Langholtskirkju og fleiri. „Við ætlum að gera þetta að skemmtilegum og gleðilegum viðburði, þó tilefnið sé alvarlegt,“ segir Hrafn en Skákfélagið Hrók- urinn og Skákakademía Reykjavíkur standa að uppákomunni í samvinnu við Fatimusjóð og UNICEF. Ástríða Hrafns fyrir skákíþrótt- inni hefur vart farið framhjá nokkr- um manni hérlendis og víðar. „Við í Hróknum höfum lært það í gegnum árin í starfi okkar á Íslandi, Græn- landi og víðar, að skákin er stórkost- legt verkfæri sem er hægt að nota til góðs á svo margan hátt,“ segir hann. Bendir Hrafn í því sambandi á að all- ir geti teflt, skákin sé alþjóðlegt tungumál og söfnunin sé í anda kjör- orða Alþjóðaskáksambandsins, FIDE: Við erum ein fjölskylda. Reikningsnúmer Fatimusjóðsins er 0512-04-250461 og kennitala 680808-0580. Eins má senda beint á UNICEF með því að senda sms-ið STOPP í númerið 1900 (1.900 kr.). Ætlar að tefla í 30 stundir  Söfnun til styrktar sýr- lenskum flótta- börnum í neyð Áhugi Hrafn Jökulsson efndi til skákmaraþons í Hörpu í fyrra og þá voru mótherjarnir á öllum aldri. Skák Kristín Anna Eggertsdóttir Claessen, fædd 1926, tefldi við Hrafn í Hörpu í fyrra og hefur boðað komu sína í Ráðhúsið um helgina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.