Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Síða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Síða 15
15.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Þú hættir að drekka í fyrra, eins og kemur fram í bókinni. Þú fékkst töluverð viðbrögð þegar þú sagðir frá þessu á Facebook á sínum tíma, var það ekki? „Jú, ég sagði frá því í nýársprédikun og fékk mikil viðbrögð við því. Fólk var svolítið vand- ræðalegt yfir þessu af því að það hafði kannski þá mynd af mér að ég væri með allt mitt á þurru þrátt fyrir að vera með kvíðaröskun. Ég notaði vín eins og lyf til að deyfa hugann og það tókst um stund en þegar víman rann af mér leið mér orðið undantekningarlaust eins og ég hefði dansað zumba nakin á Ráðhústorg- inu á Akureyri í hádeginu á mánudegi þegar allir eru á leiðinni í mat. Og það var ekkert sér- staklega góð tilfinning. Ég hætti vegna þess að það að drekka ofan í kvíðaröskun er eins og að strompreykja ofan í frumubreytingar í lungum.“ Kom það mörgum í opnu skjöldu að þú, þessi glaði og skemmtilegi prestur, glímdir við áfengisvandamál? Eða var drykkjan kannski ekki vandamál? „Jú, auðvitað var þetta vandamál. Áfengi er vandamál þegar það, eins og í mínu tilviki, er orðið að markmiði alla daga, þegar maður er farinn að hlakka til að ljúka verkum ekki til að gleðjast yfir verkunum heldur til að opna rauð- vínsflösku og deyfa sig. Ég hef sko endurfæðst eftir að ég hætti að drekka, ég finn að ég er meira skapandi, hugsandi og fórnarlambið sem átti til að vaka í brjósti mér er alveg stein- dautt. Ég er búin að fatta að ég á ekki vitund bágt og er bara fáránlega heppin í lífinu. Jú, fólki fannst þetta ekki alveg samræmast ímynd minni eða þá hitt að ég snerti viðkvæma strengi í brjóstum þeirra sem vita innst inni að þeir eru alkar. Ég elska að segja við fólk að ég sé alki vegna þess að mér finnst það jafn lítið mál og að segjast vera með exem eða eitthvað álíka en viðbrögðin eru hins vegar miklu áhugaverðari en ef ég væri með exem.“ Nú skellihlær Hildur Eir, þessum fallega Laufáshlátri! Heimir aðdáunarverð manneskja Hvert er besta meðalið við áráttu og þrá- hyggju, fyrir utan hefðbundin meðul? Er það ef til vill húmorinn sem þú nefndir fyrr í spjalli okkar? „Besta meðalið er tilfinningaleg nánd við annað fólk; tengsl þar sem maður er greinilega elskaður skilyrðislaust þannig að þótt eitthvað henti á morgun – ég yrði svipt hempunni eða eitthvað álíka skemmtilegt – væri lífi mínu ekki lokið, vegna þess að ég á fólk sem elskar mig hvort sem ég er prestur eða ekki. En ekki bara það; að eiga nánd við sjálfan sig er jafn mikilvægt meðal, að eiga nánd við sjálfan sig er að elska sjálfan sig skilyrðislaust og tala fal- lega til sín og rækta hæfileika sína og segja frá þeim án þess að biðjast afsökunar á þeim og láta ekki veika sjálfsmynd annarra draga sig niður. Húmorinn kemur næst á eftir nándinni sem náttúrumeðal.“ Ég skynja að þú sért býsna vel gift og öðr- um ættingjum og vinum þyki líka mjög vænt um Hildi Eir ... „Já, ég er mjög vel gift. Maðurinn minn, Heimir Haraldsson, er aðdáunarverð mann- eskja, einstakur faðir, húmoristi sem hefur mikið næmi fyrir fólki og þá verður seint sagt að hann sé karlremba enda einstaklega mikill jafnréttissinni ekki bara í orði heldur á borði. Hann á stóran þátt í mínum sigrum. Svo á ég dásamlega syni og skemmtilega og gefandi stórfjölskyldu. Auðvitað hefur ýmislegt gengið á en okkur hefur samt auðnast að leysa farsæl- lega úr því. Þannig að þú heyrir að ég hef enga afsökun til að vera alki og fórnarlamb í lífinu!“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ’Ég vel að vera hamingjusömþrátt fyrir að að mér steðjiheilsufarsleg ógn vegna þess aðþað er vel hægt að vera ham- ingjusamur í ógninni alveg eins og hægt er að vera óhamingju- samur í bullandi velsæld. Hildur Eir: Mér fannst ekkert mál að róta í mold og heiðarlegri sveitadrullu en að fara á almenningssalerni eða ganga Laugaveginn í Reykjavík og rek- ast í ruslufötu eða stíga þar í bleytu getur alveg kallað fram þráhyggju. Ég hlaut prestvígslu þann 26. febrúar árið 2006. Dagurinn var eftirminni- legur, ekki síst vegna þess að mér leið frekar illa, höfuðið var fullt af þrá- hyggjuhugsunum sem sögðu mér að ég ætti ekki skilið að vera þarna, mér leið eins og svikara. Hugsanirnar snerust um að ég væri í fyrsta lagi alls ekki nógu vel innrætt manneskja til að gegna þessu starfi og þær buldu á heilaberkinum eins og mótmæli að handan. Það hefði alls ekki komið mér á óvart ef einhverjir hefðu staðið á Austurvelli með kröfuspjöld á lofti eða kennarar úr guðfræðideildinni hefðu þust inn í Dómkirkjuna og hrópað: „Ekki vígja hana, hún þarf að fara aftur í gegnum allt námið!“ Þar sem ég sat uppi við altarið og hlustaði á vígslutónið í flutningi bisk- ups varð mér litið á föður minn sem sat við fremsta bekk í hjólastólnum sínum. Hann var langt genginn inn í óminnisdalinn og líkaminn var orðinn stirður og rýr, nú skipti nám og starf engu máli lengur fyrir lífsgæði hans. Eirðarleysi mitt og kvíði kallaðist á við einhvern guðdómlegan frið sem breiddist yfir andlit hans, já, þetta minnti á páskahret, skafrenningur á veginum sem hafði blindað mig um stund en hátt á himni glitti í vetrarsól- ina. Líf mitt er kannski eins og páska- hret, hugsaði ég, alltaf tvö veður í senn. Hildur Eir Bolladóttir í bók sinni, Hugrekki – Saga af kvíða HUGREKKI – SAGA AF KVÍÐA „Ekki vígja hana!“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.