Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Síða 41
15.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
upp. Síðan hef ég undrast allt sem
gerist varðandi bækurnar.
Ég er ekkert sérstaklega hæfi-
leikaríkur teiknari og að ná engu að
síður þessari velgengni út um löndin
finnst mér stórfurðulegt.“
– Finnst þér það skrýtin tilhugsun
að milljónir barna dái verk þín?
„Vitaskuld. Og ég er venjulega
fullur efasemda um sjálfan mig og
verkin meðan ég skrifa. Ég vil að
hvert verk sé eins gott og ég get
mögulega skapað það. En um leið
finnst mér gríðarlega spennandi að
koma sögunum til lesenda sinna. Í
gær átti ég afar áhugavert símtal
við blindan strák í Banda-
ríkjunum;
hann þekkir
bækurnar mín-
ar betur en ég
sjálfur! Allar
persónur, alla
brandara. Mér
fannst stórkost-
legt að heyra hvað
sögurnar höfðu
glatt hann mikið.
Stundum er umfang útgáf-
unnar óendanlegt, að því er
virðist, en svo tengist maður
einstaka lesendum á þennan
hátt. Það er mér afar dýrmætt.
Ég hef hitt marga einhverfa
krakka sem kunna vel að meta
sögurnar og foreldrarnir segja mér
að ástaðan sé sú að þau ná að tengj-
ast teikningunum; þær segja krökk-
unum hvernig persónunum líður.
Einu sinni hitti ég strák sem hafði
staðið í röð og beðið eftir að ég árit-
aði bækur fyrir hann. Hann var sýni-
lega einhverfur og þegar hann rétti
mér bækurnar að skrifa í þá fylltust
augu hans tárum. Við mamma hans
táruðumst líka, og við gátum ekki
annað en kinkað kolli hvert til annars
og skældum bara. Við þurftum ekki
að segja neitt –
þetta var stór-
kostlegt. Ég sá
hvað sögurnar
skiptu hann miklu
máli og að það var
honum mikilvægt
að hitta mig, ekki
síður en það var
mér mikilvægt að
hitta hann. Svona
stundir gefa vinnunni tilgang.“
– En með svona velgengni hlýtur
sköpunarþörfin að breytast.
„Svo sannarlega og mér finnst það
forvitnilegt umhugsunarefni. Öll höf-
um við átt eftirlætis hljómsveitir sem
senda frá sér tvær frábærar plötur
en eftir það fatast þeim flugið. Hvers
vegna? Annaðhvort finna þær bara
innblástur í stuttan tíma og svo er
hann farinn eða velgengnin breytir
hljómsveitinni. Ég hef meðvitað
reynt að halda sama takti, sama
vinnulagi og ég beitti í byrjun. Mér
finnst það heillandi áskorun að reyna
að skapa sífellt betra verk en síðast.
Ég vona að mér takist að skrifa
áfram gamansögur sem fólki þykja
skemmtilegar en geri mér líka engar
grillur um að þetta séu merkilegar
bókmenntir,“ segir hann og brosir.
„Ég legg ekki áherslu á frásögn
heldur á húmor, hann er mikilvægari
en allt annað. Gæði brandaranna
skipta miklu máli.“
– Þegar þú vinnur að nýrri bók
byrjar þú þá á gamansögunum?
„Svo sannarlega. Þetta er í raun
vélrænt ferli. Ég safna um 350
bröndurum og gamansögum
og veit að það
er fjöldinn sem
ég þarf í góða
sögu um Kidda
og fólkið hans.
Þegar ég hef
safnað brönd-
urunum fer ég að
skrifa textann og
geri teikningarnar
síðast. Þá vinn ég
hratt og undir
pressu, teikna í um
sex vikur í allt að sextán
stundir á dag. Það er
hræðilega erfitt …
En mesta vinnan er
að semja brandarana.
Stundum fer ég í
langa göngu og næ
að búa til einn eða
tvo á meðan. Á
mjög góðum degi,
þegar ekkert truflar þá næ ég að
búa til allt að tuttugu brandara. En í
gær, hér á hótelinu, skrifaði ég 27!
Það er ástæða fyrir mig til að koma
aftur til Íslands.“
Skjátíminn er áskorun
Strax eftir að fyrstu bækur Kinneys
komu út fór hann að fá bréf frá for-
eldrum og kennurum sem sögðu þær
höfða til áhugalítilla lesenda. Sem
eru einkum strákar.
„Mikið er rætt um það hvernig eigi
að fá stráka til að lesa og það er erfitt
að fullyrða eitthvað
um það, því það
hvernig krakkar
nálgast sögur og
afþreyingu hefur
breyst gríðarlega,
bara á síðustu
tveimur árum.
Mögulega eru
krakkar að lesa
meira nú en áður,
en það er á samfélagsmiðlum. Ég
veit líka vel að krakkar gera meiri
körfur nú en áður um að sjónrænar
upplýsingar fylgi því sem þau lesa.
Þau vilja myndir með textanum. Og
það er nokkuð sem mér sýnist ég
gefa þeim með Dagbókum Kidda
klaufa; með textanum eru þessar
litlu myndaeyjar að synda til á milli
textalínanna.
Ein mesta áskorun samfélagsins í
dag er skjátíminn, að finna út hvað er
eðlilegt að vera lengi með skjá við
andlitið á degi hverjum. Við foreldr-
arnir segjum börnunum að leggja
skjáina frá sér en erum svo sjálf sí-
fellt með nefið við skjáinn. Mig grun-
ar að þar sé of mikill sykur og ekki
næg vítamín …“
Í Listasafni Íslands verður í dag,
laugardag kl. 14, boðið upp á leið-
sögn fyrir blinda og sjónskerta
um sýninguna um upphaf kynningar
á íslenskri myndlist í Kaupmanna-
höfn árin 1920 - 1927.
Útvarpsleikhúsið á
Rás 1 hóf um síð-
ustu helgi að flytja
áhugaverða
þáttaröð, Á vit
undirdjúpanna,
eftir Martein
Sindra Jóns-
son. Flutningi
verður fram
haldið nú á
sunnudag. Fjallað
er um fríköfun í
þáttunum.
Þjóðlagaskotna poppsveitin Ylja
heldur tónleika í Gym & Tonic-
salnum á Kex Hosteli í kvöld, laug-
ardag, kl. 21.30. Ylja hefur sent frá
sér tvær breiðskífur sem báðar
hafa fengið lof gagnrýnenda.
Einleikurinn Fjalla-Eyvindur verður
sýndur á lofti Gamla Bankans í
kvöld, laugardag, kl. 20. Sýningin er
samin og leikin af Elfari Loga
Hannessyni en hann hefur samið
og leikið í fjölda leikverka.
Sýningin Gaddar með verkum eftir
Gunnhildi Þórðardóttur verð-
ur opnuð í Mjólkurbúðinni á Akur-
eyri í dag, laugardag, klukkan 15.
Titillinn vísar í hvassa odda í skúlp-
túrum hennar og málverkum.
MÆLT MEÐ
’Ég vona að mér tak-ist að skrifa áframgamansögur sem fólkiþykja skemmtilegar en
geri mér líka engar
grillur um að þetta séu
merkilegar bókmenntir.
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
NÝ SENDING
ICON MOTTA
kr. 52.650
170X240
WOODLAND LAMPI
kr. 24.300
BLACKWOOD STÓLL kr. 32.700
DIMOND PÚĐAR
kr. 7.980