Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Síða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Síða 44
Sjónvarp Hinn vinsæli frétta- og þjóðlífsþáttur Landinn fer í sum- arfrí að vanda og verður síðasti þáttur vetrarins á dagskrá RÚV á sunnudagskvöldið klukkan 19.45. Gísli Einarsson og hans fólk hef- ur brallað sitt af hverju tagi í vetur, komið við í öllum landshlutum, rætt við áhugavert fólk og kynnt sér störf og áhugamál af ýmsu tagi. Landinn fer í sumarfrí 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.5. 2016 LESBÓK Tónlist Ein mesta málm- og rokkhátíð ársins verður haldin á Talen Energy-leikvanginum í Chester, sem er skammt frá Philadelphia í Pennsylvania-ríki í Bandaríkjunum, helgina 17. og 18. september. Meira en 35 bönd troða upp á þremur svið- um en aðalnúmerin verða málmböndin Aven- ged Sevenfold, Alice In Chains, Slayer og Vol- beat og rokkböndin The Offspring og Breaking Benjamin. Af öðrum nafnkunnum sveitum sem koma fram á hátíðinni má nefna gömlu brýnin í Ant- hrax, Killswitch Engage, Trivium, The Cult og Death Angel. Rokkveisla í Chester Kerry King, gítar- leikari Slayer. AFP Tónlist Það var söguleg stund í Lissabon á dögunum þegar leðurbarkinn W. Axl Rose, oftast kenndur við málmbandið Guns N’ Ros- es, steig í fyrsta skipti á svið með hinn goð- sagnakenndu rokksveit AC/DC. Rose er fót- brotinn og sat fyrir vikið í hásæti allan tímann en það virtist ekki há kappanum en leikir og lærðir voru á einu máli um að vel hefði tekist til. Rose mun túra með Angus Young og fé- lögum á næstunni en svo sem fram hefur komið hefur söngvari AC/DC, Brian John- son, dregið sig í hlé frá tónleikahaldi af heilsufarsástæðum. Rose í hnappagat AC/DC Young og Rose í essinu sínu í Lissabon. AFP Isidora Goreshter, Shanola Hampton og Emmy Rossum leika í Shameless. Lokaþáttur Shameless Sjónvarp Lokaþáttur sjöttu serí- unnar af hinum óborganlegu bandarísku gaman/dramaþáttum Shameless er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöldið klukkan 22.50. Á ýmsu hefur gengið þetta árið og brúðkaup í vændum. Líkurnar á að það fari í handaskolum hljóta að vera umtalsverðar. Eða hvað? Aðdáendum Shameless til ómældrar gleði verður þráðurinn tekinn upp í sjöundu seríunni á næsta ári. Sjónvarp SkjárEinn sýnir um þess- ar mundir á sunnudagskvöldum spennuþættina American Crime. Aðalleikkonan er íslensku sjón- varpsáhugafólki að góðu kunn en það er engin önnur en Felicity Huffman, sem gerði garðinn fræg- an sem Lynette Scavo í hinum geysivinsælu gamanþáttum Að- þrengdar eiginkonur um árið. Fyrir þá sem ekki vita er Huff- man gift leikaranum William H. Macy, sem fer þessi misserin á kost- um í öðrum þáttum, Shameless. Leikkonan Felicity Huffman. Af glæpum Í gamla daga var hann alltaf vina-legi gaurinn sem ekki máttivamm sitt vita. Í St. Elmo’s Fire, Pretty in Pink, Less Than Zero, Mannequin og hvað þær allar hétu. Andrew McCarthy var aldrei stóra stjarnan í þessum myndum en gegndi mikilvægu hlutverki fyr- ir framvinduna. Og alltaf stóð hann í lappirnar enda þótt dómgreindar- brestur, siðleysi og fíkn legðist þungt á flesta í kringum hann. Þetta var á ofanverðum níunda áratug síðustu aldar en allar götur síðan hefur lítið spurst til McCart- hys. Þar til nú að hann skýtur óvænt upp kollinum í dramaþátt- unum The Family í allt öðru hlut- verki en áður; það er að segja hlé- drægs manns með barnagirnd. Öðruvísi mér áður brá. Hefði maður sjálfur átt að velja í hlutverks Hanks Ashers hefði McCarthy ekki komið fyrst upp í hugann en það breytir ekki því að umsagnir um frammistöðu hans eru á einn veg: McCarthy þykir massa þetta! „Kraftmikill leikur [McCarthys] gerir Hank að mest spennandi persónunni í þáttunum,“ segir LA Times og Time Magazine segir að frammistaða hans sé und- arlega hjartnæm og torræð í senn. Philadelphia Inquirer segir McCarthy stela senunni og Collider segir hann binda seríuna saman. Allir eru á einu máli um að McCarthy sé kominn langt út fyrir sinn þægindaramma. Já, Hank Asher er sannarlega margslungin persóna. Í fyrndinni beraði hann sig fyrir gestum og gangandi í almenningsgarði og hef- ur upp frá því verið stimplaður „barnaperri“. Þegar átta ára gam- all drengur í hverfinu hverfur bein- ast böndin fljótt að Asher sem er á endanum dæmdur fyrir að myrða drenginn. Án þess að lík hafi fund- ist. Úr einu fangelsi í annað Tíu árum síðar snýr drengurinn aftur, eftir vist í dýflissu, og Asher er látinn laus. Því fer þó fjarri að frelsið fari mjúkum höndum um hann, auk þess sem biturðin kraumar undir niðri. Í raun má segja að Asher fari úr einu fangelsi í annað. Persónan er í bland hrollvekj- andi og geðug. Senan þar sem As- her er búinn að velja sér hvolp en neyðist til að gefa hann frá sér eftir að dóttir eigandans ber kennsl á hann sem „barnaperra“ var af- skaplega eftirminnileg. Það vill enginn halda með svona manni en á köflum er erfitt að gera það ekki. Asher er líka óvenju meðvitaður um veikleika sína og neitar sér um samskipti við börn á þeim for- sendum að þau séu börnunum óholl. Enda þótt hann blóðlangi. Þegar hann kemst óvænt á séns með konu slítur hann hana fljótt frá sér. Og þegar hún starir á hann spurnaraugum svarar Asher: „Gúglaðu mig bara!“ Þegar að er gáð kemur í ljós að McCarthy hefur verið virkur í leik- listinni allt frá því ferill hans flaug sem hæst. Nöfnin á kvikmyndunum sem hann hefur leikið í undanfarinn aldarfjórðung hringja þó engum bjöllum. Síðustu árin hefur hann aðallega unnið í sjónvarpi, bæði sem aukaleikari og leikstjóri hinna ýmsu þátta; nú síðast Blacklist, þar sem James nokkur Spader, sem ósjaldan lék með McCarthy í gamla daga, fer með aðalhlutverkið. Auk þess að leika í The Family leikstýrði McCarthy þremur þátt- um af tólf. En sú upprisa. Andrew McCarthy í hlut- verki hins dularfulla Hanks Asher í The Family. ABC „Gúglaðu mig bara!“ Leikarinn Andrew McCarthy hefur óvænt gengið í endurnýjun lífdaga í dramaþáttunum The Family, sem sýndir eru á SkjáEinum. Hér kveður þó við annan tón en áður; í stað þess að leika „elskulega gaurinn í næsta húsi“ túlkar McCarthy nú dularfullan mann með barnagirnd og þykir fara á kostum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Andrew McCarthy er 53 ára gamall. Hann er líklega frægastur fyrir að vera partur af svonefndu „Orma- gengi“ (Brat Pack), hópi ungra leik- ara sem voru áberandi um og eftir miðjan níunda áratuginn og tengjast einkum og sér í lagi tveimur kvik- myndum; The Breakfast Club og St. Elmo’s Fire. Auk McCarthys eru þetta Emilio Estevez, Anthony Michael Hall, Rob Lowe, Demi Moore, Judd Nelson, Molly Ringwald og Ally Sheedy. Fólk sem hefur spjarað sig misvel í brans- anum síðan. Robert Downey, yngri, James Spader og fleiri tengdust líka hópnum. Einn af ormunum McCarthy með Molly Ringwald í Pretty in Pink.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.