Víkurfréttir - 14.01.1999, Page 10
Nyir eigendur að Miðbæ
Eigendaskipti hafa oröið á versluninni Miðbæ í Keflavík.
Omar Jónsson og fjölskylda sem reka Staðakaup í
Grindavík keyptu verslunina af þeim Valdimar Valssyni,
Sjónlaugu Jakobsdóttur, Hermanni Guðjónssyni og Olínu
Haraldsdóttur.
Sonur Omars, Þormar, mun sjá um rekstur Miðbæjar og
sagði hann í stuttu spjalli við blaðið að talsverðar breytingar
yrðu gerðar á búðinni og vildi af því tilefni biðja viðskipta-
vini að leggja skilning sinn í það því örlítil röskun hlotist af
því tilefni. Fyrri eigendur hafa rekið Miðbæ undanfarin sjö
ár við góðan orðstýr en ætla nú að snúa sér að öðrum hugð-
arefnum. VF-tölvumynd: Páll Ketilsson
Húsnæði
Öldunnar
boðið til
kaups
Bæjairáði Sandgerðisbæjar
barst erindi frá versluninni
Öldunni í nóvember sl. þar
sem eigendur vildu athuga
hvort Sandgerðisbær hefði
áhuga á að kaupa húsnæði
Öldunnar að Tjamargötu 6.
en húsið er rúmlega 300
fermetra steinhús. Sam-
kvæmt bókun bæjarráðs
kemur fram í erindinu að
ætlunin sé að leggja versl-
unina niður vegna síversn-
andi afkomu.
I________________I
Sigríði Jóhannesdóttur, alþingismann í 2. sætið
Nú hefur Samfylkingin
ákveðið að gefa kjósendum á
Reykjanesi tækifæri til þess
að velja einstaklinga á fram-
boðslistann í komandi Alþíng-
iskosningum. Prófkjör verður
haldið daganna 5. og 6. febrú-
ar næstkomandi og hefur Sig-
ríður Jóhannesdóttir alþingis-
maður úr Reykjanesbæ gefið
kost á sér í annaö sæti listans.
Að mínu mati sýnir Sigríður
með þessu mikinn félagslegan
þroska og vilja til þess að
treysta samband það sem tekist
hefur með þeim sem stand að
Samfylkingunni en fer ekki í
hart við félaga sína í Samfylk-
ingunni um efsta sætið en gefur
okkur Suðurnesjamönnum
tækifæri á að tryggja okkur
verðugan fulltrúa ot'arlega á
ATAK - ATAK
Er með til sölu frábæra
fæðubótaefnið.
Góður árangur - góð eftirfylgni.
Vísa/Euro, póstsendi.
Sími 895-5695. Láttu þér líða vel.
Er l/Vindows uppsetningin
eða tölvan biluð ?
Viltu láta lagfæra bilunina.
Hringdu í síma 42 7 424 7
eftir kl. 18.00
Athugiði
Uppfæri gamlar tölvur, þannig
að gamla tölvan verður eins og ný!
Hefeinnig hugbúnað til sölu.
VALUR
lista og þar með þingmann.
Persónuleg kynni mín af Sigríði
og störfum hennar á Alþingi
síðan hún tók við þingsæti af
forseta vorum ólafi Ragnari
Grímssyni gera það að verkunt
að mér það ljúft að lýsa yfir ein-
dregnum stuðningi við hana og
vill ég hvetja Suðumesjamenn
alla til að veita henni brautar-
gengi sitt.
Af hverju eiga Suðurnesja
menn að kjósa Sigríði í annað
sætið.
Aður en Sigríður tók sæti á Al-
þingi eftir að ólafur Ragnar
Grímsson var kosinn forseti
flestum til mikillar ánægju var
hún varaþingmaður frá 1991 og
var virk sem slík. Eftir að Sig-
ríður varð þingmaður hefur hún
unnið mikið og gott starf, hún
átti sæti í mörgum nefndum
m.a. menntamálanefnd og á nú
sæti í fjárlaganefnd. Hún hefur
og haft forystu í mörgum mál-
um þó seta í fjárlaganefnd teljist
vikta mest.
Sigríður hefur starfað á Alþingi
af dugnaði og elju þó svo að
störf hennar liafi ekki vakið
verðskuldaða eftirtekt fjöl-
miðla.j alþingi hefur Sigríður
verðið öflugur másvari þeirra
sem minnst mega sín. Sú
reynsla sem ég hef persónulega
af störfum Sigríðar er varða
málefni Sjúkrahúss Suð-
umsesja, þar sem ég var stjóm-
armaður, vaskleg framganga
hennar í þeirri hörðu vamarbar-
áttu gegn niðurskurðarhníf
Framsóknar-ílialdsstjómarinnar
sannfærði mig urn það að Sig-
ríður metur manngildi frekar en
auðgildi.
Margar ástæður liggja að baki
ákvörðun minni um að styðja
Sigríði prófkjörinu en þrjár eru
að mínu mati veigamestar:
1. Sigríður Jóhannesdóttir er
eini þingmaður Suðurnesja í
hópi þingmanna Samfylkingar-
innar og hefur þar með mestan
möguleika okkar Suðumesja-
manna að hljóta þingsæti.
Sandgerðisbær
Tilsjón
Gefandi aukavinna
Sandgerðisbær óskar eftir starfs-
fólki til starfa við tilsjón.
Tilsjónamenn aðstoða fólk, í
flestum tilfellum börn og ung-
menni, við að ná fótfestu í hinu
daglega lífi. Tilsjón felur oft í sér
aðstoð við heimanám og aðstoð
við þátttöku í tómstundum.
Tilsjónarmenn eru á öllum aldri en
þeir þurfa að vera jákvæðir og
ákveðnir. Umsóknareyðublöð fást
á skrifstofu Sandgerðisbæjar og
nánari upplýsingar er að fá hjá
Félagsmálastjóra.
Aðalheiður Ósk Guðbjörnsdóttir,
félagsráðgjafi.
Félagsmálastjóri Sandgerði
2. Hún er skeleggur málsvari
þess að verja beri félagslega
þjónustu.
3. Hún er einlægur málsvari
samvinnu þeirra sem aðhyllast
félagslegar lausnir og vilja
skapa þjóðfélag jafnréttis og
bræðralags.
Sigríður opnar kosningaskrif-
stofu í Reykjanesbæ
Sunnudaginn 17. janúar n.k kl.
14:00 mun Sigríður opna kosn-
ingaskrifstofu að Hafnargötu 54
Keflavík. Allir eru velkontnir í
opnunina Sigríður flytur ávarp
og fer með gamanvísur, Anna
Pálína ;madóttir og Aðalsteinn
jsberg Sigurðsson syngja og
leika. Skrifstofan mun fyrst um
sinn verða opin 20:30-22:00
virka daga og 14-16 laugar-
daga. Allir Suðumesjamenn eru
velkomnir til skrafs og ráða-
gerða.
Tryggjum kosningum Sigríðar
og tryggjum þar með áhrif Suð-
umesjamanna á Alþingi.
Evjólfur Evsteinsson
Fleiri greinar
uni samfylkinguna
birtast í næsta
tölublaöi VF
GJl
Jólahappdrætti
körfuknattleiksdeildar
UMFN
Vinningar • Númer
7. 473
2. 246
3. 484
4. 207
5. 440
6. 406
7. 449
8. 64
9. 180
70. 88
7 7. 110
12. 22
13. 23
14. 168
15. 224
Stjórn os leikmen vilja þakka þeim fjölmörgu scm keyptu miða.
10
Víkurfréttir