Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 11.02.1999, Page 12

Víkurfréttir - 11.02.1999, Page 12
Þakka Suðurnesjamönnum stuðninginn í prófkjöri Samfylkingarinnar Sigríður Jóhannesdóttir Alþingismaður Framtíðina eigum við saman. Léttsveitap-tónleikap á Þann 17. febrúar ki. 20:00 mun Léttsveit Tónlistarskól- ans í Keflavík halda tónleika í Frumleikhúsinu við Vestur- braut. Með Léttsveitinni syn- gja Birta Rós Sigurjónsdóttir og Jón Marinó Sigurðsson. Sveitin leikur í fyrsta sinn undir stjórn Olafs Jónssonar en einnig stjómar Karen Stur- laugsson sveitinni í lögum sem leikin voru í ferð sveitar- innar sem farin var síðasta sumar. Þann 30. maí sl. hélt Léttsveit T.K. í tveggja vikna tónleika- ferð til Boston og Bermuda. Dvöldum við í fimm daga í Boston og héldum þar þrenna tónleika. Þar á meðal spiluð- um við í skemmtigarði í New Hampshire, þaðan sem við þurftum að flýja undan veð- urguðunum þegar óveður skall á. Einnig spilaði sveitin við Faueil Hall Marketplace við frábærar undirtektir. Tfmanum var meðal annars eytt í „mollunum” í Boston ásamt því að skoða borgina þangað til við lögðum leið okkar til paradísarinnar Bennuda. Eyjaklasinn Bermuda liggur undan suð-austurströnd Bandaríkjanna og er undir stjórn Breta. Þar búa u.þ.b. 60.000 manns og vegna smæðar eyjarinnar eru tak- mörk sett á stærðir bíla og því Öskudaginn fara margir leiðar sinnar á létt- um mótorhjólum. Við leigð- um okkur mótorhjól og létum reyna á ökuhæfni okkar í vinstri umferðinni. A Ber- muda var æft við sundlaugina á hótelinu og haldnir voru þrennir tónleikar, m.a. við ráðhúsið í Hamilton, höfuð- borg Bermuda, og á kamivali þar í borg. Þar var múgur og margmenni, stór skemmti- ferðaskip lágu við höfnina og hefur sveitin aldrei upplifað aðra eins stemningu. Milli þess sem sveitin spilaði, var hver krókur og kimi eyjarinn- ar skoðaður. Einnig var legið í sólbaði á bleikum ströndum og buslað í sjónum innan um Á Bermuda var æft við sundlaugina á hótelinu (sjá efri mynd) og haldnir voru þrennir tónleikar, m.a. við ráðhúsið í Hamilton og við höfnina þar sem stór skemmtiferðaskip lágu. Á myndinni er Jón Marinó Jónsson að þenja radd- böndin við undirleik Léttsveitarinnar. litríka fiska. Eftir sjö sæluríka og unaðslega daga á eyjunni héldum við aftur til Boston þar sem við dvöldum í tvo daga. Lokatónleikar sveitarinnar voru á elliheimili þar í borg. Síðustur dagamir voru nýttir vel, verslað og endað á Vís- indasafninu í Boston. Þann 14. júní fómm við svo úr rign- ingunni í sólina i Keflavík eft- ir vel heppnað ferðalag. Vilj- um við nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem styrktu sveitina til fararinnar. Aðgangur að tónleikunum þann 17. febrúar er ókeypis og vonandi sjá flestir sér fært að mæta og hlusta á Léttsveit Tónlistarskólans í Keflavík. Léttsveit TK. Námskeið á næstunni M ESTÖÐ SÍ VtF 4NTL NAR Á SLÐLPNESJU.VI Eftirlitskerfi í matvælavinnslu, HACCP eftirlit (205) Námskeið fyrir fóik í fiskvinnsiu, lýkur með viðurkenningu frá Fiskistofu. Kennari: Brynjar Gunnarsson 2 kvöld 16. og 17. feb. kl. 18.30. Verð kr. 7.000 Egils saga Skalla-Grímssonar Fjarkennsla í Kjarna, Reykjanesbæ, í samvinnu við Endurmenntunar- stofnun Háskóla Islands Kennari: Jón Böðvarsson Níu mánudaga 15. feb til 26. apríl 1999 (ekki 29/3 og 5/4) ki. 20.15 til 22.15. Verð kr. 8.8oo Hvernig greinum við vandann Áfengis- og vímuefnavandinn í fjölskyldunni/á vinnustaðnum Leiðbeinendur: Séra Anna Sigríður Pálsdóttir, fjallar um meðvirkni fölskyldunnar og Skúli Thoroddsen um þróun vímuefnavandans hjá einstaklingi. Tvö kvöld kl 18.15 til 20.15. Þriðjudaginn 23. febrúar og fimmtudaginn 25. febrúar. Verð kr. 3.500 Skráning fer fram á heimasíðu miðstöð varinnar www. mss. is, netfangi mss@mss.is eða ísíma 421-7500. Athygli er vakin á því að mörg fyrirtæki og stéttarfélög styrkja starfsmenn til endurmenntunar. 12 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.