Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 25.02.1999, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 25.02.1999, Blaðsíða 3
Fjölnota íþróttahús rís í Keflavík: Svona mun hús Verkafls koma til með að líta út. Fjölnota íþróttahús með knattspyrnuvelli í fullri stærð verður byggt á gönilu bæjarmörkum Keflavíkur og Njarðvíkur. Það er Verkafl, dótturfvrir- tæki Islenskra aðalverktaka sem byggir húsið og verður það tekið í notkun í janúar árið 2000. Samningar milli bæjaryfir- valda og Verkafls eru á loka- stigi og á bæjarráðsfundi í gær var lagður fram leigusamn- ingur en gert er ráð fyrir að Reykjanesbær leigi húsið til 30 til 35 ára og er árleg af- borgun af því á milli 25 og 27 milljónir króna. Verkafl mun bæði kosta og sjá um bygg- ingu hússins og viðhalda því fyrstu fimm árin. Reykjanes- bær getur síðan hvenær sem er keypt húsið. Jónfna Sanders, formaður bæjarráðs sagði að Ijóst væri að þessi stóri draumur margra bæjarbúa væri nú að rætast. Hún sagði að bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks hefðu verið sammála um að láta þetta mál verða að veruleika í ljósi hagstæðra samninga sem náðust við Verkafl en eins og greint var frá í byrjun ársins var öllum tilboðum sem bárust í bygg- ingu hússins ffá tveimur aðil- um, Verkafli og Armannsfelli, hafnað. I framhaldi af því var rætt við Verkafl með hliðsjón af einu fjögurra tilboða fyrir- OK samskipti internetvæDir sveitarfélön á Suðurnesjum tækisins. Jónína sagði að tilkoma húss- ins ætti eftir að gjörbreyta fþróttaaðstöðu í bænum og breyta miklu fyrir bæði knatt- spymumenn og aðrar íþrótta- greinar, sem og að hafa keðju- verkandi áhrif í framtíðinni til góðs fyrir þjónustuaðila. Þeg- ar húsið verður tekið í notkun munu tfmar losna í hinum íþróttahúsunum sem geta þá nýst öðrum íþróttagreinum, m.a. fyrir stúlkur sem hafa verið homreka hvað það varð- ar. Húsið verður stálgrindarhús og knattspymuvöllurinn í því verður með gervigrasi af bestu gerð. Húsið verður hitað upp og sagði Jónfna sem dæmi að ef 15 gráðu frost væri úti yrði 15 gráðu hiti inn í því en í byrjun var sú hug- mynd reifuð að vera ekki með hita inni í húsinu. í samninga- viðræðunum var það meðal atriða sem náðust inn. Nú hafa skrifstofur Reykja- nesbæjar, Sandgerðisbæj- ar, Grindavíkur- bæjar og Gerð- arlirepps bein- tengst internet- inu í gegnum þjónustukerfi OK samskipta. Reykjanesbær hefur til um- ráða stærstu tenginguna eða 3 Mb/s þráð- lausa örbvlgjutengingu, og þar með komið í hóp sveitafélaga hér á landi með stærstu internettenginguna, en hin sveitafélögin tengjast í gegnum ISDN línur. Revkjanes- bær og Vatnsleysustrandarhreppur hafa komið sér upp heimasíðu á vefnum þar sem bæjarbúar geta fylgst með því sem er að gerast í bæjarmálum, skoðað fundagerðir, sent inn fvrirspurnir o.fl. heimasíðuslóðirnar eru: www.rnb.is og www.voiyar.is. „Fyrirtæki og stofnanir hafa löngu áttað sig á hve mikil þörf er á því að vera nieð góða inter- nettengingu. Þetta hefur mikla þýðingu fyrir bæjarskrifstofúmar að geta komist á intemetið, sent og tekið á móti tölvupósti hvenær sem er, svo ekki sé talað um tímaspamaðinn og örygg- ið sem verður að þessum samskiptum. Þetta er stóraukin þjónusta við bæjarbúa sem nú geta sent fyrirspumir o.fl. til sveitafélagana heima hjá sér á kvöldin og vera komin með svar dag- inn eftir“ sagði Georg Aspelund Þorkelsson, markaðsstjóri OK samskipta f Reykjanesbæ. Hægt er að senda tölvupóst til sveitafélaganna á eftirtalin netföng: rnb@rnb.is, grinda- vik@grindavik.is , gerdahreppur@gerda- hreppur.is , sandgerdi@sandgerdi.is., skrif- stofa@vogar.is. Nú hafa OK samskipti haftst handa við gerð örbylgjunets í Reykjanesbæ. Þannig geta fyrir- tæki og stofhanir tengst intemetinu þráðlaust á 3 Mb/s hraða, til sambanburðar má geta þess að venjuleg eins rása ISDN tenging er á hrað- anum 64 Kb/s eða 0,064 Mb/s svo að um er að ræða töluverðan intemethraða. Kosturinn við þessa tengingu er sá að ekki þarf að leigja burðarlínu fyrir intemetsambanið. þannig spar- ast talsverður mánaðarlegur rekstrarkostnaður. Nánar um OK samskipti á www.ok.is af jakka- fötum Verð frá 17.900.-23.900.- Sumri'mn írá BOOK'S erkomin fíaðgreiðslur Opið laugard. 10-13 > Túngötu 18 ■ Keflévík -lími 421 5099 Simmons - rúmarisinn í USA EKKI LATA BLEKKJAST! 10 óra óbyrgð á gormtikerfi* EUROOGVISA — RAEX5REIÐSLUR TIL 36 MÁNAÐA mmm Flestallar amerískar heilsudýnur eru meö samtengdum gormum þannig að þegar makinn byltir sér, kemur eða fer úr rúminu, átt þú á hættu að vakna við hreyfinguna og færð þar af leiðandi ekki óslitinn svefn. oQlmtyreltdýnukerfið frá Simmons er einstakt að því leyti að það er með sjálfstæðri gormafjöörun sem tryggir hámarks þægindi, velliðan og óslitinn svefn. Aður en þú tekur ákvörðun um kaup á amerískri heilsudýnu, ættir þú að koma við hjá okkur og kynnast af eigin raun heilsudýnunum frá stærsta framleiðanda sjálfstæðs gormakerfis í heimi. gagnavei-s,^ OPIÐ VIRKA DAGA KL. 10-18 OG LAUGARDAGA KL. 11-14 Hafnargötu 57 - Sími 421 1099 Keyrum ókeypis um öll Suðurnest V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.