Víkurfréttir - 25.02.1999, Blaðsíða 9
DAGUR TQNLISTARSKOLANNA
Vinadagur í Njarðvík
Það er löngu orðin helð
fyrir því hérlendis að
síðasti laugardagurinn
í febrúar sé tileink-
aður íslenskuin tónlist-
arskólum og því mikilvæga
starfi sem þar er unnið bæði
af neinenduin og kennur-
um. Pennan dag efna tón-
listarskólar gjarnan til ein-
hverra sérstakra dagskráa,
t.d. tónleika, bjóða upp á
opið hús, efna til ýmiskonar
kvnninga o.fl.
I ár ber „Dag tónlistarskól-
anna" upp á laugardaginn 27.
febrúar og þann dag efnir
Tónlistarskóli Njarðvíkur til
dagskrár sem nefnd hefur
verið „Vinadagur'. Nentendur
í tónlistarskólum eiga flestir
marga vini og margir þeirra
hafa aldrei verið í tónlist-
arskóla eða iðkað tónlist á
neinn hátt.
Það er til þess hóps, með
fulltingi nemenda tónlist-
arskólans, sem Tónlistarskóli
Njarðvíkur vill höfða með
Vinadeginum. Hverjum nem-
anda í almennum hljóð-
færadeildum/söngdeild skól-
ans gefst kostur á að bjóða
með sér einum vini, vinkonu
eða ættingja í tónlistarskólann
á Vinadaginn og fær lil þess
sérstakt boðskort. Dagskráin
hefst kl. 11.00 með því að
nemendur og boðsgestir
þeirra mæta á sal, þar sem
einn af kennurum skólans
mun útlista á stuttan og að-
gengilegan hátt, gildi tónlistar
fyrir sál og líkama. Síðan
verður hópnum skipt í þrennt
og fer hver hópur í ákveðna
stofu. Þar munu kennarar
vinna með hvem hóp í spuna í
u.þ.b. 15 mín. Þá skipta
hópamir um stofur, þar til allir
hafa farið í allar þrjár stof-
umar og þar með tekið þátt í
þrenns konar spunadagskrá.
Vinadagurinn í Tónlistarskóla
Njarðvíkur, á Degi tónlist-
arskólanna, laugardaginn 27.
febrúar n.k., hefst eins og fyrr
segir kl. 1 i .00 og áætlað er að
dagskránni Ijúki um kl. 12.00.
Febrúar tónsmiðjan
Laugardaginn 27. febrúar
er Dagur Tónlistar-
skólanna um land allt. í
tilefni þess mun Tón-
listarskólinn í Keflavík verða
með sérstakt tónleikahald
þennan dag. í febrúannánuði
hafa allir nemendur Tónlist-
arskólans í Ketlavík tekið þátt
í þemaverkefni sem jafnfiámt
er samkeppni og hefur fengið
heitið “Febrúar tónsmiðjan”
og er meginmarkmið hennar
að efla sköpunarþáttinn í
skólastarfinu og vekja áhuga
nemenda fyrir eigin tón-
sköpun. Hver nemandi hefur
samið lag á sitt eigið hljóðfæri
og mun frumflytja verkið á
Degi Tónlistarskólanna. Deg-
inum verður skipt í þrenna
tónleika á sal Tónlistarskólans
við Austurgötu. Fyrstu tón-
leikamir verða kl. 13:00, svo
kl. 14:30 og þeir síðustu kl.
16:00.
Skipuð hefur verið þriggja
manna dómnefnd í keppninni.
Verðlaun verða veitt með til-
liti til aldurs og stigs og allir
þátttakendur fá viðurkenn-
ingu. Verðlaunaafhendingin
verður í maí og vinningslög
verða flutt við skólaslit.
Nú bíðum við spennt eftir að
heyra árangur af febrúar tón-
smiðjunni. Hver veit nema
við Iteyrum í næsta stórtón-
skáldi Islands núna á laug-
ardaginn. Meðan á tón-
leikunum stendur verður
Foreldrarfélag Stúlknakórs
TK með kaffisölu en ágóðinn
mun renna í ferðasjóð kórsins.
Kórinn mun taka þátt í kóra-
móti sem haldið verður í
höfuðborg Bandaríkjanna,
Washington DC í apríl næst-
kontandi. Allir em velkomnir
og við vonumst til að sem
flestir komi og heimsækji
okkur á þessari uppskeruhátíð
okkar!
Fræðsla í KeflavíMirkju
Bygging safnaðarheim-
ilis Ketlavíkurkirkju er
nú að komast á loka-
stig. Ráðgert er að þar
hefjist starfsemi á næsta ári.
En uppbygging safnaðar-
starfsins er stöðug. A vor-
misseri 1999 hefur verið
bryddað upp á nokkrum
nýjungunt: Alla ntiðviku-
daga er fyrirbæna - og kyrrð-
arstund í kirkjunni kl.12.10 á
eftir, kl. 12.25 er hægt að
kaupa „djáknasúpu”, brauð
og salat á vægu verði í safn-
aðarheimilinu Kirkjulundi. Á
fimmtudögum er kirkjan
opin kl.16-18. KI. 17.30. er
fyrirbæna -og kyrrðarstund.
Fyrirbænum er hægt að
koma til prestanna og djákn-
ans alla vikuna. Annan hvem
fimmtudag er fræðsla, af
ýmsum toga, tengd bæna-
stundunum. Fimmtudaginn
25. febrúar n.k. mun Elín
Sigrún Jónsdóttir hdl.,
forstöðumaður Ráðgjafa-
stofu um fjármál heimilanna,
flytja erindi kl.
17.30. þar sem
hún segir frá starf-
semi stofnunar-
innar og fjallar um
fjármál heimil-
anna almennt.
Fimmtudaginn 11.
mars n.k. kemur
Elisabet Berta
Bjarnadóttir, fé-
lagsráðgjafi hjá tjölskyldu-
þjónustu kirkjunnar, til
Keflavíkur og flytur erindi,
kl 20.30 í kirkjulundi, er hún
nefnir „Að yfirgefa foreldra-
hús og verða sjálfstæð/ur”.
Aðgangur að fræðslustund-
unum er ókeypis og öllurn
opinn.
gefur gull i mund
Um síðustu áramót var
opnunartími Sund-
miðstöðvarinnar við
Sunnubraut færður
fram unt 15 mínútur, til kl.
06.45 alla virka daga. Með
þessari breytingu er verið að
koma til móts við þarfir
þeirra fjölmörgu sem vilja
byrja daginn á því að fá sér
hressandi sundsprett, áður
en þeir taka til við dagleg
störf. Ekki þarf að tjölyrða
um hollustu sundíþróttarinn-
ar. Fjölmargir bæjarbúar á
öllum aldri hafa um árabil
stundað laugarnar svo til
uppá hvern einasta dag og
með þessari breytingu ættu
enn fleiri að eiga þess kost.
Að synda 500 metra tekur
15-20 mínútur fyrir þá sem
ekki vilja fara of geyst. Með
stuttri viðdvöl í heitu pott-
unum, þar sent helstu mál
dagsins eru rædd, og sturtu-
baði á undan og á eftir ættu
50 mínútur að duga. Það
þýðir að þeir seni hefja
vinnu kl. 08.00 eiga ekki í
vandræðum með að mæta á
réttum tíma. Sundmiðstöðin
er opin alla daga ársins
nema unt stórhátíðar. Árs-
kort kostar kr. 18.000,- sem
gera kr. 50.- pr. dag ef farið
er f sund alla daga.
Frá opnun Sundmiðstöðvar-
innar árið 1990 hafa tæplega
900 þúsund manns sótt
laugina eða um 112 þúsund
gestir á ári. Með sama
áframhaldi má því reikna
með að á síðari hluta þessa
árs muni milljónasti gestur-
inn koma í Sundmiðstöðina
því segja má að morgun-
sund gefi gull í mund.
Lokað
vegna árshátíöar
starfsfólhs
dagana 26. febrúar
til og með 1. mars
Bílasala Keflavíkur
Hafnargötu 90 •Keflavík«sími 421 4444
Hjönlís Bjöik heildverslun
Víkurfréttir
9