Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 25.02.1999, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 25.02.1999, Blaðsíða 11
lu vegna atvika þegar Særún og Gaui Gísla GK sukku árið 1995: ai nl k u m má tta 10 19 l sökktu bátunum stjóri hafði ekki kynnt sér stöðugleikagögn bátsins. Orð- rétt segir í skýrslunni „Skip- stjóri sagðist taka meira mark á eigin reynslu til sjós en ein- hverju sem væri skráð á blað. Kynnti liann sér stöðugleika- gögn fyrir syst- ■■^■■■■■i urskip eftir slysið og sagð- ist þurfa að fara til sérfræðings til þess að fá skýrsluna túlk- aða.“ Gaui Gísla var á leið til hafnar með 5 til 5,5 tonna afla þeg- ar ákveðið var að reyna að draga hina vél- arvana Særúnu. Eftir að tvis- var slitnaði á milli opnaði skipstjóri boxalúgu (sem ekki má opna utan hafnar) til að ná tóg. Særúnu er sfðan sleppt er skipstjóra fínnst báturinn orð- inn einkennilegur í hreyfing- um en hann hvolfir skömmu „Skipstjóri sagðist taka meira mark á eigin reynslu til sjós en einhverju sem væri skráð á blað...“ „Skipstjóri sagðist hafa lesið eitthvað af „doðr- anti“ um stöðugleika fyrir bátinn en hann væri ekki á mannamáli og hafi hann fleygt honum upp í hillu“ eftir að skorið var á milli bát- ana. Skv. skýrslu rannsóknar- nefndarinnar var ekki tilkynn- ingarskyldu ekki sinnt, bún- aður var tekinn úr bátnum þrátt fyrir bann á slíku á með- an á rannsókn stóð, skipverjar ■■■■■■hm höfðu ekki sótt námskeið slysavarnar- skólans og áttu í erfið- leikum með neyðarbúnað, skipt var um vél, flottanki og andvelti- uggum bætt við án þess að óskað væri endurskoðun- ■■■^■■^ ar á stöðug- leika, boxalok í þilfari lokað- ist ekki sem skyldi og sjór streymdi óhindraður niður í skutrými bátsins. Að auki var leyfíleg heildarþyngd veiðar- færa, vista og afla 2,5 til 3,0 tonnum meiri en leyfilegt var og skipstjóri hafði ekki kynnt sér stöðuleikagögn bátsins. Orðrétt segir í skýrslunni „Skipstjóri sagðist hafa lesið eitthvað af „doðranti" um stöðugleika fyrir bátinn en hann væri ekki á mannamáli og hafi hann fleygt honum upp í hillu.“ Engin endurkrafa á hendur skipstjórunum Báðir bátarnir voru tryggðir hjá Samábyrgð íslenskra fiskiskipa sem ekki gerir end- TEXTI: JOHANNES KRISTBJÖRNSSON Mvuhm-PÁii uPTiiccnhi urkröfu á hendur skipstjómn- um tveimur. Sigurður Jóns- son, deildarstjóri tjónadeildar, sagði upplýsingar í skýrslu rannsóknamefndarinnar hafa komið fram við sjópróf hjá Héraðsdómi Reykjaness. Hann sagði sönnunarbyrði tryggingarfélagsins afar ríka og í þessum tilfellum hefðu margir þættir átt hlut í að svona fór. Hann sagði að í máli Særúnar hefði það verið niðurstaða félagsins að frum- orsök slyssins hefði verið áreksturinn við Eyjólf Ólafs- son NK-9 og að í tilviki Gauja Gísla hefði lekinn á lúgunni verið talinn frum- orsök óhappsins og samþykki lægi fyrir því að frágangur á dekki væri ófullkominn frá verksmiðjunnar hendi. Það hefði því verið niðurstaða Samábyrgðar íslenskra fiski- skipa að ósannanlegt væri að vankunnátta og ofhleðsla hefðu verið frumorsakir slysanna. Aðspurður um þá staðreynd að skipstjórar begg- ja bátanna höfðu ekki kynnt sér stöðuleikagögn bátanna sagði Sigurður. „Framsetning stöðugleikagagna er ekki auð- veld yfirlestrar og erfitt að lesa úr gögnunum. Þeir sjó- menn sem litla menntun hafa eiga í miklum erfiðleikum með að átta sig á þessum gögnum." Réttindaleysi og gáleysi halda ekki fyrir dómi Kristján Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknar- nefndar sjóslysa sagði ákvörðun Samábyrgðar ís- lenskra fiskiskipta ekki koma sér á óvart. Hann sagði að skv. sinni bestu vitneskju lægi ekki fyrir einn einasti dómur þar sem viðurlögum er beitt vegna réttindarlausra skip- stjórnarmanna eða vegna slysa eða bátstapa sem rekja mætti til gáleysis eða van- kunnáttu þeirra. Hann sagði endurkröfuheimildir trygging- arskilmála, að því er virtist, ekki halda fyrir dómi. J HRAFNKELSSAGA Pistlaskrifari heldur áfram yfirreið sinni um lendur pólitíkurinnar og ber næst niður hjá Samfylking- unni. Reyndar minnir fylkingar hluti nafnsins mig alltaf á úlpuklætt fólk kyrjandi.dsland ú Nató og ...., en þetta hlýtur að venjast. Svo er það líka stað- reynd, að samhugur hefur ekki beinlínis einkennt störf fylkingarinnar til þessa, heldur sérhagsmunagæsla hvers og eins. Flestir liafa þó látið af þessu eftir að prófkjöri líkurog predikað samhug í verki, en þeir sem meira mega sín eins og Heilög Jóhanna hafa þó haldið barátunni áfram og nú fyrir æðstu yfir- ráðum hópsins. Mig minnir að hin upp- runalega Heilaga Jóhanna hafi barist fyrir því að krýna réttniætan konung Frakka, og litið á það sem sína köllun. en ekki ætlað sjálfri sér mikil metorð. Er það ekki flott til eftirbreytni Jóhanna. Baráttan um yfirráðin já. Hefur nokkur séð virðulegan mann að vestan með vel snyrt skegg og klæddan í sviplaus grá pólitíkusajakkaföt ? Síðast þegar hann sást var hann með kratarós í bamiinum. Þeir sem verða hans varir em beðnir um að skila honum í framlínuna. Prófkjör- um er að mestu lokið og menn missárir eftir. Vinur minn, mikil karlremba gleðst yfir því að lengi vel virtust konur ætla að einoka öll helstu sæti og munu trúlega ná 60-70% af væntanlegum þingsætum. Hann taldi þar með nokkra von um, að væl um lélegt gengi kvenna af því þær væm konur og kröfur um kynjakvóta væru þar með fyrir bí. Ég er ekki eins bjartsýnn, en óneitanleg verður gaman að vera laus við þær uniræður á næsta flokksþingi. Væntanleg þingsæti, hversu mörg verða þau? Nú eftir prófkjör em Samfylking- armenn á þvílíku fylgisfylleríi að það hálfa væri nóg. Hvort rennur af mönn- um fram að kosningum svo menn sitji timbraðir eftir með 20% fylgi verðu að koma í ljós. Amk. verða menn að snúa sér að því að hætta að ota sínum tota en koma með liðlega stefnuskrá. Ef sama ráðleysið og sérhagsmunapotið heldur áfram er ekki á góðu von. Málstaðurinn er góður ef einhver er til í að rifja hann upp. f Tvö skot í lokin, L menn þurfa að \ nl kunna að taka ósi- ^ V gri og sigri bæði í pólitík, Iþróttum og í daglega líf- 9inu. Að fara í fýlu ef illa gengur skaðar bara mann sjálfan. Auðvitað er sárt ef smalað er allra flokka fólki til að kjósa 0 andstæðinga manns, en upp á þetta er jú boðið með opnum prófkjömm. Aftur á móti er jafn hlægilegt, já og beilfnis hallærislegt þegar þeir sem telja sig sig- urvegara hælast um og telja það skipta mestu máli hversu vel þeir persónulega hafi komið út (skítt með flokkinn og málstaðinn). Vísa dagsins fyrir hönd ónefnds prófkjörsþola: Samfylkingu vil ég leggja lið. Við lítið fylgi verð ég mig að sœtta. Og þvícrþað ég heldég luvtti við. að hœtta við að hœtta við að liœtta. Með kveðju úr Gulaginu Hrafnkcll. Aðalfundur 1. mars Aðalfundur Kvenfélags Keflavíkur verður hald- inn í Kirkjulundi 1. mars 1999 kl. 20.30. Venjuleg aðalfundastórf. Gestur kvöldsins er Lilja Hall- grímsdóttir Djákni í Keflavíkurkirkju. Konur fjölmennum og takið virkan þátt í fundinum. Formaður ína I)óra Jónsdóttir. Félagsvist Félagsvist verður haldin f Kirkjulundi flmmtu- daginn 25 febrúar 1999 kl.20. Aðgangseyrir kr.500.-, peningaverð- laun. Fjáröflunarnefnd Kvenfélags Keflavíkur. Víkurfréttir 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.